Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1972, Side 26

Læknablaðið - 01.12.1972, Side 26
200 LÆKNABLAÐIÐ ára og eldri um 10%, sjá 5. mynd. Var sjúkdómurinn yfirleitt kominn á hærra stig meðal karla en kvenna. Það kom og fram við þessar athuganir, að fólk getur gengið með sjúkdóminn leyndan í áratug eða meira, unz augljós sjúkdómseinkenni koma í Ijós, en hjá öðrum er gangur sjúkdómsins mun hraðari. Niðurstöður þessara athugana gefa til kynna, að tíðni leyndrar gláku sé svipuð á íslandi og meðal grannþjóða okkar, það er um 2% allra 40 ára og eldri ganga með sjúkdóminn leyndan. Það er því ekki, vegna þess að gláka sé algengari hjá okkur, að glákublinda er meiri hér en annars staðar. Aftur á móti blindast miklu fleiri hér á landi af hennar völdum en í öðrum löndum, og einmitt þess vegna hefur glákan orðið meira áberandi hér. Orsakir hinnar óvenjulegu háu tíðni blindu af völdum gláku tel ég aðallega tvær: Sjúkdómurinn finnst seint, oft ekki fyrr en á loka- stigi, og meðferð þá erfiðleikum bundin og örðugt er að fylgjast með þekktum sjúkdómstilfellum í stóru strjálbýlu landi með fáum starf- andi augnlæknum, og almennir læknar kunna lítið að meðhöndla sjúkdóminn. Ef til vill er gláka illkynjaðri hér á landi en annars staðar, en það er órannsakað. Áberandi er, að gláka liggur í ættum og eru allmargar gláku- ættir hérlendis. Venjan er, að sjúkdómurinn gengur frá manni til manns, en oft hleypur hann yfir ættlið. Æði oft sjást þó einstaklingar með gláku, þar sem gláka virðist ekki vera ættgeng. Ástæðan fyrir því, að sjúkdómurinn finnst seint er sú, að hann er einkennalaus og sjúklingar leita því ekki til læknis af sjálfsdáðum, og oft ekki fyrr en um seinan. Aðalatriðið í baráttunni við glákusjúkdóminn er að greina hann, áður en sjúkdómseinkenni koma í ljós og taka sjúklinga þegar til með- ferðar á frumstigi sjúkdómsins. Er þá í flestum tilfellum hægt að draga úr þróun hans. Til þess að þetta sé hægt, verður að leita að hon- um sérstaklega. Tíðni annarra blinduvaldandi sjúkdóma en gláku hefur ekki verið rannsökuð hér á landi. Hér er óleyst verkefni framundan. SKJÁLGUR Annar höfuðþáttur sjónverndar hér á landi er að taka rangeyg börn til meðferðar á yngstu aldursárum og hafa lokið lækningu, áður en þau hefja skólagöngu. Sumir kennslubókahöfundar telja, að um 2% barna hafi skjálg og um helmingur þeirra sé með sjóndepru á öðru auga. Aðrir höfundar telja augnskekkju tíðari en þetta. í Heil- brigðisskýrslum, sem gefnar eru út af skrifstofu landlæknis ár hvert, er skrá yfir kvilla nemenda í skólum landsins. Er þar m. a. getið fjölda nemenda með sjóngalla, rangeygð og þeirra, sem nota gleraugu. Eftirfarandi upplýsingar eru fengnar úr Heilbrigðisskýrslum frá árinu 1967, en það ár vantaði skýrslur um skólaeftirlit úr 14 læknis- héruðum. Þrátt fyrir það gefur skýrslan góða mynd af kvillum nem- enda hér á landi á hinum ýmsu námsstigum. Árið 1967 voru 39.199 nemendur í þeim skólum, er skýrslur þessar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.