Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
25
9. Heimili í upplausn og þar sem skilnaður
er yfirvofandi.
10. Fjölskyldur, sem notfæra sér þjónustu
mæðra- og ungbarnadeilda minna en í
meðallagi.
Talið er að sérstaklega þurfi að huga að
eftirfarandi hópum barna:
1. Börnum, sem fæðast fyrir tímann.
2. Börnum, sem anda illa, hafa lágan blóð-
sykur. hyperbilirubinaemia eða einhverja
aðra sjúkdóma nýfæddra.
3. Meðfæddir gallar.
4. Endurteknar sýkingar.
5. Ýmis konar langvarandi sjúkdómar
(asthma, sykursýki, nýrnasjúkdómar,
meltingarsjúkdómar).
6. Ójafnvægi í næringu (offita, hor).
7. Vaxtar- og þroskavandamál.
8. Sjónar- heyrnar- eða talvandamál.
9. Vandamál í sambandi við hreyfifæri.
10. Sálfræðileg eða hegðunarleg vandamál.
11. Andlegur vanþroski.
12. Börn, þar sem daggæslu er ábótavant.
Sérstök skýrsla verður send út um fundinn
og kemur út sem sérrit frá skrifstofunni í
Kaupmannahöfn.
Undirritaður dvaldist í Moskvu laugardag-
inn 16. nóv. og gafst þá tækifæri fyrir vel-
vilja dr. Venediktov að skoða fyrirkomulag á
sjúkraflutningum í borginni svo og að heim-
sækja sjúkrahús, þar sem fram fara hjarta-
skurðlækningar.
Allur bráður sjúkraflutningur er skipulagð-
ur frá einum stað. Hann hefur yfir að ráða,
ásamt útibúum, 500 sjúkrabílum og fást þeir
eingöngu við bráð sjúkraköll, en hafa ekki
með að gera flutning á vanfærum konum
eða sjúklingum, sem þurfa að fara á göngu-
deildir sjúkrahúsa. Allar beiðnir koma inn á
sérstaka móttökustöð í gegnum síma og i
öllum bílum er talstöðvasími, svo að beint
sé hægt að hafa samband við bílinn. Allir
sjúkrabílarnir eru af sömu gerð, eru eins og
háir sendiferðabílar og munu vera framleidd-
ir í Riga.
í hverjum bíl eru, auk bílstjórans, læknir
og tvær hjúkrunarkonur. í bílnum eru öll
tæki, barkaslöngur og mikið af lyfjum og ur..
annast þá, svo sem súrefni, sog, tæki til að
gera barkaskurð, öndunartæki, hjartalínurits-
tæki til að búa sem best að sjúklingum og
^úðum. Pláss í bílnum er þannig, að sjúk'
/ngur liggur við annað þil, en iæknir og
hjúkrunarkonur geta setið við höfðalag og
til annarar hliðar.
Nokkrir stærri bílar eru einnig til þar sen.
sjúklingur getur legið á vagni í miðjum bíln-
um og hægt er að ganga kringum sjúkling.
Aðeins munu vera 2 eða 3 slíkir bílar í
notkun í Moskvu, en forráðamenn stofnun-
arinnar töldu, að þeir mundu í framtíðinni
reyna að koma upp fleiri slíkum bílum og
einkum töldu þeir þá nauðsynlega í sam-
bandi við hjartasjúkdóma.
Engir af þessum sjúkrabílum eru reknir í
beinum tengslum við sjúkrahús, en sjúkra-
hús hafa vaktir eftir svæðum.
Heimsóknin í hjartaskurðdeildina var mjög
fróðleg. Sá spítali var eins og þeir, sem fyrr
héfur verið lýst hér að framan, í gamalli
byggingu og ekkert nýtískulegt við húsið
sjálft, jafnvel skurðstofur voru gamaldags og
greinilega ekki tekið tillit til þeirrar smit-
gátar, sem talin er nauðsynleg á skurðstof-
um í dag. Hins vegar var gjörgæsludeild
sjúkrahússins mjög vel búin tækjum og
greinilegt, að þarna eru gerðar skurðaðgerð-
ir á hjarta af öllu tagi. Yfirlæknirinn kvartaði
yfir því, að spítalinn væri gamall og ekki
hægt að halda uppi þeirri smitgát, sem
nauðsynleg væri, en nýr spítali væri í bygg-
ingu.
Páll Sigurðsson