Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 66
38
LÆKNABLAÐIÐ
tbl. 1974) að við teljum, að efling göngu-
deilda yrði alls ekki til þess að hindra
byggingu heilsugæslustöðva, sem við erum
allir sammála um að reisa þurfi hið fyrsta.
Þvert á móti gætu þær orðið sá nauðsyn-
legi tengiliður milli sjúkrahúsanna og
heimilislæknaþjónustunnar, sem flestir eru
sammála um að nú skorti og gætu stuðlað
að stofnun heilsugæslustöðva.
Það var vegna hinna nánu starfstengsla
milli göngudeilda og heimilslækna, sem
við átöldum, að enginn heimilislæknir
skyldi hafa átt sæti í nefnd L. í. um göngu-
deildarþjónustu. (Að nefndarmenn væru 3
en ekki 4 var skv. upplýsingum frá ritara
stjórnar L. í.).
Það er rangtúlkun á ummælum okkar,
að við værum að gefa í skyn, að ekki séu
starfhæfar göngudeildir í Reykjavík. Við
vitum mætavel, að þessar deildir hafa gjör-
breytt og bætt starfsemi þeirra sjúkrahúsa,
sem þær eru starfræktar við. Hinsvegar
veita þessar göngudeildir einungis mót-
töku sjúklingum, sem legið hafa inni á
legudeildum sjúkrahúsanna, þ. e. a. s. þær
eru einungis eftirmeðferðardeildir. Tillög-
ur okkar eru, að þessar deildir veiti einnig
móttöku sjúklingum, sem þangað er vísað
af læknum, án þess að vera lagðir fyrst
inn á legudeildirnar, svipað og göngudeild
Samtaka Sykursjúkra starfar nú. Eðlilegt
væri, að fyrsta skrefið að aukinni starf-
semi slíkra göngudeilda yrði, að sjúkling-
ar á biðlistum sjúkrahúsanna yrðu fyrst
skoðaðir á göngudeild, og þar yrði tekin
ákvörðun um frekari meðferð og rann-
sóknir og hvort ástæða væri til að leggja
sjúklinginn inn á legudeild til þessara
rannsókna. — Við leggjum til, að slíkar
göngudeildir fái að starfa jafn'hliða þeirri
þjónustu, sem sjúklingum er veitt af sér-
fræðingum á einkastofu.
Göngudeildir krefjast lítils húsnæðis, ef
starfsemi þeirra er vel skipulögð. Þær
spara jafnframt verulega sjúkrarými, eins-
og við höfum fært rök að í fyrri greinum
okkar. Við teljum því að hagræða megi
núverandi húsnæði sjúkrahúsanna þannig,
að unnt verði að efia starfsemi göngudeild-
anna. Einnig mætti vel brúa bilið með
bráðabirgðahúsnæði, svipað og nú er t. d.
verið að reisa fyrir sumar rannsóknar-
deildir Landsspítalans.
Vegna hins tiltölulega litla stofnkostn-
aðar við göngudeildir álítum við, að ekki
sé unnt að vísa allri sök á hendur fjárveit-
ingavaldinu eða kenna um hægum bygg-
ingahraða sjúkrahúsanna hversu uppbygg-
ing göngudeildaþjónustu er skammt á veg
komið á íslandi.
Að endingu viljum við þakka þér fyrir
skrif þín. Umræður innan læknasamtak-
anna um heilbrigðisþjónustuna geta ekki
leitt til annars en góðs. Við vonum því, að
fleiri raddir kveðji sér hljóðs um göngu-
deildaþjónustuna svo og um aðra þætti
heilbrigðisþj ónustunnar.
í febrúarmánuði 1975,
Félag íslenzkra Lækna í Bretlandi.