Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 26
14
LÆKNABLAÐIÐ
á notkun leglægra getnaðarvarna og
hafði, er hér var komið, látið um 130
konum í té slíkar varnir. Vegna góðrar
reynslu, sem þá hafði fengist, var ákveðið
að auka notkun þeirra á vegum deild-
arinnar og tók hinn höfunda (G. Sn.)
þá einnig þátt í þessum rannsóknum.
Hefur síðan verið náin samvinna höf-
unda um notkun I. U. D.
Á deildinni hefur verið haldin nákvæm
spjaldskrá um allar konur frá byrjun og
þær látnar koma í reglulegt eftirlit, þar
sem skráðar hafa verið niðurstöður. Und-
anfarin ár hafa verið sérstakir t'ímar fyrir
þessar rannsóknir á deildinni, þar sem
konur með I. U. D. hafa mætt reglu-
lega í skoðun, hvort sem einhverjar kvart-
anir var um að ræða eða ekki. Koma
flestar í árlega skoðun.
Þegar þessi grein er rituð (febrúar
1974) hafa höfundar alls látið nokkuð
á þriðja þúsund konur fá leglægar getn-
aðarvarnir. Fram til ársins 1967 var
Lippes loop, stærðir C og D, eingöngu
notað. Síðan nokkuð af Saf-T-Coil (milli
100 og 200), um 100 Dalkon Shields og
upp á síðkastið einnig Gravigard, en
marguiles spiral í fáum tilvikum.
í þessari grein verða einungis birtar nið-
urstöður af reynslu fyrstu fimm áranna í
notkun leglægra getnaðarvarna og því
að sinni ekki gerður samanburður á
ofannefndum tegundum.
TILHÖGUN ÚRVINNSLU
Bftir um það bil fimm ár höfðu höf-
undar látið um 700 konur fá leglægar
getnaðarvarnir. Þótti þá tímabært að
gera könnun á árangri. Árin 1968 og 1969
voru rannsakaðar 585 konur, sem fengu
Lippes loop auk 15, sem þá höfðu feng-
ið Saf-T-Coil.
Var upplýsingum safnað á gataspjöld
um þessar 600 konur. Til aðstoðar höf-
undum við þessa vinnu var ráðin frú
Kristrún Malmquist ljósmóðir, sem hafði
samband við allar þær konur, sem ekki
‘höfðu verið í eftirliti hjá öðrum hvor-
um höfunda. Voru þær innkallaðar á
deildina í aukaskoðun, en upplýsingar
símleiðis látnar nægja, þegar engar kvart-
anir var um að ræða. Örfáar höfðu flust
af landi brott eða breytt heimilisfangi,
þannig að þær 600, sem rannsókn náði
yfir voru meðal þeirra 630-640 fyrstu,
sem fengu I. U. D. En þær konur, sem
höfðu nýlega fengið I. U. D. voru ekki
teknar með í rannsóknina. Upplýsinga-
söfnun og úrvinnsla var að mestu lokið
í ársbyrjun 1970, en vegna anna hefur
nokkuð dregist að birta niðurstöður
þær, sem hér liggja fyrir.
Með fyrstu sendingu af Lippes loop
sendi Population Council einnig eyðu-
blöð, sem notuð voru við allar rannsókn-
ir á þeirra vegum. Var hér um þrjár teg-
undir eyðublaða að ræða, „admission
record“, follow-up record“ og „summary-
record". Hafa höfundar notað þessi eyðu-
blöð frá byrjun. Þau voru samin með
auðvelda úrvinnslu í huga og var lykill
fyrir gataspjöldin saminn beint eftir þess-
um eyðublöðum.
NIÐURSTÖÐUR.
Hér verða á eftir raktar niðurstöður úr-
vinnslunnar og stuðst þar við sömu röð
og spurt er um á eyðublöðum frá Popu-
lation Council.
TABLE 1
Age distribution.
Number Per cent
Under 20 years 13 2.2
20—29 — 263 43.8
30—39 — 282 47.0
40 and more 42 7.0
Total 600 100.0
Parity. TABLE 2
Number Per cent
O —para 2 0.3
I —para 41 6.8
II —para 149 24.8
III—para 173 28.8
IV —para 114 19.0
V —para 68 11.3
VI —para and more 52 8.7
Not noted 1 0.2
Total 600 99.99