Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ 273 on hann lét af héraðslæknisembættinu 5.7. 1966. Áður en sóknaraðili færi frá Húsavík og héraðið yrði læknislaust fóru fulltrúar frá sjúkrahússtjórn og bæjarstjórn til Reykjavíkur til þess að kanna möguleika á því að fá iækni í héraðið. Árangurinn varð sá, að varnaraðilar gáfu kost á sér til starfans, en þó aðeins til eins árs tíma, þar sem þeir gætu ekki hugsað sér að starfa nema eftir nýjum hugmyndum um læknamiðstöð, en óvíst væri, hvort sóknaraðili gæti fellt sig við þá tilhögun, þegar hann kæmi til starfa aftur. Enda höfðu varnar- aðilar rætt við sóknaraðila, áður en þeir réðu sig til starfans, og þá þegar komið í ljós skoð- anamunur á milli þeirra um verkaskiptingu lækna í sjúkrahúsi. Sóknaraðili fer utan til framhaldsnáms um haustið 1966 og hefur þá leyfi sjúkrahússtjórn- ar til allt að tveggja ára fjarveru. Gísli G. Auðunsson er settur héraðslæknir í Húsavík- urhéraði 11. okt. 1966 frá 15. s.m., og um svip- að leyti kemur Ingimar S. Hjálmarsson einnig til starfa í héraðinu. Samvinna þeirra er mjög náin, þannig að þó Gísli sé héraðslæknir gagn- vart heilbrigðisyfirvöldum, þá vinna þeir sam- an jafnt að embættis-, sjúkrahúss- sem lækn- isstörfum og allar tekjur renna í sameiginlegan sjcð, sem þeir skipta að jöfnu milli sín. Þegar tekur að líða á samningstíma varnar- aðila, virðist fara að gæta vaxandi kvíða með- al þeirra, er réðu þá til starfa á Húsavík um. að ekki muni takast æskilegt samstarf milli varnaraðilanna og sóknaraðila þegar á reyni. Þetta kemur berast fram á fundi framkvæmda- ráðs sjúkrahússins 22.9. ’67, þar sem bæjar- stjóri lætur bóka þá tillögu sína, að sóknar- aðila verði sagt upp yfirlæknisstörfum ef ekki náist samkomulag milli hans og núverandi lækna á Húsavik. Á þessum sama fundi skýrir bæjarstjóri frá því, ,.hvað hann hefði greitt í sjúkrahúslæknisbústaðnum og að Ingimar myndi flytja í húsið á næstunni“ (dskj. nr. 39). Þann 26.11. ’67 skrifa varnaraðilar sóknar- aðila bréf (dskj nr. 9), þar sem þeir lýsa sam- starfi sínu og spyrja um álit hans á þeirri starfstilhögun. I eftirfarandi bréfaviðskiptum þessara aðila (dskj. nr. 10, 11 og 12) kemur fram djúpstæður skoðanamunur á samstarfshætti lækna og skipulagi heilbrigðisþjónustu í Húsa- víkurhéraði, sem varnaraðilar í bréfi dags. 4.6. ’68 tjá sóknaraðila, að þeir hafi lagt fyrir stjórn L.I. til úrlausnar (dskj. nr. 13 og 19). Þann 27.8 ’68 mæta deiluaðilar á fundi með stjórn L.I., sem lauk án þess að samkomulag næðist, en ákveðið var, að deiluaöilar skyldu hittast einir daginn eftir. Á þeim fundi varð að samkomulagi, að þeir skyldu rcyna til hlit- ar að koma á samstarfi, og slökuðu báðir aðil- ar nokkuð til. Sóknaraðili ritar þ. 17.9. ’68 sjúkrahússtjórn bréf þess efnis, að hún stofni aðstoðarlæknis- stöðu við sjúkrahúsið, sem er gert, og með samningi dags. 13. nóv. 1968 eru varnaraðilar ráðnir til að gegna þeirri stöðu í sameiningu (dskj. nr. 21). Sama dag er gerður hliðstæður samningur við sóknaraðila í stöðu yfirlæknis sjúkrahússins (dskj. nr. 22). 1 desember 196P( segja varnaraðilar upp iæknisstörfum á Húsavík, bæði héraðs- og að- stoðarlæknisstörfum frá 15.2. '69 að telja (dskj. nr. 41) og 7. og 8. jan. 1969 birtast blaðafregn- ir um „deilur milli læknanna á Húsavík” í formi viðtals við Gísla G. Auðunsson, og í kjölfar þeirra fylgja mikil blaðaskrif um mál- ið. Að beiðni framkvæmdaráðs sjúkrahússins semur nú sóknaraðili starfsreglur fyrir aðstoð- arlækna við sjúkrahús Húsavíkur (dskj. nr. 27, fylgiskj. 10), en varnaraðilar töldu þær óað- gengilegar, og þokaðist ekkert í samkomulags- átt. Dagana 12. og 13. jan. 1969 dvaldist nefnd á vegum L.I. á Húsavik til þess að kynna sér málavöxtu í iæknadeilunni og reyna að brúa bilið milli deiluaðila. Niðurstaða nefndarinnar var „grind fyrir læknasamstarf við sjúkrahús Húsavíkur d. 21. jan. 1969“ (dskj. nr. 27), sem að formi til er ábending um læknasamstarf. Upp úr þessari „grind” verður til „reglugerð um störf lækna við sjúkrahúsið á Húsavík”, staðfest af Dóms- og kirkjumálaráðherra 11. apríl 1969 (dskj. nr. 27, fylgiskj. 10). Hún er samin af nefnd tilnefndri af stjórn sjúkrahúss- ins ásamt einum manni tilnefndum af stjórn L.l. (dskj. nr. 27, fylgiskj. 10B). Stjórn sjúkra- hússins sendir sóknaraðila afrit af reglugerð- inni 13.3. ’69, en hann sendir henni 15.3. ’69 mótmæli gegn nokkrum atriðum hennar, en þau voru ekki tekin til greina. Með bréfi dags. 7.5. '69 tjáir sóknaraðili sig þó reiðubúinn til að hlita umræddri reglugerð, að svo miklu leyti sem hún ekki brýtur í bága við gildandi sjúkrahúslög. En með bréfi dags. 12.5. '69 felur sjúkrahússtjórn sóknaraðila að láta reglugerðina koma til framkvæmda, án undantekninga, eigi siðar en 25.5. ’69. Sóknar- aðili æskir' þá fundar með stjórn L.l. og lög- fræðingi félagsins um það, hvort umrædd reglugerð sé í samræmi við sjúkrahúslögin. Sá fundur fer fram 19.5. ’69 (dskj. nr. 27). Á fundi sjúkrahússtjórnar 24.6. ’69 er sam- þykkt að segja sóknaraðila upp starfi með þriggja mánaða fyrirvara frá 1. júlí n.k. að telja. Ástæður fyrir uppsögninni eru m.a. „þér hafið eigi hlýðnast fyrirmælum stjórnarinnar og ekki virt vilja hennar í sambandi við skipu- lag á starfi lækna o.fl." Eftir uppsögnina komu fram áskoranir frá almenningi á sjúkrahússtjórnina um að taka hana aftur og einnig tilmæli frá stjórn L.l. til sjúkrahússtjórnar um að endurskoða afstöðu sína til uppsagnarinnar (dskj. nr. 27, fylgiskj. IOG) . Þeim tilmælum hafnaði sjúkrahússtjórn- in með bréfi dags. 1.9. ’69 (dskj. nr. 27, fylgiskj. IOH) . Málsástæður og rök aðila Kæruatriði sóknaraðila eru í 6 liðum, sem nú skulu raktir ásamt vörn varnaraðila gegn þeim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.