Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ
ASTRA-SYNTEX Gigtsjúkdómastyrkur
ASTRA SYNTEX býður fram árlegan styrk að upphæð 15.000 sænskar krónur
til rannsókna á gigtsjúkdómum.
Styrkurinn takmarkast við Norðurlönd og er úthlutað sameiginlega af ASTRA
SYNTEX og gigtsjúkdómafélögunum á Norðurlöndum.
TILGANGUR
Tilgangur með styrkveitingunni er að efla lyfhrifafræðilegar og klíniskar rann-
sóknir á gigtsjúkdómum. Þetta skal framkvæmt á þann hátt, að styrkurinn sé
notaður til þess að greiða kostnað vegna tæknilegs starfsliðs og/eða stjórnunar,
sem nauðsynleg er til þess að unnt sé að ljúka ákveðnum rannsóknarstörfum,
sem stjórnað er af námsmönnum. Styrkinn má einnig nota sem kaupuppbót til
ungra fræðimanna, sem nota tómstundir sínar til þess að gera skýrslur yfir
rannsóknirnar.
STYRKFJÁRHÆÐ
Styrkurinn er að upphæð fimmtán þúsund (15.000) sænskar krónur á ári. Við
hverja úthlutun má ekki skipta styrknum milli fleiri en tveggja styrkþega, og'
skal hlutur annars vera a. m. k. níu þúsund (9.000) sænskar krónur.
ÚTHLUTUNARNEFND
Mat umsókna og val styrkþega er í höndum nefndar, sem í eiga sæti fulltrúar
frá gigtsjúkdómafélögum á Norðurlöndum og frá Astra-Syntex AB.
Árið 1975 eiga þessir sæti í nefndinni: Dr. Olle Lövgren, Svíþjóð, formaður,
próf. Veikko Laine, Finnlandi, dr. med. Hans Graudal, Danmörku, dr. med.
Einar Munthe, Noregi, dr. Jón Þorsteinsson, íslandi, og hr. Göran Berglund,
Astra-Syntex AB. (ritari).
UMSÓKNIR
Skrifleg umsókn í tvíriti áritist til úthlutunarpefndar gigtsjúkdómastyrks
Astra-Syntex AB og sendist til Jóns Þorsteinssonar, læknis, Landspítalanum,
Reykjavík, fyrir 15.4. 1976.
MEÐ UMSÓKN SKULU FYLGJA:
a) Upplýsingar um starfsferil ásamt skrá yfir þær greinar umsækjanda um
viðfangsefni á þessu sviði, sem birtar hafa verið.
b) Skilgreining á rannsóknarverkefni því, er fyrir liggur, ásamt áætlun, þar
með talin kostnaðaráætlun, um framkvæmd þeirrar rannsóknar, sem sótt er
um styrkinn fyrir.
c) Upplýsingar um hvort leitað sé eftir fjárhagsaðstoð hjá öðrum aðilum til
sömu rannsóknar.
AFHENDING
Afhending styrksins fer fram í fyrsta sinn þann 4. júní 1975 á VIII Evrópsku
gigtsjúkdómaráðstefnunni í Helsingfors og þar næst á XVI Gigtsjúkdómaráð-
stefnu Norðurlanda í Reykjavík í júní 1976. Niðurstöður nefndarinnar verða
birtar umsækjendum í lok maí.
Nafn styrkþega verður ekki birt opinberlega fyrr en við afhendingarathöfnina.
ÚTBORGUN
Útborgun fer fram við afhendingu styrksins.
GREINARGERÐ
Eigi síðar en 1 ári eftir úthlutun eru styrkþegar skuldbundnir til að senda styrk-
nefndinni skriflega greinargerð um niðurstöður sínar, ef mögulegt er í formi
greinar til birtingar í fagtímarit. STYRKNEFNDIN