Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 40
22
LÆKNABLAÐIÐ
Ábyrgðarmaður Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri
1. RAÐSTEFNA ALPJÓÐAHEILBRIGÐIS-
MÁLASTOFNUNARINNAR 11.—15. NÓV.
1974 UM NÝJUNGAR Á SVIÐI
MÆÐRAVERNDAR OG UNGBARNA-
VERNDAR (NEW TRENDS IN MATERNAL
AND CHILD HEALTH.
Til þessarar ráðstefnu hafði verið boðið
einum fulltrúa frá hverju landi innan Evrópu-
svæðisins. Auk þess hafði verið boðið full-
trúum frá öðrum svæðum og voru nokkrir
þátttakendur þaðan. Pátttakendur voru alls
70—80, þar af 41 virkur þátttakandi frá 33
löndum, 15 ráðgjafar frá Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni, 4 fulltrúar alþjóðasamtaka,
8 áheyrnarfulltrúar og 8—10 starfsmenn
skrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar í Kaupmannahöfn.
Pátttakendur gistu allir í Hotel Russia,
sem er eitt af stærstu hótelum veraldarinn-
ar.
Öll skipulagning og fyrirkomulag ráðstefn-
unnar var með miklum ágætum og hafði
verið stjórnað af sérstakri móttökunefnd,
sem sá um alla móttöku frá því að gestir
komu á flugvöll og þar til þeir fóru burt aft-
ur, og af skrifstofu Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar í Kaupmannahöfn.
Fyrsti dagur dvalarinnar var ekki notaður
til ráðstefnuhalds, heldur notaður til að sýna
stofnanir, bæði fæðingar- og kvensjúkdóma-
deildir og barnadeildir, svo og sérstakar
rannsóknastofnanir á þessum sviðum. Þátt-
takendum var gefinn kostur á að velja stofn-
anir og var skipt niður í tvo hópa, eftir því
hvort þeir höfðu meiri áhuga á barnasjúk-
dómum eða fæðingarhjálp og síðan enn í tvo
hópa eftir því, hvort þeir töluðu ensku eða
frönsku.
Undirritaður kaus að skoða fæðingar- og
kvensjúkdómadeildir og ransóknarstofnanir
þar að lútandi og voru eftirfarandi deildir
skoðaðar:
1. Maternity Hospital nr. 26.
2. Women's Consulting Center á sama spít-
ala (nr. 26].
3. Department of Development of Obstetrics
and Gynaecology í sjúkrahúsi nr. 67.
4. Rannsóknarstöðin All Union Research
Institute of Obstetrics and Gynaecology
USSR Ministry of Health.
Gengið var í gegnum deildir spítala og
stofnana og forstöðumenn skýrðu frá gangi
mála og hvernig fyrirkomulag væri. Skýrt var
frá því að öll þjónusta í Sovétríkjunum við
mæður og börn hefði haft sérstakan for-
gang í heiIbrigðiskerfinu. Allt er skipulagt
ofan frá og allt er rekið af sambandsríkjun-
um. Sérstakur aðstoðarráðherra fer með
mæðra- og ungbarnamál, þ.e.a.s. þau mál
sem eru sameiginleg fyrir öll lýðveldin 15.
Aðalverkefni rannsóknarstofnananna er að
prófa nýjar aðferðir við rannsóknir og með-
ferð. T.d. var sýnd sérstök deild fyrir van-
færar konur með hjartasjúkdóma af ýmsu
tagi og kom í Ijós, að hjartasjúkdómar, eink-
um af gigtskum uppruna eru allalgengir og
telja þeir sig hafa komist langt í því, að geta
leyft slíkum konum að ganga með börn.
Á móttökudeildum eru síðan sérstakar
undirdeildir, sem taka á móti konum með
sérstaka sjúkdóma, svo sem sykursýki,
nýrnasjúkdóma, hjartasjúkdóma o.s.frv.
Á fæðingardeild er venjulega einn starf-
andi læknir fyrir hverjar 4000 konur á upp-
tökusvæðinu yfir 18 ára aldur. Á sjúkrahúsi
nr. 26 voru 225 sjúkrarúm og 5000 fæðingar.
Þar starfa 33 kvensjúkdóma- og fæðingar-
læknar, 18 barnalæknar, 33 sérmenntaðar
hjúkrunarkonur. Par eru stöðugt á vakt 3