Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
15
TABLE 3
Previous aJbortions.
Number of women Per cent
Spontaneous abortions 153 25.3
Induced abortions 14 2.3
No abortions 433 72.2
Total 600 100.0
Tafla 1 og 2 skýra sig sjálfar. Þó má
benda á, að hlutfallslega er fjöldi þeirra
kvenna hár, sem fætt hefur 3 börn og
fleiri, ef miðað er við meðaltal barna í
hverju hjónabandi í landinu, sem nú er
2.4. Eins og áður er getið var einmitt á
fyrstu árum notkunar I. U. D. leitast við
að láta einkum konur með mörg börn fá
þessar varnir.
Við fyrstu skoðun voru allar konur
spurðar um fyrri fósturlát og fóstureyð-
ingar, eða stuðst við upplýsingar úr
skýrslum deildarinnar. Eftir Töflu 3 að
dæma hafa 28 prósent kvenna látið fóstri,
eða fóstureyðing verið framkvæmd hjá
þeim áður. Telja má vafasamt að miða
við þessar tölur, ef meta á tíðni fóstur-
láta ihjá íslenzkum konum, þar sem deild-
in hefur einmitt mikið af slíkum konum
að segja.
Tafla 4 gefur væntanlega nokkuð rétta
mynd af tíðni blæðingaróreglu hjá ís-
lenskum konum. Hér var ekki aðeins
spurt um óreglu á tíðum við skoðun, held-
ur um forsögu tíðaróreglu. Af 600 konum
höfðu 31 ekki haft blæðingar frá síðustu
fæðingu, þegar I. U. D. var sett upp.
Þrjár konur höfðu haft utanlegsfóstur
nokkru áður en þær fengu I. U. D.
TABLE 5
Pelvis examination at admission.
Number Per cent
Uterus enlarged 271 45.2
Uterus normal 329 54.8
Total 600 100.0
Stærð legs var skráð fyrir hverja inn-
lögn á I.U.D. Eins og Tafla 5 sýnir, var
leg stækkað hjá 271 konu, en eðlilegt að
stærð hjá 329.
Innlögn I.U.D. gekk vel hjá 585, en út-
víkkunar á leghálsi var þörf hjá 15 kon-
um.
FYRSTU EFTIRKÖST
Um eina konu er getið, að yfir hana
leið strax eftir aðgerðina, en hún jafnaði
sig fljótt, annars er ekki getið um nein
meiri háttar eftirköst í byrjun, að undan-
teknu því, að allmargar konur 'höfðu mis-
munandi miklar blæðingar fyrstu dagana.
Við eftirrannsókn kom í ljós, að fyrstu 3
mánuðina höfðu 162 konur (27%) auknar
blæðingar, bæði nokkuð óreglulegar og
lengdar í flestum þeim tilvikum. Verkir
fyrst í stað komu í Ijós hjá 12 konum
(2%), en 426 (71%) kvörtuðu ekki yfir
neinum eftirköstum fyrstu mánuðina.
Eftir að meðaltali hálft ár reyndust
blæðingar hafa aukist að lengd hjá 138
konum (23%) og aukist að magni hjá 119
(20%). í flestum tilvikum var um sömu
konur að ræða. Milliblæðingum bar á hjá
35 konum (6%), en verkir, sem taldir
voru við fyrstu eftirskoðun geta stafað
TABLE 6
TABLE4 Menstrual history. Types of I.U.D.
Number Per cent
Number Per cent Lippes loop size II (D) 505 84.2
Normal menstruation 536 89.3 Lippes loop size III (C) 80 13.3
Irregular menstruation 64 10.7 Saf-T-Coil 15 2.5
Total 600 100.0 Total 600 100.0