Læknablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
17
TABLE 9
Duration of time of use of I. U. D. until
spontaneous expulsion or removal.
Length of time Number of cases Women months
Less than 2 mths 6 6
2— 6 months 14 42
6—12 — 24 216
1— 2 years 35 630
2—3 — 31 930
3—4 — 20 840
4 years and more 5 270
Total 135 2932
lægt. Blæðingar eru oft auknar aðeins
fyrstu mánuðina, en lagast smám saman.
Ennfremur fá að sjálfsögðu konur með I.
U. D. blæðingaóreglu af öðirum ástæðum.
Á seinni árum hefur það orðið æ sjald-
gæfara, að I. U. D. hafi verið tekið vegna
blæðinga. Reynt er fyrst að draga úr þeim
með lyfjum, og tekst oft, nema um aðrar
ástæður (t. d. hyperplasia endometrii) sé
að ræða. Meðan óvissa ríkti um tíðni eftir-
kasta við I. U. D. var vafalaust oftar hætt
við notkun en ástæða var til. Þannig
fannst engin sérstök ástæðia fyrir því, að
notkun var hætt hjá 17 konum. Við nán-
ari eftirgrennslan hjá þeim voru ástæður
taldar aðrar en vandkvæði við notkunina.
Sumar komu til annarra lækna, sem tor-
tryggðu notkun I. U. D. og töldu rétt að
losa þær við svona aðskotahlut. í nokkr-
um tilvikum höfðu konur verið innlagðar
vegna bráðra verkja í kviðarholi, I. U. D.
verið strax tekið, en konan reyndist vera
með botnlangabólgu, eða aðra kviðarhols-
sjúkdóma en frá I. U. D. gátu stafað.
Nokkrar konur ,,’höfðu heyrt, að lykkjan
væri skaðleg“ og þorðu ekki að hafa 'hana
lengur o. s. frv.
Hjá sex konum var I. U. D. ekki þörf
lengur vegna aðgerða, sem 'höfðu ófrjó-
semi í för með sér (hysterectomia, salp-
ingectomia og því um líkt), eða vegna láts
maka.
Hjá allmörgum konum var ekki þörf
getnaðarvarna um tímabil, m. a. vegna
lengri fjarveru maka, og létu þær fjar-
lægja I. U. D. Ýmsum var ráðlagt af öðr-
um læknum að „hvíla sig á lykkjunni“,
eða skipta um og fá nýja. Sýnir Tafla 8
fjölda þeirra einnig.
Tímalengd notkunar hjá þeim konum,
sem fengu I. U. D. fjarlægt eðia gekk sjálf-
krafa niður er sýnd í Töflu 9.
SAMANBURÐUR Á LIPPES LOOP
NO. II OG NO. III
Fyrstu 2—3 árin var Lippes loop af
stærðinni No. II (D) nær eingöngu notað,
en síðan stærð No. III (C). Þótt síðari
stærðin væri notuð í aðeins 80 tilfellum,
var gerður samanburður á þessum tegund-
um, 'hvað eftirköst snerti eða öryggi í notk-
un. Athugun var gerð á blæðingum og
öðrum kvörtunum. Lippes loop No. III
brást í tveim tilvikum, gekk sjálfkrafa
niður hjá þrem. Reyndist árangur vera sá
sami við báðar tegundir. Hvergi marktæk-
ur munur hvað öryggi eða eftirköst snerti.
Saf - T - Coil var notuð aðeins í 15 til-
fellum, því ekki gerð sérstök könnun á
eftirköstum við notkun þeirrar tegundar.
Brást þessi tegund hjá einni konu og gekk
niður hjá annarri. Síðari athuganir gefa
til kynna, að gildi þessarar tegundar sé
svipað og áðurnefndra tegunda Lippes
loop.
TABLE 10 (Borell, 1966)
Pregnancy Rates (According to Pearl‘s
Formula) for Various Methods of
Contraception.
Method Pregnancy Rate
Contraception not practised 80 — 100
Rythm Method 14 — 35
Coitus interruptus 3 — 38
Douche 18 — 36
Condom 11 — 28
Diaphragm 8 — 33
Suppositories 8 — 42
Vaginal Foam Tablets 12 — 43
Jellies and Creams 8 — 38
Sponge and Foam Powder 28 — 33
Oral C.ontraceptives 0 — 2.7
Intra — Uterine Contra-
ceptive Devices 0.9 — 6.0