Læknablaðið - 15.10.1980, Side 37
LÆKNABLADID
251
FRÉTTABRÉF FRÁ FÉLAGIÍSLENZKRA LÆKNA VIÐ
FRAMHALDSNÁM í HEILSUGÆZLULÆKNINGUM í SVÍPJÓÐ
í nóvember 1977 var stofnað í Gautaborg
Félag íslenzkra lækna um heilsugæzlu (FÍ-
LUMHEIL). Tilgangurinn var og er að efla
skoðanaskipti félagsmanna innbyrðis um
heilsugæzlu og fylgast með próun þessara
mála á íslandi. Stofnfélagar voru 7, en nú,
liðlega tveimur og hálfu ári síðar, eru félagar
u.p.b. 40, sem allir hyggjast síðar leggja stund
á heilsugæzlulækningar á íslandi.
Á peim árum sem liðin eru frá stofnun
félagsins hafa varið haldnir fjölmargir fundir
um hin margbreytilegustu mál, félagsleg og
fræðileg.
Félagið hefir starfað í deildum í Gautaborg,
Vánersborg, Trollháttan, Skövde, Lidköping,
Vásterás, Eskilstuna, Malmö og Uppsölum, en
síðan reynt að halda sameiginlega stærri fundi
pegar pví er við komið.
Námshringir hafa fjallað um hugtök svo
sem samband læknis og sjúklings, heildarsýn,
frumábyrgð, nálægð, aðgengileika, samfellda
stundun sjúklinga, vitjanir og margt fleira.
Unnið hefur verið að leiðbeiningum um mæð-
ravernd, meðferð og eftirlit pvagfærasýk-
inga, svo eitthvað sé nefnt af pví sem hinar ýmsu
deildir félagsins fást við. Auk pess hafa verið
haldnir fundir með ýmsum íslenzkum læknum
sem hafa átt leið hjá. Tilgangur þessarar stuttu
greinar var pó einkum að skýra frá niðurstöð-
um könnunar sem fór fram á vegum félagsins
í nóvember 1979. Könnunin fjallaði um áform
félagsmanna hvað varðar námslok, heimferð,
væntanlegt aðsetur og skoðanir peirra á
ákjósanlegustu launakerfi. Helstu niðurstöður
varðandi námslok og væntanlega búsetu má
sjá í töflu I. Par kemur fram að 6 læknar halda
Nidurstödurskodanakönnunarverðandiheilsu-
gæzlulækna við nám í Svípjóð hvað varðar
námslok og búsetu ad pví loknu.
Ár 1980 1981 1982 1983 1984 Alls
Ljúka námi 7 10 7 4 1 29
Hyggjast fara heim 6 n 7 4 1 29
Hyggjast setjast að á Reykjavíkursvæði 3 7 3 1 1 15
Hyggjast setjast að úti á landi 3 4 5 0 2 14
heim frá Svípjóð 1980 að loknu námi og 11
árið 1981. Hvað varðar 1982 og árin par á eftir
gefur könnunin vart nokkrar marktækar nið-
urstöður vegna ýmissa óvissupátta. Svo virðist
sem álíka margir hyggist setjast að úti á
landsbyggðinni og á Reykjavíkursvæðinu, en
nokkurrar óákveðni gætir um petta atriði
meðal svaranna. Könnunin gefur ótvíræðar
niðurstöður um óvilja manna til að setjast að í
eirtmenningshéruðum og kemur pað vart á
óvart af þegar sígildum ástæðum, faglegri
einangrun o.s. frv.
Hvað varðar launakerfi virðist yfirgnæfandi
meirihluti (22) fylgjandi blönduðu kerfi líkt og
tíðkast hefir í héraði, með föst laun og póknun
fyrir unnið verk og vaktir. Einungis 5 voru
hlyntir föstum launum eingöngu ásamt vakta-
póknun, líkt og gerist í Svípjóð.
Gautaborg í maí 1980
Frá stjórn:
Vilhjálmur Rafnsson form.
Jóhann Ág. Sigurðsson gjaldk.
Jóhann Tómsson ritari