Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ 33 eða aðrir koma með sjúklingnum, að starfslið deildarinnar geri lækni þegar í stað viðvart um, að sjúklingurinn sé kom- inn, svo að læknirinn nái að fá greinar- góða sjúkrasögu frá aðstandendum. Ætti það eðlilega að stuðla að öruggari grein- ingu og því, að sjúklingurinn fái fyrr rétta meðferð og bata. Þegar sjúklingur hefur fengið sjúkra- rúm er nauðsynlegt, að Iþegar í stað sé beðið um og reynt að inna af hendi nauð- synlegar rannsóknir. Venjan er sú, að gera hinar ýmsu blóð- og þvagrannsóknir dag- inn eftir að sjúklingur kemur inn á spítal- ann, a.m.k. ef um rannsóknarsjúkling er að ræða, en vel mætti hugsa sér að láta sjúklinginn koma fastandi að morgni til og flýta þannig þessum rannsóknum um einn dag og myndi slíkt geta stytt legutímann sem því svaraði, a.m.k. stundum. Oftlega þarf að bíða eftir röntgenrannsóknum og því er mikilvægt að röntgenbeiðnir komist í tæka tíð á röntgendeildina. Það er því veigamikið, að læknirinn gefi þegar í stað fyrirmæli sín og fyrirmæli gangi strax rétta boðleið. Aðstoðarlæknar verða að fá sjúkrasöguna strax og skrifa sjúkraskrá eða lesa hana inn á band. Ritarar þyrftu helst að Ijúka við að skrifa sjúkraskrána samdægurs eða a.m.k. snemma morgun- inn eftir að sjúklingurinn kemur inn á spítalann, svo að hún sé skráð, þegar lækn- ar spítalans þurfa að kynna sér hana fyrir eða á stofugangi næsta dag. Sé sjúkra- skráin ekki skráð fyrir þann tíma er meiri hætta á því, að einhverjar mikilvægar rannsóknir verði útundan eða bíði a.m.k. sólarhringnum lengur. Beiðnir um skoðun sérfræðinga utan deildarinnar sem og ráð- gjafa þurfa að berast þeim sem fyrst og helst þarf að fylgja eftir slíku munnlega. Það er áríðandi, að svör sérfræðinga og ráðgjafa séu skrifleg, helst einnig munn- leg og ekki þurfi að bíða eftir þeim lengi en það vill brenna við að sérfræðingar og ráðgjafar láti bíða eftir sér í nokkra daga allsendis að óþörfu. Allar slíkar tafir lengja dvöl sjúklingsins á spítalanum. Upplýsingamiðlun innan deilda spítalans fer jafnan fram þannig, að stuttir fundir lækna og hjúkrunarkvenna eru haldnir svo og fundir hjúkrunarkvenna og annars starfsliðs og er þörf slíkra funda mun meiri nú en áður eftir að vinnutími starfsliðs hef- ur styst og það hverfur af deildunum oft marga daga í einu. Slík skoðaskipti og uplýsingafundir eru mjög mikilvægir og koma í veg fyrir ýmiss konar gleymsku og vanrækslu. Einn veigamesti þátturinn í upplýsingamiðlun deildarinnar felst í eyðu- blöðunum og skrásetningu ýmissa atriða á þau varðandi sjúklinginn. Unnið er nú að því að samræma eyðu- blöð spítala landsins ásamt öðrum læknis- fræðilegum eyðublöðum, svo að allt hjúkr- unarfólk þekki þau vei, hvar sem það kann að starfa á landinu og ætti að vera mikið hagræði af því og öryggi. Að þessu sinni verða málum þessum ekki frekari skil gerð. III. UPPLÝSINGAMIÐLUN SJÚKRA- HÚSSLÆKNA TIL UTANSJÚKRA- HÚSSLÆKNA OG STOFNANA A — LÆKNABRÉF Á sjúkrahúsum ætti það að vera ófrá- víkjanleg venja að skrifa bréf um sjúkl- inga, þegar þeir hverfa af sjúkrahúsunum, til heimilis- og héraðslækna og annarra þeirra lækna, sem senda inn sjúklinga. Er það og jafnan gert og í þeim tilgangi að flytja læknunum upplýsingar um grein- ingu, rannsóknir, gang sjúkdómsins og meðferð þá, sem beitt er á spítölunum og annað það, sem máli skiptir. í þeim tilgangi að gera upplýsingar þess- ar sem gleggstar og koma þeim í skipu- legt form og til þess einnig að koma í veg fyrir, að mikilvæg atriði gleymdust í læknabréfum, samdi ég 1969 leiðbeiningar um gerð læknabréfa (sjá afrit) og hafa þær verið í notkun, a.m.k. á sumum spítöl- um. Birtast þær nú hér með smávægileg- um breytingum. LEIÐBEININGAR UM GERÐ LÆKNABREFA 1. Sjúklingur skilgreindur, þ.e. skýrt frá Þjóð- erni hans (ef um útlending er að ræða), aldri, kyni, starfi o.fl. 2. Greint frá ástæðu til vistunar á sjúkrahúsi. 3. Aðalatriði úr heilsufars- og sjúkrasögu, fyrri sjúkrahúslegur nefndar og svo framvegis. 4. Skoðun við komu, þ.e.a.s. það sem finnst ó- eðlilegt við skoðun, en ennfremur hiti, púls, blóðþrýstingur, hæð og þyngd. 5. Rannsóknir: a) blóðrannsóknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.