Læknablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐiÐ 139
Fjöldi
að fyrstu árin var drukkið kvöldstund um
helgar. Síðan koma afréttarar að morgni
og loks stöðug drykkja dögum saman, túra-
drykkja í 3—5 daga og upp í margra vikna,
jafnvel margra mánaða samfellda drykkju.
Tafla 5 sýnir hve lengi þessir 66 sjúk-
lingar hafa neytt áfengis i óhófi, skipt
eftir aldursflokkum. Taflan sýnir, að 34
af 66 sjúklingum hafa neytt áfengis í óhófi
í að minnsta kosti 20 ár áður en þeir fengu
delirium tremens. Hjá 7 sjúklingum er tal-
að um margra ára daglega áfengisneyslu í
minna mæli (minna áfengismagn á dag,
ekki nánar upplýst). Hjá einni konu er að-
eins getið um stöðuga bjórdrykkju í mörg
ár. Nánari upplýsingar skortir varðandi 4
sjúklinga.
í flestum tilfellum, þar sem heimildir
liggja fyrir, er um að ræða neyslu sterkra
drykkja. Upplýsingar um, hversu mikils
magns hefur verið neytt að jafnaði fyrir
komu, eru varla áreiðanlegar, nema hjá
helming sjúklinganna. Þeir hafa drukkið
1 til IV2 flösku af sterku áfengi á dag.
Jafnvel í þessum hópi er þó tilhneiging hjá
sjúklingunum sjálfum til að gera minna úr
magni þess áfengis, sem þeir hafa neytt
miðað við upplýsingar, sem hafa borist frá
nánustu aðstandendum. Meiri hluti sjúk-
linganna, þ.e. 59 af 78, sem innlagðir hafa
verið á Kleppsspítalann á árunum 1960 til
1974, hafa samkvæmt sjúkraskrám neytt
mikils magns áfengis samfleytt í að
minnsta kosti 10 daga fyrir komu á spítal-
ann. Hjá flestum sjúklinganna hefur deliri-
um tremens komið skyndilega 2—3 dög-
um eftir að þeir 'hættu áfengisneyslunni.
Tímalengdin er breytileg, allt frá V2 og
upp í 7 sólar'hringa. 'Hjá 60 sjúklingum þar
sem vitað er með nokkurri vissu hvenær
drykkju var hætt, er meðaltíminn þar til
þeir fengu delirium tremens 2,2 sólar-
hringar. Óráðið stóð frá tæpum einum og
upp í fimm sólarhringa, þ.e. þangað til sjúk-
lingurinn var orðinn fyllilega áttaður og
án ofskynjana eða ranghugmynda. Tíminn
sem óráðið stóð hefur verið skráður hjá
TAFLA5
Aldursdreifing og tímalengd óhóflegrar
áfengisneyslu fyrir fyrstu komu
Aldursfl. <9ár 10-19 ár >20 ár Samt.
20-29 1 1 0 2
30-39 2 13 0 15
40-49 9 2 20 31
50-59 4 0 11 15
60-69 0 0 3 3
Alls: 16 16 34 66