Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1977, Page 53

Læknablaðið - 01.08.1977, Page 53
LÆKNABLAÐIÐ 157 til orða: „This poor outloo'k makes an operative mortality of 5% a small price to pay for the greatly increased security after- wards“. Aðrir telja þó að viðunandi dánar- tala (acceptable mortality) við einföld ós- æðarþrengsli (uncomplicated coarctaticn) ætti ekki að vera hærri en 2% (Spittell).1:! Dánartala eftir uppskurð er nokkuð mis- munandi í þeim skýrslu.m, sem komið hafa út og fer m.a. eftir aldursdreifingu sjúk- linganna, einkum hvort mikið hafi verið um smábörn. Árið 1957 söfnuðu Rumel" og samstarfsmenn hans upplýsingum um 1601 sjúkling víðs vegar að og fundu að dánartala eftir uppskurð var 8,6%. Hún var 6,8% hjá sjúklingum milli 4 og 15 ára aldurs en töluvert hærri hjá þeim sem voru undir þriggja ára aldri eða yfir þrí- tugt. Hjartabilun, niðurbrot á æðatengsl- um (disruption of anastomosis), hjarta- stanz og blæðing við aðgerð ollu 79,2% dauðsfallanna. Árið 1968 safnaði Schumacker1- u.pplýs- ingum um 1144 sjúklinga, sem greint hafði verið frá í læknaritum, og fann að dánar- tala við einföld ósæðarþrengsli var 4,5%, við ósæðarþrengsli samfara öðrum minni háttar galla svo sem opinni slagpípu 13,3%, við ósæðarþrengsli samfara öðrum meiri háttar hjartagalla 60,1% og við ós- æðarþrengsli með ósæðargúl 15,6%. Þó að stundum þurfi að skera upp smá- börn strax snemma á fyrsta ári vegna ó- viðráðanlegrar hjartabilunar, er að jafn- aði talið bezt að fresta aðgerð' þangað til sjúklingur er að minnsta kosti 4 ára (Spittell).13 Ef uppskurður er gerður of snemma er hætta á að þrengsli taki sig upp aftur þegar barnið vex. Margir telja að bezti aldurinn til uppskurðar sé frá 6 til 16 ára (Bahnson).- Sérstæð áföll (complications) eftir upp- skurð við ósæðarþrengslum eru æðaþels- bólga (necrotizing arteritis), sem einkum kemur fram í kviðarholsæðum og getur valdið drepi í görn, og lömun (paraplegia), sem stafar af ónógri blóðrás í mænuæðum (anterior spinal artery) sennilega vegna þess að mikilvægar fylgiæðar (collaterals) svo sem rifjaslagæðar (intercostals) hafa verið teknar í sundur við aðgerðina. Þó að báðum þessum áföllum hafi verið lýst nokkrum sinnum eru þau afar sjaldgæf. Ef sjúklingur er skorinn upp sem smábarn geta þrengsli tekið sig upp aftur þegar barnið vex, einkum ef æðatengslin hafa verið gerð með áframhaldandi saum (Iberra-Peres).0 Góður árangur er talinn vera af aðgerð- inni ef sterkir púlsar koma í fætur og blóðþrýstingur í handleggjum fellur. Hjá þeim 1601 sjúklingi, sem Rumel11 safnaði upplýsingum um varð blóðþrýstingur eðli- legur hjá 72% cg lækkaði hjá 23,2% til viðbótar, án þess þó að ná eðlilegum mörk- um. Þar sem aðeins eru liðin. rúm 30 ár síðan farið var að skera upp við ósæðarþrengsl- um, er ekki vitað hvort sjúklingur, sem skorinn hefur verið upp með, að því_er virðist, góðum árangri, hafi sömu horfur og heilbrigður jafnaldri hans. Þar sem sjúklingar með ósæðarþrengsli hafa marg- ir tvíblaða ósæðarloku (aortic valve) má búast við aukinni tíðni á hjartaþelsbólgu (endocarditis) hjá þeim. Tíðni heilablæð- inga kann einnig að vera aukin, hjá þeim, þar sem margir hafa litla æðagúla (ane- urysms) á heilaæðum (Campbell).1 SAMANTEKT Lýst er þremur fyrstu sjúklingunum, sem skornir voru upp við ósæðarþrengsl- um á íslandi. Árangur varð góður þar sem sterkir púlsar komu í fætur og blóðþrýst- ingur féll hjá þeim öllum. Sjúklingarnir eru á lífi og við góða heilsu 3V2 til rúmu 5V2 ári eftir uppskurð. Leiðslutruflun í hjarta, sem uppgötvaðist hjá einum sjúk- linganna 5V2 ári eftir aðgerð er í er.gum tengslum við ósæðarþrengslin eða upp- skurðinn. Nokkrir þættir varðandi meðfædd ós- æðarþrengsli eru ræddir. SUMMARY The first three cases of coarctation of the aorta operated in Iceland are described. The patients were three boys, aged 10, 16 and 17 years. They were operated in the period from July 20th, 1971, to November 6th, 1973, and all dismissed without compiications on the 14th postoperative day. In all cases the coarcted segment was resected and end to end anasto- mosis of the aorta performed. Good results were obtained since blood pressure in the arms fell in all cases and strong pulses appeared
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.