Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Blaðsíða 16
Þingmenn skrópa í vinnunni
föstudagur 23. mars 200716 Fréttir DV
Dagný Jónsdóttir framsóknarkona
fær lökustu einkunn fyrir mætingu
á þingfundi þennan veturinn, þeg-
ar teknar eru saman upplýsing-
ar um fjarvistir þingmanna. Dagný
hefur misst úr nítján þingfundi af
96. Þannig hefur hún verið fjarver-
andi á fimmta hverjum þingfundi.
Fast á hæla hennar kemur Rann-
veig Guðmundsdóttir, Samfylkingu.
Hún mætti ekki í sextán daga alls.
Ásta Möller, Sjálfstæðisflokki, sleppti
þrettán dögum. Næst koma þau Mar-
grét Frímannsdóttir, Jón Kristjánsson
og Jónína Bjartmarz, en þau slepptu
því að mæta í tólf daga í vetur.
Ekki öll sagan sögð
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Alþingis eru fjarvistar-
skrár þingmanna ekki alls kostar ná-
kvæmar. Allar líkur eru þannig á því
að Dagný Jónsdóttir hafi verið sam-
viskusömust við að tilkynna fjarvistir
sínar í stað þess að hafa flestar fjar-
vistirnar.
Strangt til tekið er þingmönnum
aðeins skylt að vera viðstaddir at-
kvæðagreiðslur. Þannig geta þing-
menn haldið ræður fyrir tómum sal
án þess að nokkuð teljist athugavert
við það.
Svo eru þeir sem bara líta við í
upphafi fundar, en fara svo og skila
sér ekki aftur yfir daginn. Þessir ein-
staklingar eru ekki skráðir í kladd-
ann.
„Ég veit það ekki“
:Bjarni Bendiktsson starfar fyrir
Olíufélagið. Hann hefur verið fjar-
verandi frá þinginu svo vikum skipt-
ir. Sama gildir um Guðlaug Þór Þórð-
arson, en hann er stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur. Þeir þing-
menn sem sjaldnast sjást í þinginu
koma þó jafnan til leiks þegar mik-
ilvæg mál eru til afgreiðslu sem til-
heyra nefndum sem þeir sitja í.
Bjarni banadiktsson var spurð-
ur hvort allar fjarvistir væru skráð-
ar. „Ég bara veit það ekki, þú verður
að spurja þau út í þetta niður í þingi,“
sagði Bjarniþ
Ráherrarnir sér á parti
Oft bregður við að ráðherrar rík-
isstjórnarinnar eru ekki viðstadd-
ir þingfundi. Oft er mikið að gera hjá
ráðherrunum annars staðar en í þing-
inu. Þannig er oftast horft til þess að
þeir séu að minnsta kosti við þegar
þeir þurfa að svara fyrirspurnum.
Úr ráðherraliðinu eru skráðar
fjarvistir Jónínu Bartmarz umhverf-
isráðherra flestar. Á kjölfarið kemur
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra,
sem var fjarverandi í níu daga. Aðrir
ráherrar sem koamast á fjarvistal-
istann eru þau GeirHaarde forsæt-
isráðherra, Siv Friðleifsdóttir heil-
brigðisráðherra, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
og Valgerður Sverrisdóttir utanríkis-
ráðherra.
Aðrir sem hurfu
:Aðrir þingmenn sem misst hafa
úr í vetur eru þeir Lúðvík Bergvins-
son, Samfylkingu, Birkir Jón Jónsson,
Framsóknarflokki, go gunnar Örlygs-
son, Sjálfstæðisflokki.
Eftir því var tekið meðal þing-
manna að Birkir Jón Jónsson hvarf
frá störfum í nokkurn tíma í kjölfar
þess að málefni Byrgisins komust í
hámæli nú eftir áramótin. Varamað-
ur var kallaður inn.
Frá vegna veikinda
„Ég var veik í síðustu viku, það
skýrir eitthvað af þessu,“ segir Ásta
Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokk-
inn. Hún var með þrettán skráðar
fjarvistir á síðasta þingi og er það
mesti fjöldi hjá stjórnarþingmanni.
Þá var hún í útlöndum, á eigin veg-
um, í fimm daga í febrúar og segir
Ásta varaþingmenn helst ekki kall-
aða til fyrir svo stuttan tíma.
Fjarvistarskrá Alþingis tekur aðeins til þeirra þingmanna sem
láta vita að þeir ætli ekki að mæta. Hinir, sem bara sleppa því að
mæta, komast ekki á skránna. Dæmi eru um þingmenn hafi lítið
mætt í vetur en séu samt með nær óaðfinnanlegan kladda.
Var að vinna fyrir þingið
„Ég mæti alltaf og ef búið er að
taka fjarvistir vegna ferða á vegum
þings og veikinda þá eru þetta mis-
tök,“ segir Rannveig Guðmundsdótt-
ir þingmaður Samfylkingarinnar í
suðvesturkjördæmi en hún var með
næst verstu mætingu á þing á eft-
ir Dagnýju Jónsdóttur þingmanns
Framsóknarflokksins.
„Fjarvistir mínar eru vegna þess
að ég er að að vinna fyrir þingið.
Annar norðurlandaráðs og hinsveg-
ar norðurskautssamstarfinu. Hugs-
anlega er að ég hafi farið meira á
vegum þingsins.“
SiGtRyGGuR ARi JóHAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Slapp með
skrekkinn
Lúðvík
Bergvinsson
sleppti því að
mæta í átta
daga í vetur
samkvæmt
kladdanum.
Hann var þó
fjarverandi
mun lengur.