Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 22
10
LÆKNABLAÐIÐ
BÞ Liggjandi Standandi ÞYNGD KG Se-K + mEq/1 S-Na+ mEq/1
5/ 7/73 130/95 125/? 75.5 4.3 138
2/ 8/73 135/92 130/100 77.3 4.2 144
20/ 8/73 125/85 80.0
8/10/73 145/105 140/110 82.3 4.3 141
5/11/73 128/90 125/92 83.2
10/ 1/74 125/85 115/95 82.5
7/ 2/74 124/84 120/95 82.4 4.4 137
af La-ndakoti 2. júlí 1973, 10 dögum eftir
aðgerð, í umsjá S. Þ. G.
EFTIRLEIKUR:
Því hefur verið haldið fram, að síðasti
hjallinn, sem klífa þarf í sjúkdómsgrein-
ingu á aldosteronismus primaria, insu-
linoma og áþekkum sjúkdómum, sé heil-
brigður maður að lokinni viðlíka aðgerð
og hér er lýst. Lengi vel innihéldu lýsing-
ar í læknaritum engin dæmi þess, að svo
færi ekki ævinlega í sambandi við aðgerð
á aldosteronismus primaria. Það hefur þó
því miður sýnt sig, að nokkur hluti þeirra,
sem öll skilyrði fylla til greiningar, enda
samt sem áður með viðvarandi teikn um
háþrýsting, skerta nýrnastarfsemi o. fl.18 23
Frumárangur aðgerðarinnar hér (v. s.)
lofaði góðu, en eigi að síður þótti eftirlit í
göngudeild nauðsynlegt. (sjá töflu).
Strax við fyrstu göngudeildarheimsókn
þótti sýnt, að ekki væri fyllilega að velli
lögð háþrýstingstilhneigingin og því brugð-
ið við eins og sést á þeirri forsendu, að
grundvöllur til háþrýstings hefði verið
lagður vegna tveggja til þriggja ára sögu
a. m. k. um slíkt. Er nú í ráði að halda á-
fram með minnstu meðferðarskammta
um óákveðna hríð.
Saltbúskapartruflunin er gersamlega
horfin, sbr. Na- og K- gildin í töflunni.
Þ. 7.2 ’74 var mælt pH blóðs, sem reynd-
ist 7,34 (7,35—7,42) og bicarbonat, sem
reyndist 25,5 mEq/1 (21—25), sem áréttir
leiðréttingu alkalosunnar.
Nýrnavani var fyrir hendi í sjúkdómn-
um fyrir aðgerð, sbr. þvageðlisþyngdar-
tölur 1006—1008; aukið þvagmagn og
geysilegt þorstlæti. Eðlisþyngd morgun-
þvags 7.2 ’74 var 1021, en þorstinn og
þvagflóðið hvarf með öllu strax eftir að-
gerð.
Meðfylgjandi mynd af hjartarafritsútliti
2V2 ári og 2 mánuðum fyrir aðgerð, auk
rits frá 7.2 '74, sýna á sanmfærandi hátt
hypokalemiska (og hypertrophiska) car-
diomyopathiu og hvarf hennar. Hjartarúm-
málsmælingar 12. 4 ’73 (500 ml/m-) og
7.2 ’74 (420 ml/m-) sýna einnig heillavæn-
leg teikn þess, að marktæk hjartastækkun
er úr sögunni. Sakleysislegt, lágvært, sy-
stoliskt óhljóð yfir mitralsvæði er enn fyr-