Læknablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 14
130
LÆKNABLAÐIÐ
ritum, 'þar sem menn greinir á hvað telja
beri „þögla“ gallsteina.® Margir höfundar
telja gallsteina þögla þrátt fyrir óljós melt-
ingaróþægindi (indigestion),22 en aðrir
krefjast, að til þess að kalla megi gallsteina
þögla, eigi alls engin meltingaróþægindi að
vera til staðar. Höfundar þessarar greinar
aðhylltust síðarnefndu skilgreindngunni
fyrir þögla gallsteina,
Á hinn bóginn þótti hagkvæmt að greina
á milli óljósra meltingarkvartana (fl. II)
og dæmigerðra gallsteinaeinkenna (fl. I),
þegar flokka skyldi einkenni þau, er sjúk-
lingar með þögla gallsteina fengu á tíma-
bilinu. Meðal ástæðna fyrir þessari skipt-
ingu var, að ýmsir læknar, bæði lyflækn-
ar og skurðlæknar, rekja óljós „dyspeptisk“
einkenni til gallsteina og mæla með aðgerð
á þeim grundvelli. Eins og fram kemur í
þessari athugun, gengust nokkrir sjúkling-
anna undir aðgerð með óljós einkenni og
héldu langflestir áfram að hafa sömu ein-
kenni eftir aðgerðina. Höfundar þessarar
greinar fylgdu eftir slíkum sjúklingum
með ódæmigerð einkenni, fl. II, fyrir og
eftir aðgerð í annarri hliðstæðri athugun
og fundu, að ekkert samband virtist milli
steina og ódæmigerðra einikenna (fl. II), í
allflestum tilvikum.4
I þessu sambandi er brýn þörf að minn-
ast þess, að nákvæm sjúkrasaga og túlkun
á einkennum er afar mikilvæg, þegar um
er að ræða „retrospectiva“ rannsókn og
gallar á slíkri rannsókn eru höfundum
þessarar greinar vel ljósir.’1 3:1
Tíðni þögulla gallsteina
Af ofangreindum ástæðum greinir menn
á um tíðni þögulla gallsteina, einkum þeg-
ar tekið er mið af raunverulegri tíðni gall-
steina skv. krufningaskýrslum. Algengi
gallsteina í Bandaríkjunum hefur verið tal-
in um 11%, vaxandi með aldrinum.(! í
tveimur krufningarannsóknum reyndist
tíðni (incidence) þögulla gallsteina 38,8%
og 61%. 19 28 Enn aðrar krufningarannsókn-
ir hafa sýnt tíðni þögulla gallsteina allt að
77%.3 Þessa síðastnefndu háu tíðni má
sumpart skýra með ónákvæmri vitneskju
um einkenni sjúklinganna í lifanda lífi.
í „kliniskum" rannsóknum hefur tíðni
(incidence) þögulla gallsteina reynzt frá
6,5% upp í 64,2%, hin síðastnefnda frá
karlmönnum einvörðungu.18 20 23 36 Við
fundum 155 sjúklinga með þögla gallsteina
af 965 sjúklingum eða um 16% skv. fyrr-
greindri skilgreiningu um þögla steina.
Augljóst er af ofanskráðu, að gallsteinar
meðal fólks eru mjög algengir og þar af
fylla þöglir gallsteinar drjúgan hóp.
Hve margir fá einkenni
Yfirlit yfir læknisfræðileg rit leiðir i
Ijós, að um 50% af sjúklingum upphaflega
með þögla gallsteina, fá einhver einkenni
frá meltingarfærum, þar af um 20% dæmi-
gerð einkenni (fl. I), og 30% óljós eða ó-
dæmigerð einkenni (fl. II). í einni rann-
sókn kom fram, að 12 af 77 karlmönnum
með þögla gallsteina eða 15,4% fengu
gallkveisu (colik) (fl. I).(! Önnur rannsókn
á 781 sjúklingi með væg eða engin ein-
kenni leiddi í ljós, að 35% þeirra fengu
alvarlegri einkenni fá einu til 11 árum frá
greiningu.35 Þessar síðastnefndu tölur eru
þó ekki alveg sambærilegar, þar sem ekki
var tekið tillit til einkenna þeirra, sem
þessir sjúklingar höfðu í byrjun athugun-
arinnar, þ.e. sumir þeirra höfðu bæði fl.
II og III einkenni. í skandinavískri rannt-
sókn, þar sem 34 sjúklingum með þögla
gallsteina var fylgt eftir upp í 20 ár, fékk
um þriðjungur þeirra gallsteiniaverki og
fimmtungur (20%) fylgikvilla.2u í sömu
rannsókn var ályktað, að lítill munur væri
á sjúkdómsgangi sjúklinga með þögla gall-
steina samanborið við sjúklinga með gall-
steinaeinkenni.20 Höfundar frá Mayo Clinic
greindu frá 112 sjúklingum með „þögla
gallsteina11, sem voru uppgötvaðir við
skurðaðgerð vegna annarra aðstæðna og
fylgt eftir í 10—20 ár.!l 45,5%, sjúkling-
anna fengu einhver einkenni, þar af 39
sjúklingar ódæmigerð einkenni (fl. II), 16
dæmigerð einkenni (fl. I) og 5 einkenni
samfara gulu.° Okkar rannsóknir sýna, að
um 40—45% sjúklinganna fá einhver ein-
kenni, þar af um 15% dæmigerð (fl. I) og
25—30% óljós (fl. II), sem er ekki veru-
lega frábrugðið niðurstöðum annarra.
Dauðsföll og dánartala:
Dauðsföll við valaðgerð á gallblöðru eru
talin frá 0,5% upp í 3%. Hæst eða 3%
verður dánartalan, þegar aðgerð er dregin