Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Blaðsíða 6
föstudagur 23. mars 20076 Fréttir DV
Fangelsin eru yfirfull og hafa þrír fangar, sem boðaðir höfðu verið í afplánun, orðið frá að hverfa frá sökum
þess. Á næstunni fækkar plássum vegna framkvæmda og að kröfu heilbrigðisyfirvalda sem vilja ekki tveggja
manna fangaklefa. Fangelsismálayfirvöld sóttust eftir því að fá Efri-Brú til afnota en fengu ekki.
Þremur föngum, sem boðaðir hafa
verið í afplánun, hefur verið vísað
frá nýlega vegna plássleysis að sögn
Valtýs Sigurðssonar fangelsismála-
stjóra. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem fangelsin eru yfirfull enda
stendur það oft tæpt á álagstímum.
Hann segir frávísanir líklega þýða
seinkun á afplánun í um vikutíma.
„Það þrengir að okkur og það er
margt sem kemur þar til. Fangels-
isplássum hefur ekki fjölgað í ára-
tug og það stendur tæpt þegar koma
toppar,“ segir Valtýr. Síðustu tvö ár
hefur föngum með þunga dóma
fjölgað og samanlagður fangelsis-
tími þeirra sem afplána hefur hækk-
að um tuttugur ár á þeim tíma. „Við
misstum þrjú pláss í Byrginu þeg-
ar það lokaði og fyrir um ári síðan
hætti meðferðarstofnun í Krísu-
vík að taka fanga í meðferð, “ segir
Valtýr og bætir við að það hafi verið
mikill missir því meðferðarúrræði
til lengri tíma eins og þar var boðið
upp á hentar sumum afar vel.
Frekari plássleysi í vændum
Það horfir til frekari vandræða
í fangelsunum á næstunni þar
sem ýmist þarf að fækka plássum
eða loka tímabundið vegna fram-
kvæmda. Heilbrigiðsyfirvöld í
Reykjavík hafa krafist þess að pláss-
um í Hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustíg verði fækkað úr sextán
í sex til tíu til þess að bæta að-
stöðu í fangelsinu eins og fyrir
íþróttaiðkun. Eins hefur verið
tekið fyrir það að fleiri en einn
séu í klefum en fjórir tveggja
manna klefar eru í Hegning-
arhúsinu.
Loka þarf fangelsinu á Ak-
ureyri í mánuð í júní vegna
breytinga og þá þarf að koma
þeim föngum sem
þar vistast fyr-
ir annarsstað-
ar. Eftir áramót
þarf svo að loka
fangelsinu á
Akureyri aft-
ur og í fjóra
til sex mán-
uði í það
skiptið en
gjörbreyta
á fang-
elsinu og
fjölga pláss-
um. Valtýr segir að á pappírunum
séu plássunum fjölgað um tvö en
sé í raun meira því eins og staðan
er í dag er ekki hægt að vista fleiri
en sex til sjö fanga í plássunum átta
sem þar eru. Tíu pláss verða því klár
á Akureyri vorið 2008.
Unnið er að teikningu og hönn-
un vegna
breytinga á Litla-Hrauni en ekki er
gert ráð fyrir að fangaplássum þar
fjölgi. Þessari vinnu á að vera lok-
ið í byrjun næsta ár og þá verða
framkvæmdirnar boðnar út en þær
eiga að kosta rúmar fimm hundruð
milljónir króna.
Plássum á Kvíabryggju fjölgar
um átta í september.
Vildu Efri-Brú
Fangelsis-
málastofnun
sóttist eft-
ir því að fá
Efri-Brú til
afnota eft-
ir að Byrg-
ið hætti þar
starfsemi, í
kjölfar
hneykslismálsins sem þar kom upp,
en fékk ekki. Ákveðið hefur verið að
Götusmiðjan fái Efri-Brú undir sína
starfsemi.
Atli Helgason, fangi á Litla-
Hrauni, segir þá ákvörðun óskiljan-
lega því hægt hefði verið að finna,
góðri starfsemi Götusmiðjunnar,
annan góðan stað til afnota. Finnst
Atla að Ekron starfsþjálfun í sam-
vinnu við Fangelsismálayfirvöld
hefði átt að fá Efri-Brú til afnota því
þörfin sé mikil. „Eins og staðan er
núna eru menn sem sitja inni fyr-
ir ölvunarakstur og vegna sekta á
bak við þunga bláa öryggishurð hér
inni á Litla-Hrauni,“ segir Atli. Tel-
ur hann að menn sem sitja inni fyr-
ir minni afbrot þurfi ekki að sitja í
öryggisfangelsi, það sé fyrir þá sem
hlotið hafa þyngri dóma.
Vilja lögreglustöð og
fangelsi saman
Til hefur staðið að nýtt fang-
elsi eigi að rísa á Hólmsheiði
árið 2010 og er bygging þess í
þarfagreiningu að sögn Valtýs
Sigurðssonar og verður henni
lokið í október. Hann og
Stefán Eiríksson, lögreglu-
stjóri höfuðborgarsvæðis-
ins settu fram tillögu þess
efnis að nýtt fangelsi og ný
lögreglustöð yrðu samtvinnuð. Að
þeirri hugmynd vinna nú fjármála-
ráðuneytið og dómsmálaráðuneyt-
ið. Spurst hefur verið fyrir um lóð-
ir í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi
og Garðabæ og segir Stefán öll sveit-
arfélögin hafa sýnt því áhuga. „Fyr-
ir lögregluna skiptir máli að vera
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
og í góðri tengingu við lykilumferð-
aræðar,“ segir Stefán en hann tel-
ur fangelsi og lögreglustöð fara vel
saman.
komust ekki í afplánun
„Eins og staðan er núna eru menn sem sitja inni
fyrir ölvunarakstur og vegna sekta á bak við
þunga bláa öryggishurð hér inni á Litla-Hrauni.“
Hjördís rut sigurjónsdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Valtýr sigurðsson fangelsismála-
stjóri fangelsisplássum hefur ekki
fjölgað í áratug.
Yfirfull fangelsi Þungar öryggishurðir eru
ekki bara til loka harðsvíraða glæpamenn inni
heldur líka menn sem sitja af sér fésektir.
Árið 2006 var versta umferðaár
síðan árið 2000 sem var afar slæmt.
„Við getum alls ekki sætt okkur við
þessar niðurstöður,“ sagði Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra og
benti á að þær væru alls ekki í sam-
ræmi við markmið umferðaráætlun-
ar. 31 manneskja lét lífið í umferðinni
í fyrra þar af tíu af völdum ofsaakst-
urs, átta af völdum ölvunar og þrír á
bifhjólum.
Að sögn Sturlu þá er mörgum
þáttum um að kenna þegar dauða-
slys eiga sér stað en sá þáttur sem
hann telur erfiðastan viðureign-
ar er hegðun ökumanna. „Lögbrot
í umferðinni eru óásættanleg,“ seg-
ir Sturla og bendir á að fólk verði að
taka þessi skilaboð til sín.
Sigurður Helgason verkefnastjóri
Umferðastofu bendir á hraðakstur
á stofnbrautum Reykjavíkur sem
ein af ástæðum þess að dauðaslys
í Reykjavík voru jafnmörg á síðasta
ári og öll fjögur árin þar á undan
til samans, eða þrjú talsins. Hann
bendir á að verið sé að koma fyr-
ir myndavélum í öllum bílum og á
mótorhjólum lögreglunnar til að
auðvelda lögreglu vinnu sína þar
sem hægt verði að sanna hraðaakst-
ur þótt einungis einn lögreglumað-
ur sé vitni. Ölvunarakstur er orð-
inn stórvandamál og segir Sigurður
að lögreglan muni á næstu dögum
fjölga áfengismælum og mæling-
um, auk þess sem jákvæðri auglýs-
ingaherferð hefur verið hrundið af
stað.
Bílbelti, sem Sigurður vill láta
kalla lífbelti, eru talin hafa bjarg-
að fjölda mannslífa á síðasta ári og
einnig er talið að mörgum manns-
lífum hefði mátt bjarga til viðbótar ef
allir hefðu notað beltin. skorri@dv.is
Síðasta ár það versta í umferðinni í 16 ár:
Alltof mörg banaslys
slæm ökuhegðun erfið viðureignar
sturla Böðvarsson samgönguráðherra,
sigurður Helgason verkefnastjóri
umferðastofu, ragnhildur Hjaltadóttir
ráðuneytisstjóri, Birgir Hákonarson
framkvæmdastjóri umferðastofu.
Hundur í handtöku
Karlmaður um tvítugt var
handtekinn í austurborginni í
fyrrakvöld en í fórum hans fund-
ust 2 grömm af ætluðu amfetam-
íni. Í framhaldinu var leitað í bíl
mannsins og þá fann lögreglu-
hundur um 30 grömm til viðbót-
ar af sama efni sem voru falin í
ökutækinu.
Um hádegisbilið fóru lög-
reglumenn inn í íbúðahús í
miðborginni og handtóku þrjá
menn og eina konu. Þá var lög-
regluhundurinn notaður til að
leita að fíkniefnum innandyra og
fundust ætluð fíkniefni og þýfi
auk vopna.