Læknablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 56
160
LÆKNABLAÐIÐ
kvartaði hún um verki i h. síðu, sem
smáversnuðu. Lungnamynd á 3. degi
eftir svæfingu sýndi pneumothorax h-
megin.
2. Sextíu og þriggja ára kona, sem stór-
reykti, en hafði ekki sögu um lungna-
sjúkdóm. Lungnamynd var eðlileg fyrir
svæfingu vegna gallblöðruaðgerðar. Um
5 klst. eftir aðgerð er tekið eftir, að
konam er með emphysema subcutanea,
sem fer versnandi. Lungnamynd sýndi
pneumothorax h. megin.
3. (Sextíu og fimm ára kona með margra
ára sögu um asthma bronchialis og mik-
ið emphysema pulmonum. Gerð var
gallblöðruaðgerð í svæfingu. Er húm
vaknaði, kvartaði hún yfir verk h. meg-
in i brjósti. Lungnamynd sýndi pneumo-
thorax þeim megin.
Önnur þrjú tilfelli voru eftir meðferð í
öndunarvél (respirator). í einu tilviki var
gerður barkaskurður (traoheostomia) fyr-
ir meðferð í öndunarvél, í hinum tilfellun-
um var notuð barkaslaniga. Hjá öllum
þremur var pneumothorax staðfestur með
lungnamynd ininan sólarhrings, frá því er
meðferð hófst:
1. Sjötíu og sex ára karl með margra ára
sögu um bronchitis ohronica og endur-
te'knar lungnabólgur. Hann kom inn
vegna öndunarerfiðleika og var strax
eftir komu settur í öndunarvél. Ekki
var tekin lungnamynd áður, en lungna-
mynd tekin mörgum klst. síðar sýndi
pneumothorax h. megin og bólgur í
lungum. Þessi sjúklingur dó nokkrum
dögum síðar af völdum sjúkdóms síns.
2. Tuttugu og fimm ára karl með alvarlega
höfuðáverka eftir bílslys. Hann var sett-
ur í öndunarvél strax eftir komu og var
lungnamynd þá eðlileg. Næsta dag var
gerð höfuðaðgerð í svæfingu, sem stóð
um 3% klst. Síðan var hann áfram öðru
hverju í öndunarvél. Morguninn eftir að-
gerð sýndi lungnamynd pneumothorax
v. megin. Sjúklingur þessi lézt af völd-
um höfuðáverkans.
3. Tuttugu og tveggja ára karl með poly-
neuritis (Guillen-Barré syndrom) var
lagður inn vegna öndunarerfiðleika, sem
fóru vaxandi eftir komuna á sjúkrahús-
ið, og var hann settur í öndunarvél.
Lungnamynd þá var eðlileg. Um 20 klst.
eftir að meðferð hófst, sýndi lungna-
mynd pneumothorax h. megin.
Næst er hópur 8 sjúklinga, þar sem nálar
eða katheter hafa orsakað pneumothorax.
Þar eru 5 sjúklingar, 3 konur og 2 karlar,
sem fá pneumothorax eftir staðdeyfingu
á taugum. Fjórir eru á aldrinum 20—30
ára, en einn er 58 ára. Þessir sjúklingar
fengu allir verk í brjóstholið, á meðan á
deyfingu stóð eða strax á eftir. Hjá tveim-
ur var pneumothorax staðfestur innan 24
klst., hjá þremur eftir einn eða fleiri daga
frá aðgerð. Deyfingar þessar voru bæði h.
og v. megin, bæði þegar um var að ræða
plexus deyfingar og deyfingar á millirifja
(intercostal) taugum.
Sjúklingurinn, sem gerð var á á-
stunga á lunga til sýnitöku (lungna-
biopsia), var 62 ára karl með hnút
í h. lunga, sem reyndist vera krabbamein.
Hann fékk strax eftir aðgerðina óþægindi
h. megin í brjóstholið, sem fóru smáversn-
andi. Lungnamynd þremur dögum síðar
sýndi pneumothorax h. megin.
Á 52 ára konu, sem gerð hafði verið á
mastectomia bilateralis og var komin með
carcinosis pleurae með hydrothorax báðum
megin auk meinvarpa í báðum lungum,
var gerð brjóstholsástunga (thoracocen-
tesis) h. megin. Hún fékk hósta og verk í
brjóstholið, strax meðan verið var að taka
vökvann. Lungnamynd um 3 klst. síðar
sýndi pneumothorax h. megin.
Loks var 64 ára karl, sem fékk pneumo-
thorax v. megini eftir þræðingu með kat-
heter í vena subclavia sin.
Sjúklingarnir tveir, sem fengu hjarta-
hnoð, voru konur og báðar 62 ára. Hjá
annarri þeirra sást auk pneumothorax v.
megin brot á CII sömu megin að framan-
verðu, en lungnamyndin var tekin nokkr-
um klst. eftir meðferð. Hin konan kvartaði
um andþrengsli og verki v. megin í brjósti
fljótlega eftir að hún kom til meðvitundar.
Lungnamynd næsta dag sýndi pneumo-
thorax v. megin, en ekkert rifbeinsbrot.
Þessi kona var líka sprautuð með Nora-
drenalin inn í hjartavöðva (intracardialt),
en sú meðferð gæti einnig hafa valdið
þessum pneumothorax.
Hjá þessum sjúklingum — nema einum
— var lagður inn keri (draine) í brjósthol-