Læknablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ
145
Viðar Hjartarson, læknir ENFLURANE, NÝTT SVÆFINGALYF1 NIÐURSTAÐA ATHUGUNAR 50 SJÚKLINGA
jr—^roli)
Enfluran (Ethrane (R)) er svæfingarlyf
til innöndunar, sem fyrst var notað árið
1967 og nefndist <þá Ohio compound 347.8 4
í Bandaríkjunum og Kanada hefur notkun
lyfsins aukist mikið, einkum síðustu 2—3
árin, og sömu sögu mun vera að segja frá
nokkrum Evrópulöndum.
Efnafræðileg bygging, eðlisfræðilegir
eiginleikar
Enfluran er litlaus vökvi með mildri
eterlykt og án sprengihættu. Lyfið er
,,halogenerað“ metyl-etyl eter og líkist að
efnafræðilegri byggingu öðru svæfingalyfi,
metoxyfluran, (Penthrane (R)), mynd 1.
Ýmsir eðlisfræðilegir eiginleikar enflur-
ans eru þó mun líkari halotani (Fluotan
(R)), en metoxyflurani.
Hinn lági uppleysanlei'ki lyfsins í blóði
veldur skjótari verkun (induction) og sjúk-
lingarnir vakna fyrr en eftir halotan svæf-
ingu. Enfluran skilst út að langmestu leyti
um lungu, óbreytt. Aðeins 2,5—3,0% skilj-
ast út með þvagi, sem fluorin (F-), aðal-
lega í lífrænu formi.0
Efniviður og aðferðir
50 sjúklingar, á aldrinum 2V2 mánaðar
til 87 ára voru svæfðir með enfluran. Með-
alaldur 37 ár. Karlmenn voru 30, konur 20.
1. Frá University of Wisconsin Hospitals,
Department of Anesthesiology.
Forstöðum.: próf. S. Craighead Alexander,
Madison, Wisconsin, U.S.A.
F F F H
F F Cl H
Líkamlegt ástand fyrir aðgerð (samkvæmt
flokkun ameríska svæfingalæknasam-
bandsins): 24 í flokki I, 15 í II, 9 í III, 2 í
IIIE. Lengsta svæfing var 5 klst. og 5 mín.,
stysta 30 mín. Meðallengd svæfingar 2 klst.
og 15 mín. Aðgerðir vegna bæklunarsjúk-
dóma voru 16, lýtalækningaaðgerðir 10,
augnaðgerðir 8, kviðabholsaðgerðir 8, heila-
aðgerðir 4 og aðgerðir vegna kvensjúk-
dóma 4. í lyfjaforgjöf fengu 36 morfín og
atropín, 9 valíum og atropín, 5 eingöngu
atropín. Allir sjúklingarnir voru tengdir
hjartariti og hlustað var stöðugt eftir hjart-
slætti með hlustunartæki í vélinda (algeng-
ast) eða hlustunartæki á bringu. Blóðþrýst-
ingur var mældur 5. hverja mínútu og oft-
ar þætti ástæða til. Fylgst var með breyt-
ingum á líkamshita. Hlutfall súrefnis í inn-
öndun var ákveðið með sérstökum súr-
efnismæli. Öndunarrúmmál (tidal volume)
og mínúturúmmál var mælt með Dráger
eða Ohio öndunarmæli. Taugaörvi (peri-
pheral nerve stimulator) var notaður í lok
aðgerða þar sem pancuronium hafði verið
gefið. Notað var hálfopið hringrásarkerfi
með kalki í 46 tilfellum, en Jackson Rees
endurbót á Ayre’s T kerfi 4 sinnum.
„Copper Kettle“ gufari, (vapouriser)
breytti vökvaformi enflurans í gufu. Hlut-
fall glaðlofts (N20) og súrefnis var að
jafnaði 2:1. Svæfing var hafin með thio-
pental í æð 42 sinnum, 3svar með ketamín í
vöðva og 5 sinnum var eingöngu notað
enfluran, NaO og 02. Fjörutíu sjúklingar
F Cl F Br
II II
0 — C— C—H F — C — C — H
II II
F Cl F ci
Enflurane
Methoryflurane
Halothane