Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1972, Side 88

Læknablaðið - 01.12.1972, Side 88
242 LÆKNABLAÐIÐ silkiframleiðenda minni en víngerðarmanna, þegar Pasteur næst vann bug á tveimur smitsjúkdómum, sem hrjáðu franska silkiorma. Úr þessu beinast rannsóknir Pasteurs æ meir inn á svið smit- sjúkdóma. Um þessar mundir berst Joseph Lister harðri baráttu fyrir viðurkenningu sótthreinsunaraðferða sinna, og Pasteur veitir honum lið af eldmóði. Mörg ár líða þó, áður en kenningar þeirra hljóta veru- legan hljómgrunn. Miltisbruni olli miklum usla í kvikfénaði Evrópu í þann tíð. Þeim Pasteur og Robert Koch tókst nær samtímis að einangra sýkil þann, er sjúkdómnum veldur. Pasteur hóf nú leit að vörn gegn vágesti þess- um og hugkvæmdist að beita svipaðri aðferð og Jenner hafði upp- götvað gegn bólusótt. Enn sem fyrr risu ýmsir öndverðir gegn kenn- ingu Pasteurs og töldu hana firru eina. Urðu deilur þessar til þess, að sett var á svið ein áhrifamesta tilraun, sem gerð hefur verið. Á búgarði einum bólusetti Pasteur 25 skepnur, sýkti þær síðan af miltis- bruna og einnig annan hóp, jafnstóran, sem óbólusettur var. Almenn- ingur flykktist að og fý-ígdist með af miklum áhuga. Pasteur lét sem ekkert væri, hélt til Parísar og beið þess tíma, er vænta mætti árang- urs. Hann sneri aftur með hálfum huga og var viðbúinn hinu versta. Tilraunin hafði þó heppnazt fullkomlega. Öll bólusettu dýrin lifðu, hin voru öll dauð. Enn óx hróður Pasteurs. Síðasta stórafrek Pasteurs var að finna bóluefni gegn hundaæði, einum ægilegasta sjúkdómi, sem herjað hefur á mannkynið. Frægð hans flaug nú um allan heim og sjúklingar þyrptust til hans hvaðanæva til meðferðar. Hafin var mikil fjársöfnun og rann féð til byggingar hinnar frægu Pasteur-stofnunar í París. Starfsorku Pasteurs naut þó ekki lengi á þeirri stofnun, því æviskeið hans var senn á enda. Hann lézt 28. september 1895. Þótt Louis Pasteurs sé einkum minnzt vegna þeirra stórafreka, sem drepið hefur verið á, má ekki gleyma þeim trausta grundvelli, er hann lagði að síðari rannsóknum á sviði sýkla- og ónæmisfræði. Það var Pasteur, sem framleiddi fyrsta bóluefnið úr hreinræktuðum sýkl- um og uppgötvaði anaerobiosis. Hann sýndi fram á og framkallaði veiklaða sýklastofna og lagði með því grundvöll að framleiðslu flestra bóluefna. Sumar tæknilegar aðferðir hans eru enn í gildi. Pasteur hlaut fulla viðurkenningu, meðan hann enn var á lífi. Slíkt var þá næsta fátítt. Tvímælalaust var hann einn mesti velgerðamaður mannkyns. í augum vísindamanna er það aðdáunarverðast, hve til- raunir hans voru frábærlega rökrétt byggðar og túlkaðar og hve sýnt honum var um hagnýtingu á niðurstöðum sínum. Louis Pasteur er tákn hins framsækna, leitandi hugar, er verður sérhver leyst þraut hvatning til nýrra dáða. Páll Ásmundsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.