Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Side 34
FösTUdagUr 23. mars 200734 Sport DV
Í litlum bæ sem heitir Vail og er
staðsettur í Colorado í Bandaríkjun-
um má finna mann sem gegnt hef-
ur lykilhlutverki í íþróttaheiminum.
Aðeins 5.000 manns búa í þessum
bæ og ekki er mikið af íþróttamann-
virkjum þar þótt aðstaða til skíða-
iðkunar sé góð. Þarna má einnig
finna endurhæfingarstöð og hvíld-
araðstöðu og þar hafa fjölmarg-
ir þekktir íþróttamenn dvalið. Þar
hefur Dr. Richard Steadman, þekkt-
asti sérfræðingur í hnéaðgerðum í
heiminum, aðsetur. Á þessum stað
bjargaði hann meðal annars ferli
Alans Shearer árið 2000 og hefur
hjálpað fjölmörgum öðrum þekkt-
um íþróttamönnum.
Þegar biðstofa Steadmans er
skoðuð sést vel hversu ótrúlegrar
virðingar hann nýtur í þessum
bransa. Þar má meðal annars finna
mynd af Alan Shearer á veggn-
um sem hann hefur áritað: „Þegar
ég var við það að gefast upp vegna
meiðsla þá tókstu þau í burtu,
margfaldar þakkir.“ Þar eru einnig
innrömmuð skilaboð frá Martinu
Navratilovu tenniskonu: „Takk fyr-
ir að hafa kallað fram bros á andliti
mínu, í hjartanu og hnénu.“
Annast afreksfólk
Það er athyglisvert að Steadman,
sem er 68 ára, hefur afrekað það að
hafa framkvæmt aðgerðir á öllum
bandarískum skíðamönnum sem
hafa unnið til ólympíuverðlauna
síðan 1978. „Þegar fólk velur sér-
fræðing til að annast meiðsli horfir
það oftast til þess hve stór
hluti aðgerða hans hef-
ur borið árangur. Við
höfum búið til gott
kerfi í starfsemi
okkar og pró-
sentan yfir vel
heppnaðar að-
gerðir er mjög
há,“ sagði
Steadman
mjög hógvær
í samtali við
BBC-frétta-
stofuna.
„Það má
ekki gleyma
því að hér
hef ég bestu
aðstöðu sem
hægt er að
finna. Hvergi
er betra að
gangast undir
endurhæf-
ingu en
hjá
okkur. Skurðstofan er fyrsta flokks
og við leggjum mikinn metnað í það
sem við gerum. Þó það er heims-
frægt íþróttafólk hjá okkur þá hugs-
um við ekkert út í það heldur ein-
beitum við okkur alfarið að því að
gera allt sem í okkar valdi stendur til
að það nái að jafna sig,“ sagði Stead-
man.
Ef íþróttamenn vilja fá bestu
hugsanlegu meðhöndlun á meiðsl-
um sínum leita þeir til hans.
Hefur enn ekki mætt á leik
Á háskólaárum sínum í Texas lék
Steadman amerískan fótbolta. Eftir
útskrift starfaði hann í tvö ár í her-
num og svo á sjúkrahúsi í New Or-
leans. Eftir það fór hann að mennta
sig í lækningum á hnémeiðslum og
var ekki lengi að klifra upp metorð-
astigann.
Steadman byrjaði að vinna með
íþróttamenn í kringum 1970 þeg-
ar hann vann fyrir skíðalandslið
Bandaríkjanna. „Ég bjó þá í Kali-
forníu og var boðið að taka þetta
starf að mér. Ég ákvað að slá til
og eftir það fór ég að öðlast nafn í
þessu. Eftir það höfðu lið í NFL-
deildinni samband við mig og ég
fór að vinna með fótboltakappa.
Þegar ég flutti til Vail öðlaðist ég síð-
an tækifæri til að sinna evrópskum
knattspyrnumönnum og íþrótta-
mönnum í nánast hvaða íþrótt sem
er,“ sagði Steadman.
Steadman varð ekki frægur á
einu kvöldi en frammistaða hans
vakti fljótt athygli og fór að spyrjast
út. „Þrátt fyrir að ég leggi áherslu á
að skera upp íþróttamenn þá eru
aðeins fáir þeirra vel þekktir. Það
er mikilvægt að ég sé ekki bara að
skera upp íþróttamenn því þeir eru
frægir,“ sagði Steadman.
Hann er mjög þekktur hjá
íþróttafélögum í Bretlandi og hefur
framkvæmt aðgerðir á fjöldamörg-
um leikmönnum í ensku úrvals-
deildinni í fótbolta.
Það er því frekar furðulegt að
hann hefur aldrei farið á leik í deild-
inni.
„Ég stefni samt klárlega á það að
fara á leik bráðlega,“ sagði Stead-
man brosandi, en hann var meðal
annars settur í frægðarhöll skíða-
sambands Bandaríkjanna fyrir
færni sína í að meðhöndla meiðsli.
Læknirinn Richard
Steadman er maður
sem flestir íþrótta-
áhugamenn hafa
heyrt minnst á.
Margar stórstjörnur
íþróttaheimsins hafa
leitað til hans enda
er hann þekktasti
sérfræðingur í
hnémeiðslum.
Meðal annarra íþróttaManna seM hann hefur
skorið upp:
John elway, Joe Montana, Dan Marino, Vitali klitschko,
kobe bryant, Michael Vaughan, greg norMan, boDe
Miller, picabo street, pernilla wiberg, anJa pärsson,
Martina naVratiloVa, Monica seles.
frægir knattspyrnuMenn seM steaDMan hefur skorið upp
Vegna Meiðsla á hné:
craig bellaMy, patrik berger, JiMMy bullarD, John kenneDy, henrik
larsson, Martin laursen, Joleon lescott, lothar Matthäus, ian
Durrant, ruuD Van nistelrooy, Michael owen, alessanDro Del piero,
ronalDo, alan shearer, JaMes Vaughan, JaMie reDknapp, roy keane.
Greg Norman - golf. Vitali Klitschko - hnefaleikar. Martina Navratilova - tennis.
Alan Shearer - fótbolti. Kobe Bryant - körfubolti. Vitali Klitschko - hnefaleikar.
MeðhÖnDlar
stórstJÖrnur
Richard Steadman Hefur meðhöndlað marga leikmenn í ensku úrvalsdeildinni en
þó aldrei mætt á leik í henni.