Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 63
LÆKNAESLAÐIÐ
35
Greir.ing
Dags. Lyf Skammtur Hvc lcngi Aihs. Naesta koma Larknir
Onnur mcðfcrð
Mynd 3.
alla að vinna við slíkar aðstæður; atriði
gleymast, meiri hætta verður á ýmiss kon-
ar villum, pappírar eru ekki á sínum stað
í skjalasafni, upplýsingar berast ekki
heimilislæknum, sem geta þá síður fylgst
með sjúkdómunum og fullkomnað þá með-
ferð, sem ‘hafin var á spítölunum, þegar
sjúklingar leita þeirra að nýju. Þetta kann
síðan að valda því, að sjúklingum batnar
seinna og afleiðingar þessa verða stundum
þær, að heilsu- og fjárhagstjón hlýst af.
Það er því augljóst mikilvægi þess, að
upplýsingamiðlun sé sem öruggust og best.
B — LYFJAKORT
Jafnvel þó að læknabréf séu send heim-
ilislækni strax, kunna sjúklingarnir af
ýmsum ástæðum að leita til annarra
lækna. Til þess að gera upplýsingamiðlun-
ina öruggari, a.m.k. hvað varðar lyfja-
notkun sjúklinganna og sitthvað fleira,
gerði ég 1970 lyfjakort, sem nú hefur ver-
ið endurbætt (sjá mynd 2 og 3). Er ætlast
til, að það sé fyllt út, þegar sjúklingur fer
heim af spítala og sjúklingur beri það á
sér og sýni það, er hann leitar læknis,
hvað sem að honum kann að vera hverju
sinni. Á fremstu síðu þessa lyfjakorts eru
venjulegar upplýsingar um sjúklinginn,
heimilislækni hans og síma, spítalalækni
þann, sem gefur út kortið, síma hans, og
neðst á síðunni eru reitir fyrir lyfjaofnæmi,
sem í skal skráð, ef kunnugt er um, að
sjúklingur sé ofnæmur fyrir einhverjum
lyfjum. Á síðu 2, 3 og 4 eru skráð þau lyf,
sem sjúklingur notar, lyfjaskammtar og
hvað áætlað er, að sjúklingur eigi að taka
lyfið (lyfin) lengi. Á athugasemdadálki má
koma fyrir ýmsum upplýsingum, svo sem
blóðþrýstingi, þyngd, athyglisverðum nið-
urstöðum þvag- og blóðrannsókna, eða öðru
því, sem læknunum þykir máli skipta, svo
og því, hvenær áætlað er, að sjúklingur
komi næst til læknisins. í síðasta dálkinum
er fangamark eða nafn læknisins, sem skrá-
ir lyfið (lyfin). Efst á blaðið má skrá sjúk-
dómsgreiningar og neðst á blaðið aðra
meðferð. Er að þessum upplýsingum öll-
um, að mínum dómi, mikið hagræðd og
öryggi, sem ekki er frekari ástæða að fjöl-
yrða um.
Á 5. síðu eru upplýsingar handa lækn-