Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2007, Page 44
föstudagur 23. mars 200744 Helgarblaðið DV
Matgæðingur síðustu viku, Gunnar M.
Erlingsson, endurskoðandi skoraði á
frænku sína Hrafnhildi Hákonardóttur,
einkaþjálfara að gefa uppskriftir í DV
í dag. Um Hrafnhildi sagði Gunnar
að hún væri ekki bara besta frænka
sín, heldur góður vinur líka. „Hún er
frábær kokkur og kemur manni sífellt
á óvart með framandi og spennandi
réttum,“ sagði Gunnar. Hrafnhildur
brást vel við bón frænda síns og
gefur hér uppskriftir að sannkallaðri
hollustu.
„Matseðillinn er salat – nema
hvað!“ sagði Hrafnhildur en í ljós
kom að hún býður upp á fleira.
Salat með lime Safa
l romanie salat.
l skalottulaukur brytjaður ofaná,
l Pipar
l 1-2 avocado
„DreSSing“
l safi úr einum lime ávexti
l smá börkur af lime rifinn út í.
l salt
l græn ólífuolía
l Kóríander
l fersk mynta.
l Hellt yfir salatið.
l steikja Puppudums Nan brauð í
olíu, 2-4 stykki og brytja út á
salatið.
KvölDverður að hætti
habbýar:
l Eggaldin skorin langsum í flísar.
sett í eldfast form í heitan ofn þar
til fer að linast.
SóSa
l saffran leyst upp í vatni (ekki nauðsynlegt!)
l fersk mynta
l ristaðar furuhnetur
l Laukur
l Lífrænt ræktuð melónujógúrt
l Pipar
l salt
l öllu blandað saman og hellt yfir
eggaldinið. sett aftur í ofn. furu-
hnetum og ferskum myntulaufum
stráð yfir.
Marineraðar
kjúklingabringur
að hætti læknisins
Þau leiðu mistök urðu þegar sigurjón
Vilbergsson læknir var matgæðingur
vikunnar í dV, að uppskrift að aðalrétti
hans fór ekki inn á síðuna. Við bætum úr
því hér, enda boðið upp á lystaukandi
kvöldverð.
Marineraðar kjúklingabringur
(má einnig nota lambafilé)
(fyrir fjóra)
l 6-8 kjúklingabringur eða 800 gr af
lambafilé
marinering:
l 6 matskeiðar af extra virgin ólífuolíu
l 1 matskeið af fínhökkuðu rósmarín
l ½ -1 matskeið af grófmöluðum
svörtum pipar
l ½ glas af aceto Balsamico
l 1 glas af rauðvíni
Blandið kryddblönduna vel saman og
leggið kjötið í löginn í um það bil 2 tíma.
snöggsteikið kjötið á pönnu þannig að
það brúnist en haldi safanum. til að fá
kraft í sósu er notað eitt glas af rauðvíni
og hálft glas af aceto Balsamico sett á
pönnuna og látið sjóða. Ef notaðar eru
kjúklingabringur er gott að skera í þær
miðjar og setja til dæmis ólífupestó á
milli. Kjötið er sett í ofn á 180° C í um það
bil 10 mínútur. takið kjötið út og látið það
standa svolitla stund. Berist fram með
ofnsteiktum kartöflubátum, grænmeti og
rauðvíns/balsamicosósu.
U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s
&Matur vín
Rauðvínsmolar
Það er vissulega kostur að hægt sé að kaupa rauðvín á litlum flöskum,
sérstaklega þegar vínið skal eingöngu notast sem bragðefni í sósur
eða annað. Hins vegar bregður oftar en ekki við að afgangur verður
af víninu og í stað þess að hella því niður er til einföld og snjöll lausn.
setjið afgangs vínið í ísmolapoka í frysti. Þannig er alltaf til rauðvín í
sósuna þegar þörf er á.
Hrafnhildur Hákonardóttir einkaþjálfari Matgæðingurinn
Hollir réttirendurskoðandansSpeltmuffins með banana, hnetum og súkkulaði
tólf til Sextán StyKKi
l 3 dl hrásykur
l 150 g smjör
l 4 stór egg
l 3 dl spelthveiti,
sigtað
l 2 tsk lyftiduft
l 2 þroskaðir bananar, stappaðir
l 1 dl dökkt súkkulaði, hakkað
l 50 g heslihnetur, hakkaðar
Hrærið sykur saman við bráðið smjörið,
bætið eggjunum út í og hrærið vel.
Hrærið hveiti og lyftidufti saman við og
að lokum bananastöppunni, súkku-
laðinu og hnetunum. setjið blönduna í
muffinsform og bakið við 180 gráður,
þar til að þau verða gyllt. Það tekur u.
þ.b. 20 mínútur. Borðið volg með heitu
tei. Þau haldast fersk í tvo daga ef
geymd í góðu íláti.
Hrafnhildur skorar á vinkonu
sína, Guðnýju Aradóttur, sem gegnir
mörgum störfum. Hún er starfsmað-
ur Íslandspósts, einkaþjálfari í hjá-
verkum og stafgönguleiðbeinandi.
„Ég skora á Guðnýju því hún er allt-
af að hóta því að bjóða mér í mat en
stendur aldrei við það!“ segir Hrafn-
hildur.
Leitað er að blaðamönnum til að skrifa
innlendar fréttir, erlendar fréttir og dægurmál.
Reynsla af blaðamennsku er æskileg en ekki
skilyrði. Nauðsynlegt er að umsækjendur geti
hað störf hið fyrsta.
Áhugasamir sendi umsóknir á brynjolfur@dv.is
eða hringi í síma 512 7000 og tali við Brynjólf eða Sigurjón.
DV vantar blaðamenn til starfa