Læknablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 76
172
LÆKNABLAÐIÐ
1 NÁMSÁR.
Innganqur ad li'ffœra- og lífedlisfrœdi Líffœrafrœdi
Almenn efnafrœdi og efnagreining Lífrœn efnafrœdi
Edlisfrœdi
Forspjallsvísindi
2. NÁMSÁR
Li'fedlisfrœdi
Li'fefnafrœdí
Li'ffœrafrœdi
Tolfrœdi, sólarfraedi. heimilislœknisfrcedi (heilsugœslugreinar?)
3.NÁMSÁR.
Líffœrameinafrœdi
Lyfja- og eiturefnafrœdi
Sýkla- og ónœmisfraedi
Heimilislœknisfrœdi. handlœknisfrcedi, lyflœknisfrœdi
4. NÁMSÁR
Svœf i ngalœk nisf rcedi Augnsjúkdómar Hdls, nef og eyrnasjúkdómar Húd- og kyncjúkdo'mar S\Æefingalœknisfrcedi
Handlœknisfrœdi Handlœknisfrœdi
Lyflœknisfrœdi Lyflœknisfrœdi
Heimilislœknisfrœdi Heimilislœknisfrœdi
Geislalœknisfrcedi
5. NÁMSÁR.
B a r n asj ú kdómaf rcedi
Fœdingar- og kvensjúkdómafrcedi
Gedlœknisfrœdi
Heila- og taugasjúkdómafrœdi
Heimilislœknisfrccdi
6. NÁMSÁR.
Heilbrigdisfrcedi
Endurhœfingarfrœdi
Félagslœknisfrœdi
Réttarlœknisfrœdi
Handlœknis- og lyflœknisfrœdi
Heimilislœknisfrœdi
Skriflegt og/eða verklegt próf í heim-
ilislækningum verði í lok sjötta árs.
Breyta þarf reglugerðarákvæði um að
kennslan skuli fara fram á sjötta náms-
ári, á þann veg að heimilað sé að hefja
kennslu í heimilislæknisfræði á öðru náms-
ári. Eins og er verður kennslan samkvæmt
reglugerð að fara fram á sjötta ári og legg-
ur nefndin til að þetta verði gert með því
að tekið verði upp 3ja vikna verklegt nám
á heilsugæslustöð og kennsla í fyrirlestrum
og umræðuhópum alls 20 kennslustundir.
Verklegt próf í greininni fari síðan fram í
lok sjötta árs eins og á er kveðið um í
reglugerð.
Nefndin getur ekki stutt hugmyndir er
komið hafa fram um að verklega námið í
heimilislæknisfræði fari fram að sumar-
lagi. Á þeim tíma fer starfsemi flestra 'heil-
brigðisstofnana verulega úr skorðum vegna
sumarleyfa og þess lítil von, að lækna-
nemum verði á þeim tíma veitt sú um-
sjón og kennsla, sem nauðsynleg er til þess
að nám þeirra nái tilgangi sínum.
KENNSLUSTAÐIR í HEIMILISLÆKNIS
FRÆÐI
Nefndin er sammála því áliti sem þegar
hefur kemið fram3 4 að æskilegast væri að
kennslan færi að verulegu leyti fram á
heimilislækningastöð (eða heilsugæslu-
stöð) er væri stjórnað af læknadeild Há-
skóla íslands. Hins vegar er ljóst að svo
getur ekki orðið í bráð, þar sem ennþá hef-
ur lítið ef nokkuð verið gert til að hrinda
hugmyndinni um slíkar stöðvar í fram-
kvæmd. Nú verður kennslan því að fara
fram á öðrum heilsugæslustöðvum, þar
sem varla er að vænta að einstakir heim-
ilislæknar utan heilsugæslustöðva geti tek-
ið að sér kennslu, nema e.t.v. að mjög tak-
mörkuðu leyti. Kennslan krefst verulegrar
undirbúningsvinnu og telur nefndin að
læknadeild þurfi sem allra fyrst að leita
fyrir sér um samninga við væntanlegar
kennsluheilsugæslustöðvar um:
1. Stjórnunarleg tengsl Háskóla íslands og
kennsluheilsugæslustöðvar.
2. Ráðningu sameiginlegs starfsliðs og
starfsaðstöðu þess.
3. Hvaða kostnaðarliði Háskóli íslands
skuli taka að sér.