Læknablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ
157
til orða: „This poor outloo'k makes an
operative mortality of 5% a small price to
pay for the greatly increased security after-
wards“. Aðrir telja þó að viðunandi dánar-
tala (acceptable mortality) við einföld ós-
æðarþrengsli (uncomplicated coarctaticn)
ætti ekki að vera hærri en 2% (Spittell).1:!
Dánartala eftir uppskurð er nokkuð mis-
munandi í þeim skýrslu.m, sem komið hafa
út og fer m.a. eftir aldursdreifingu sjúk-
linganna, einkum hvort mikið hafi verið
um smábörn. Árið 1957 söfnuðu Rumel"
og samstarfsmenn hans upplýsingum um
1601 sjúkling víðs vegar að og fundu að
dánartala eftir uppskurð var 8,6%. Hún
var 6,8% hjá sjúklingum milli 4 og 15 ára
aldurs en töluvert hærri hjá þeim sem
voru undir þriggja ára aldri eða yfir þrí-
tugt. Hjartabilun, niðurbrot á æðatengsl-
um (disruption of anastomosis), hjarta-
stanz og blæðing við aðgerð ollu 79,2%
dauðsfallanna.
Árið 1968 safnaði Schumacker1- u.pplýs-
ingum um 1144 sjúklinga, sem greint hafði
verið frá í læknaritum, og fann að dánar-
tala við einföld ósæðarþrengsli var 4,5%,
við ósæðarþrengsli samfara öðrum minni
háttar galla svo sem opinni slagpípu
13,3%, við ósæðarþrengsli samfara öðrum
meiri háttar hjartagalla 60,1% og við ós-
æðarþrengsli með ósæðargúl 15,6%.
Þó að stundum þurfi að skera upp smá-
börn strax snemma á fyrsta ári vegna ó-
viðráðanlegrar hjartabilunar, er að jafn-
aði talið bezt að fresta aðgerð' þangað til
sjúklingur er að minnsta kosti 4 ára
(Spittell).13 Ef uppskurður er gerður of
snemma er hætta á að þrengsli taki sig
upp aftur þegar barnið vex. Margir telja
að bezti aldurinn til uppskurðar sé frá 6
til 16 ára (Bahnson).-
Sérstæð áföll (complications) eftir upp-
skurð við ósæðarþrengslum eru æðaþels-
bólga (necrotizing arteritis), sem einkum
kemur fram í kviðarholsæðum og getur
valdið drepi í görn, og lömun (paraplegia),
sem stafar af ónógri blóðrás í mænuæðum
(anterior spinal artery) sennilega vegna
þess að mikilvægar fylgiæðar (collaterals)
svo sem rifjaslagæðar (intercostals) hafa
verið teknar í sundur við aðgerðina. Þó að
báðum þessum áföllum hafi verið lýst
nokkrum sinnum eru þau afar sjaldgæf.
Ef sjúklingur er skorinn upp sem smábarn
geta þrengsli tekið sig upp aftur þegar
barnið vex, einkum ef æðatengslin hafa
verið gerð með áframhaldandi saum
(Iberra-Peres).0
Góður árangur er talinn vera af aðgerð-
inni ef sterkir púlsar koma í fætur og
blóðþrýstingur í handleggjum fellur. Hjá
þeim 1601 sjúklingi, sem Rumel11 safnaði
upplýsingum um varð blóðþrýstingur eðli-
legur hjá 72% cg lækkaði hjá 23,2% til
viðbótar, án þess þó að ná eðlilegum mörk-
um.
Þar sem aðeins eru liðin. rúm 30 ár síðan
farið var að skera upp við ósæðarþrengsl-
um, er ekki vitað hvort sjúklingur, sem
skorinn hefur verið upp með, að því_er
virðist, góðum árangri, hafi sömu horfur
og heilbrigður jafnaldri hans. Þar sem
sjúklingar með ósæðarþrengsli hafa marg-
ir tvíblaða ósæðarloku (aortic valve) má
búast við aukinni tíðni á hjartaþelsbólgu
(endocarditis) hjá þeim. Tíðni heilablæð-
inga kann einnig að vera aukin, hjá þeim,
þar sem margir hafa litla æðagúla (ane-
urysms) á heilaæðum (Campbell).1
SAMANTEKT
Lýst er þremur fyrstu sjúklingunum,
sem skornir voru upp við ósæðarþrengsl-
um á íslandi. Árangur varð góður þar sem
sterkir púlsar komu í fætur og blóðþrýst-
ingur féll hjá þeim öllum. Sjúklingarnir
eru á lífi og við góða heilsu 3V2 til rúmu
5V2 ári eftir uppskurð. Leiðslutruflun í
hjarta, sem uppgötvaðist hjá einum sjúk-
linganna 5V2 ári eftir aðgerð er í er.gum
tengslum við ósæðarþrengslin eða upp-
skurðinn.
Nokkrir þættir varðandi meðfædd ós-
æðarþrengsli eru ræddir.
SUMMARY
The first three cases of coarctation of the
aorta operated in Iceland are described. The
patients were three boys, aged 10, 16 and 17
years. They were operated in the period from
July 20th, 1971, to November 6th, 1973, and
all dismissed without compiications on the 14th
postoperative day. In all cases the coarcted
segment was resected and end to end anasto-
mosis of the aorta performed. Good results
were obtained since blood pressure in the
arms fell in all cases and strong pulses appeared