Læknablaðið - 15.10.1980, Page 43
LÆK.NABLADIÐ
255
SKRA UM SERGREINAYAL
ÍSLENSKRA LÆKNA
Viðar Hjartarson
ritari L.I. tók saman
Á sl. vetri samþykkti stjórn Læknafélags
íslands að láta semja skrá um skiptingu lækna
eftir sérgreinum, og skyldi skráin ná bæði til
starfandi sérfræðinga og lækna í framhalds-
námi. Var ritara L.í. falið að annast þessa
samantekt. Tilgangurinn með samningu skrár-
innar er sá að veita íslenzkum læknum í
sérnámi eða þeim, sem hyggja á sérnám, að-
gengilegar og nýjar upplýsingar um sérgreina-
val lækna. Hluti þessara upplýsinga hefur
birzt læknum, en í mismunandi uppsetningu (1,
2, 3, 4). Hefur að sjálfsögðu verið mjög stuðst
við þær heimildir hér, auk pess sem talað var
við fjölda lækna, sem veittu upplýsingar,
einkum um þá sem nú eru í sérnámi erlendis,
en upplýsingar um þann hóp lágu oft ekki á
lausu, enda sérgreinavals ekki getið í spjaid-
skrá læknafélaganna. Væri mjög æskilegt, að
t.d. Félag ungra lækna óskaði eftir því við
utanfara, að þeir tilkynntu skrifstofunni sér-
greinaval sitt, t.a.m. þegar þeir senda inn hið
erlenda heimilisfang, eða að svæðafélögin
erlendis sendu skrifstofunni reglulega slíkt
yfirlit, og mætti þannig endurnýja skrána með
lítilli fyrirhöfn, þegar ástæða þætti til.
Pótt áreiðanleg vitneskja fengist um megin-
þorra læknanna sem erlendis dvelja, eru
samt nokkrir, sem ekki er að finna í skránni,
aðallega læknar, sem luku embættisprófi er-
lendis.
í kaflanum um starfandi sérfræðinga á
íslandi eru þeir þar meðtaldir, sem vitað er um
að koma alkomnir heim til starfa á næstu
mánuðum, svo og þeir sem eru u.þ.b. að fá
sérfræðiviðurkenningu (eiga t.d. ólokið rit-
gerð) og þegar eru í starfi í greininni hérlendis.
Af þessum ástæðum eru t.d. skráðir sex
starfandi sérfræðingar í heimilislækningum,
þótt aðeins tveir þeirra hafi íslenzkt sérfræði-
leyfi ennþá. Einnig er rétt að taka fram, að
a.m.k. fjórir læknar, sem eru sérfræðingar í
öðrum greinum, hafa heimilislækningar að
aðalstarfi, en eru skráðir undir viðkomandi
sérgrein. Nokkrir læknar, sem hlotið hafa
sérfræðiréttindi erlendis, en ekki eru þar í
fastri stöðu, teljast vera í framhaldsnámi
samkvæmt skránni. Fáeinir læknar munu
skipta um námsland á næstunni, og eru
þeir skráðir í »nýja« landinu.
Sérfrædingar hættir starfi eda eldri en 70 ára.
Augnlækningar ............................. 3
Barnalækningar............................. l
Bæklunarlækningar.......................... 1
Geðlækningar .............................. 2
Geislalækningar ........................... 2
Háls-, nef- og eyrnalækn................... 1
Handlækningar.............................. 2
Handlækningar & kvensjúkd.................. 1
Handlækn. & þvagfærasjúkdómar ............. 1
Heimilislækningar ......................... 1
Lungnasjúkdómar ........................... 3
Lyflækningar .............................. l
Svæfingar & deyfingar...................... 1
Alls 20
Sérfrædingar starfandi erlendis.
Augnlækningar .............................. 1
Barnalækningar.............................. 2
Bæklunarlækningar........................... 4
Geðlækningar ............................... 4
Geislalækningar ............................ 3
Handlækningar............................... 5
Handlækn. & brjóstholsskurðl................ 1
Húð- og kynsjúkdómar ....................... 1
Kvensjúkdómar & fæðingarhjálp............... 4
Líffærameinafræði........................... 4
Lyfjafræði (klinisk) ....................... 2
Lyflækningar ............................... 1
Lyflækningar & lungnasjúkdómar ............. 2
Lyflækningar & meltingarsjúkd............... 1
Lyflækn. & nýrnalækn. (nephrologi) ......... 2
Orkulækningar .............................. 1
Ónæmisfræði ................................ 1
Taugaskurðlækningar......................... 1
Veirufræði.................................. 1
Alls 41