Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Side 41
DV Ættfræði föstudagur 23. mars 2007 41
Starfsferill
Halldór fæddist í Reykjavík 24.8. 1938
og ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1959, hóf nám í lögfræði
við HÍ, lauk upphafsprófum en hætti
síðan námi.
Halldór vann við hvalskurð í hval-
veiðistöðinni í Hvalfirði á fimmtán
vertíðum 1954-74, var kennari við
Réttarholtsskólann, Gagnfræðaskól-
ann á Akureyri, MA, Lindargötuskóla
og Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1959-71, var blaðamaður við Morg-
unblaðið 1961-63, 1967-68, 1971-
72, og 1978-79, erindreki Sjálfstæð-
isflokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra 1963-67 og vann á endurskoð-
unarskrifstofu Björns Steffensen og
Ara Ó. Thorlacius á Akureyri 1976-
78.
Halldór var varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra 1971-79, alþm.
kjördæmisins frá 1979-2003 og
Norðausturkjördæmis frá 2003, var
landbúnaðar- og samgönguráðherra
1991-95, samgönguráðherra 1995-
99, forseti Alþingis 1999-2005 og
formaður utanríkismálanefndar frá
2005.
Halldór var formaður Varðar, FUS
á Akureyri, Sjálfstæðisfélags Akur-
eyrar, SUS á Norðurlandi og kjör-
dæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í
Norðurlandskjördæmi eystra, sat í
stjórn SUS 1965-71, í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins 1973-79 og frá 1991
og var formaður Félags framhalds-
skólakennara í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
Halldór var yfirskoðunarmaður
ríkisreikninga 1976-87, sat í úthlut-
unarnefnd listamannalauna 1978-
87, í stjórn Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins, síðar Byggðastofnunar,
1983-91, í stjórn Slippstöðvarinnar hf
1984-89, í bankaráði Búnaðarbanka
Íslands 1985-91, sat allsherjarþing
Sþ og þing Alþjóðaþingmannasam-
bandsins 1983 og þing Evrópuráðs-
ins 1984-86, var formaður nefndar
um háskólakennslu á Akureyri og
hefur setið í fjölda annarra nefnda.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 16.4. 1960 Ren-
ötu Brynju Kristjánsdóttur, f. 31.10.
1938, d. 3.6. 1982. Þau skildu 1967.
Hún var dóttir Kristjáns P. Guð-
mundssonar, f. 8.3. 1913, d. 6.12.
1991, forstjóra og útgerðarmanns á
Akureyri, og k.h., Úrsúlu Beate Guð-
mundsson, f. Pierney 4.12. 1915,
húsmóður.
Dætur Halldórs Renötu eru Ragn-
hildur, f. 21.9. 1960, bókasafnsfræð-
ingur á Breiðuvík en maður hennar
er Víðir Herbertsson útgerðarmaður;
Kristjana Stella, f. 28.12. 1964, upp-
eldisfræðingur en sambýlismaður
hennar er Úlfar Hauksson aðjunkt.
Halldór kvæntist 27.12. 1969,
Kristrúnu Eymundsdóttur, f. 4.1.
1936, kennara. Hún er dóttir Eym-
undar Magnússonar, f. 21.4. 1893, d.
13.1. 1977, skipstjóra í Reykjavík, og
k.h., Þóru Árnadóttur, f. 28.2. 1903,
húsmóður.
Sonur Halldórs og Kristrúnar er
Pétur, f. 6.12. 1971, blaðamaður en
kona hans er Anna Sigríður Arnar-
dóttir lögfræðingur.
Synir Kristrúnar og fóstursynir
Halldórs eru Eymundur Matthíasson
Kjeld, f. 1.2. 1961, eðlis- og stærð-
fræðingur; Þórir Bjarki Matthíasson
Kjeld, f. 20.11. 1965.
Systkini Halldórs: Benedikt, f.
11.1. 1935, d. 22.4. 1991, hæstarétt-
ardómari; Kristín, f. 5.10. 1944, d.
11.12. 1992, kennari; Haraldur, f. 6.7.
1946, d. 14.4. 2004; hrl.; Ragnhildur,
f. 10.2. 1949, bókasafnsfræðingur.
Foreldrar Halldórs voru Lárus
Þórarinn Haraldsson Blöndal, f. 4.11.
1905, d. 2.10. 1999 alþingisbóka-
vörður í Reykjavík, og k.h., Kristjana
Benediktsdóttir, f. 10.2. 1910, d. 17.3.
1955, húsmóðir. Fósturmóðir Hall-
dórs var Margrét Ólafsdóttir, f. 4.11.
1910, d. 7.6. 1982, húsmóðir.
Ætt
Lárus var sonur Haralds Blöndal
ljósmyndara, bróður Jósefínu, móð-
ur Lárusar Jóhannessonar alþm. og
ættfræðings, og móðir Önnu, móður
Matthíasar Johannesen, skálds og
fyrrv. ritstjóra. Annar bróðir Haralds
var Jósep, afi Péturs Blönda alþm.
Haraldur var sonur Lárusar Blön-
dal, amtmanns og alþm.á Kornsá,
bróður Sigríðar, móður Magnúsar
Th Blöndal alþm. og Björns Sigfús-
sonar alþm. Lárus var sonur Björns,
sýslumanns í Hvammi, alþm. og ætt-
föður Blöndalsættar Auðunssonar.
Móðir Haralds var Kristín Ásgeirs-
dóttir, b. á Lambastöðum, bróður
Jakobs, langafa Vigdísar Finnboga-
dóttur. Ásgeir var sonur Finnboga,
verslunarmanns í Reykjavík Björns-
sonar, og Arndísar Teitsdóttur, vef-
ara Sveinssonar. Móðir Kristínar var
Sigríður, systir Þuríðar, langömmu
Vigdísar Finnbogadóttur. Hálfsyst-
ir Sigríðar var Rannveig, langamma
Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gíslason-
ar ráðherra, föður Vilmundar ráð-
herra, Þorsteins heimspekings og
Þorvalds prófessors. Sigríður var
dóttir Þorvalds, pr. í Holti Böðvars-
sonar, pr. í Holtaþingum Presta-
Högnasonar.
Móðir Lárusar var Margrét, syst-
ir Sigríðar, ömmu Styrmis Gunnars-
sonar rirstjóra. Bróðir Margrétar var
Halldór, afi Kára Stefánssonar. Mar-
grét var dóttir Auðuns, b. á Svart-
hamri Hermannssonar, b. á Vífils-
mýrum Jónssonar.
Kristjana var systir Péturs, alþm.
og bankastjóra, föður Guðrúnar for-
stöðumanns og Ólafar dómstjóra;
systir Bjarna forsætisráðherra, föð-
ur Björns dómsmálaráðherra; syst-
ir Sveins framkvæmdastjóra, föð-
ur Benedikts hrl, föður Bjarna alþm.;
og systir Ólafar menntaskólakenn-
ara, móður Guðrúnar Guðjónsdótt-
ur kennara. Kristjana var dóttir Bene-
dikts, alþm. Sveinssonar, gestgjafa á
Húsavík, bróður Björns, afa Guðmund-
ar Benediktssonar ráðuneytisstjóra.
Sveinn var sonur Magnúsar, snikkara á
Víkingavatni Gottskálkssonar, bróður
Guðmundar, afa Jóns Trausta. Móðir
Sveins var Ólöf, systir Þórarins, afa Þó-
arins Björnssonar skólameistara.
Móðir Kristjönu var Guðrún, hálf-
systir Kristínar, móður Ragnhildar
Helgadóttur, fyrrv. ráðherra. Guðrún
var dóttir Péturs, b. í Engey Kristins-
sonar. Móðir Péturs var Guðrún, syst-
ir Guðfinnu, ömmu Bjarna Jónssonar
vígslubiskups.
Maður VIKuNNar
Halldór Blöndal
alþingismaður og hagyrðingur
Halldór Blöndal er nú
hættur á þingi eftir setu
þar í þrjátíu og sex ár. Þar
með kveður Alþingi einn
sinn liprasta hagyrðing um
langt skeið og sleipan skák-
mann. En hvoru tveggja,
hagmælska og skáksnilld,
hafa löngum þótt góðir
kostir á íslenskum þing-
mönnum.
Halldór Blöndal er af þekktum alþingismannaættum, svo sem Engeyjarætt og Blöndalsætt.
Framvegis mun DV birta tilkynning-
ar um stórafmæli, afmælisbörnum
að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar
munu birtast á ættfræðiopnunni
sem verður í helgarblaði DV á föstu-
dögum. Með stórafmælum er hér átt
við 40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75
ára, 80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og
100 ára afmæli.
Þær upplýsingar sem hægt er að
koma á framfæri í slíkum tilkynning-
um eru nafn afmælisbarnsins, fæð-
ingardagur þess og ár, starfsheiti,
heimilisfang, nafn maka, starfsheiti
maka, nafn barna (án fæðingardags,
starfsheitis eða maka), nafn foreldra
afmælisbarnsins og tilkynning um
gestamóttöku eða önnur áform varð-
andi afmælisdaginn.
Á hverjum föstudegi verða birtar
slíkar tilkynningar um þá sem eiga
afmæli á föstudeginum sem blaðið
kemur út á til fimmtudags í vikunni
á eftir. Þannig verða tilkynningarnar
um afmæli á sjálfum útgáfudeginum
og næstu viku fram í tímann.
Senda skal afmælistilkynningar á
netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn-
ar verða að berast blaðinu eigi síðar
en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar
brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd
af afmælisbarninu.
AfmælistilkynningAr BirtAr á ættfræðisíðu DV