Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ
21
framlögum sínum, auk þess sem þingtíminn
sjálfur fer að mestu í snúninga og fyrir-
greiðslu. Ávinningur þeirra sjálfra af þing-
inu verður því mun minni en vera ætti.
Að undanförnu hefur verið unnið mark-
visst að því að gera ísland að ráðstefnu-
landi og áætluð áframhaldandi þróun í þá átt.
ísland er ekki jafn illa í sveit sett til slíkra
mannfunda, sem ætla mætti í fyrstu. Hér
geta menn frá Ameríku og Evrópu mætzt á
miðri leið og fundað. Náttúra landsins býr
yfir nægum töfrum til að laða menn hingað
til norrænna mannfunda. Aðstaða til þing-
halds hefur batnað að mun á undanförnum
árum, en þarf þó að verða mun betri. Hér
vantar einnig fyrirtæki eða stofnanir, sem
sérhæfa sig í undirbúningi og framkvæmd
þinga. Má t. d. minnast á, að danskir stúdent-
ar reka ,,kongress service" með ágætum,
og mættu íslenzkir stúdentar íhuga mögu-
leika á slíkri þjónustu.
Ekki er síður ánægjuefni, að líf er að fær-
ast í þinghald íslenzkra lækna innbyrðis.
Hafa menn margt að sækja á slík mót, hvar
sem þau eru haldin. Læknum og konum
þeirra gefst tækifæri til að hitta sína líka
og varpa frá sér um stund áhyggjum og erli
daglegra starfa. Helzt ætti að leitast við að
halda slík mót utan Reykjavíkur eða stærri
bæja, því að ella verður fundarsókn fæstum
sú afslöppun, sem vera ætti.
Sumir halda því fram, að læknar hér hafi
ekki frumlegar athuganir fram að færa í
þeim mæli, að það réttlæti slík innlend
þinghöld. Slíka afstöðu tel ég alranga. Þótt
seint megi hér búast við stórum nýjum
læknisfræðilegum sannindum, eru hér næg
áhugaverð verkefni, ef menn nenna að hafa
augun opin og afskrifa þau ekki á þeim for-
sendum einum, að þau séu ekki frambæri-
leg á stórum fjölþjóðaþingum og í stórum
erlendum fræðitímaritum. Pau eru þó oftast
þess verð, að þeim séu gerð skil og borin
fram á innlendum þingum eða í málgagni ís-
lenzkra lækna. Slíkt er mönnum mikilvæg
þjálfun í framsetningu athugana sinna á
skipulagðan, áheyrilegan hátt. Sjálfsagt er
einnig á slíkum þingum að hafa hringborðs-
umræður eða symposia um áhugaverð efni,
og er þar nægu af að taka. Loks mætti í
ríkara mæli bjóða hingað erlendum vísinda-
mönnum til fyrirlestra, og eru innlend lækna-
þing tilvalinn vettvangur slíkra gestafyrir-
lestra.
Rað er ósk Læknablaðsins, að ráðstefnu-
höld hérlendis blómstri til menntunar og
hvatningar.
P.A.