Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1982, Page 14

Læknablaðið - 15.11.1982, Page 14
262 LÆKNABLAÐIÐ eldri, sbr. 1. mynd. Hjá þeim, sem komnir eru með drermyndun, (skv. fyrrgreindri skilgrein- ingu), eru aðgerðarlíkurnar mun meiri eða 3- 4 % í öllum aldursflokkum, sbr. 11. töflu. Við blindrakönnun hér á landi í árslok 1979 reyndust aðeins 5 vera blindir af ellidreri, sem var 1.3 % af öllum blindum og hafði ekki verið gerð aðgerð á þeim vegna ellihrumleika eða að aukakvillar komu eftir aðgerð (10). Hér á landi gangast því flestir undir dreraðgerð áður en þeir teljast félagslega blindir og svarar sú sjóndepra til 6/60 eða minni sjónar á betra auga með besta gleri. Dreifing dreraðgerða er nokkuð misjöfn eftir landshlutum og endurspeglar augnlækn- isþjónustuna a.m.k. hvað drerskurði snertir, en þó ekki í öllum greinum almennrar augn- læknisþjónustu. Nýgengi dreraðgerða er lang- minnst í Suðurlandskjördæmi. Sennilegasta orsökin er sú, að Suðurlandsundirlendi hefur far- ið varhluta af augnlækningaferðum í nokkra áratugi og erfitt hefur verið að ná fundi augnlæknis í Reykjavík um árabil. Tíðni drer- aðgerða hjá fólki annars staðar á landsbyggð- inni sýnir gagnsemi augnlækningaferðalaga, þar eð gamalt fólk á auðveldara með að ná fundi augnlækna á ferðalögum, en fara til Reykjavíkur eða Akureyrar, þar sem augn- læknar eru staðsettir. Hvað um samanburð dreraðgerða hér á landi við önnur lönd ? Lítið hefur verið skrifað um þennan þátt augnlæknisfræðinnar, sem um ræðir í þessari grein. í Bandaríkjunum er talið, að 300-400 þúsund dreraðgerðir séu gerðar þar árlega (11). Petta er nýgengi 175 af 100.000, sem er þrisvar sinnum meira en nýgengi dreraðgerða í Eng- landi (12). Nýgengi allra dreraðgerða hér á landi í öllum aldursflokkum er (miðað við 166 aðgerð- ir árlega) 72.5 á 100.000 íbúa eða mun lægra en í Bandaríkjunum, en samt er talsvert um blindu þar vegna ellidrers eða um 15.6 % af öllum blindum, en aðeins 1.3 % hér á landi. Ef þessi tala frá Bandaríkjunum á tíðni drerað- gerða þar í landi er rétt, gæti það bent til þess, að algengi ellidrers sé þar meira en hér, eða að þeir geri dreraðgerðir oftar á báðum augum, eða að þeir taki oftar drer af öðru auga meðan hitt er sjáandi, en það er fremur sjaldgæft hérlendis. Brændstrup hefur í Danmörku gert athug- anir á tíðni dreraðgerða á fyrra auga (13). Er Percentage Fig. 4. Prevalence (percentages) of senile cataract or aphakia in the Borgarnes Eye Study, lceland 1977-1980 (Bo) and in the Framingham Study U.S.A. 1973-1975 (Fr). Incidence per 10.000 population Ic Fig. 5. The average annual incidence of senile cata- ract of first eye per 10.000 population of both sexes in age groups 50 years and older in Iceland (1978- 1980) (lc) and in Copenhagen) 1969, 1972-1973) (Co). nýgengi ellidreraðgerða (meðaltal áranna 1969, 1972 og 1973) í Kaupmannahöfn sýnt á 5. mynd. Aðgerðartíðni er svipuð hér á landi og í Kaupmannahöfn til sjötugsaldurs, en meiri hérlendis hjá öldruðu fólki. Með bættri aðgerð- artækni á síðari árum eru aukakvillar orðnir sjaldgæfir og sjúklingur hefur fótavist daginn eftir aðgerð. Dreraðgerðir hafa verulegan kostnað í för með sér vegna hins háa legukostnaðar á

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.