Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 18
Þ
ú hefur lengi verið umtalaður
sem einhvers konar Voldemort
í íslensku samfélagi. Hvernig
er að búa við það?
„Það er auðvitað erfitt að
sitja undir slíku en það sem er kannski
erfiðast við þessar aðstæður er þegar
sögð eru um mann sömu ósannindin
aftur og aftur. Ég held að þeir sem það
gera viti oft betur og viti hið sanna. Þetta
fólk hefur tekið sér eitthvert vald til að
draga af mér æruna. Ég átta mig ekki á
því hvaðan það vald er fengið. Hitt veit ég
að Rannsóknarnefnd Alþingis var fengið
ákveðið vald með lögum til að kanna að-
draganda og ástæður bankahrunsins á
Íslandi. Áður en nefndin skilaði af sér
höfðu menn úttalað sig um það að ég
væri einn af aðalmönnunum í banka-
hruninu. Þegar skýrslan hins vegar kom
út var hún lofuð í hástert og sagt þarna
væri komnar samanteknar allar ástæður
þess hvernig fór. Mitt nafn kemur held ég
fyrir á þremur stöðum í skýrslunni. Þar
er vitnað í minnisblað sem ég skrifaði
1998, sem viðskiptaráðherra, þar sem ég
vildi fara aðra leið í einkavæðingu bank-
anna en menn voru að hugsa um á þeim
tíma. Á tveimur öðrum stöðum í skýrsl-
unni kemur mitt nafn fyrir á lista ásamt
fjölmörgum öðrum þar sem teknar eru
saman skuldir félaga sem mér tengjast
hjá bönkunum.
Þó að ég hafi, eftir öll þess ár í póli-
tík, þykkan skráp og útiloki mig oft frá
þessu þá er þetta auðvitað sárt fyrir fjöl-
skylduna, vini mína og þá sem standa
mér næst, og vita betur; að þarna er um
ósannindi og lygi að ræða. Það er erf-
itt fyrir þetta fólk að sitja undir þessum
ásökunum og það er kannski fyrst og
fremst vegna þess sem ég er tilbúinn að
fara í viðtal eins og þetta. Fyrir mér vakir
að setja þannig niður á blað það sem er
satt og rétt í þessu.“
En hvernig er líðanin hjá þér vegna
þessa?
„Þetta er auðvitað voðalega lýjandi. Ég
er hins vegar þeirrar skoðunar, og það
er mín sannfæring, að þeim muni koma
þetta í koll síðar sem taka sér það fyrir
hendur að halda þessum ósannindum á
lofti. Ekki vegna þess að ég sé að leita
hefnda heldur er það mitt lífsmottó að
maður hitti alltaf sjálfan sig fyrir þegar
upp er staðið. Sannleikurinn mun alltaf
koma í ljós.“
Þrjú dæmi um ósannindi
Hvaða ósannindi eru þetta sem þú ert að
tala um?
„Ég skal nefna þrjú dæmi. Því hefur
stöðugt verið haldið fram að ég hafi pers-
ónulega hagnast þegar ríkið seldi Búnað-
arbankann. Það hefur verið sagt ítrekað
að ég hafi verið persónulega þátttakandi
í þeirri einkavæðingu. Það er alrangt.
Hvorki ég, né félög í minni eigu, eignuð-
ust eina einustu krónu í Búnaðarbank-
anum þegar hann var einkavæddur. Ég
undirritaði hins vegar samninginn fyrir
hönd VÍS um kaupin á um 3% hlut í bank-
anum enda þá forstjóri félagsins.
Annað dæmi er Frumherji. Því hefur
stöðugt verið haldið á lofti að ég hafi í
Sannleikurinn mun alltaf koma í ljós
skjóli einhverra pólitískra tengsla eignast
það fyrirtæki og eignast alla orkumæla
Orkuveitunnar. Hið rétta í þessu er það
að ég er minnihlutaeigandi í Frumherja.
Við eignuðumst okkar hlut í félaginu í
júní 2007. Sex árum áður bauð Orkuveit-
an út orkumælana í Reykjavík. Frumherji
bauð í þá ásamt fjölmörgum öðrum og
var með lægsta verðið og fékk því verk-
ið. Stjórnendur Orkuveitunnar létu við
þetta tækifæri hafa eftir sér að þetta væri
mjög hagstæður samningur og myndi
spara Orkuveitunni verulegar fjárhæðir.
Allir starfsmenn OR sem unnu við þetta
voru ráðnir til Frumherja eða stóð það til
boða. Aftur var þessi samningur boðinn
út í ársbyrjun 2007, áður en við keyptum
í félaginu, og aftur var Frumherji með
lægsta verðið. Þannig að það er alrangt
sem haldið hefur verið fram að ég hafi á
einhvern hátt komið að þessu einstaka
máli í rekstri Frumherja. Þá verð ég líka
að segja að þær tölur sem nefndar hafa
verið í þessu samhengi eru algerlega úr
lausu lofti gripnar.
Þriðja dæmið er Gift. Því hefur verið
haldið fram að ég hafi verið aðalforkólf-
urinn í Gift og Samvinnutryggingum og
hafi hagnast verulega á viðskiptum við
það félag. Það hefur farið fram úttekt á
starfsemi Giftar. Lagastofnun Háskóla
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra og seðlabankastjóri, er einn umdeildasti maður á Íslandi.
Honum hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa efnast gífurlega á einkavæðingunni í skjóli valds og tengsla og
nánast allt sem hann hefur komið nálægt hefur verið úthrópað í nafni spillingar. Í samtali við Fréttatímann
segist hann vera orðinn leiður á rangfærslum og ósannindum í sinn garð og vill gera hreint fyrir sínum dyrum.
Það hefur
verið sagt
ítrekað að
ég hafi verið
persónulega
þátttakandi í
þeirri einka-
væðingu. Það
er alrangt.
Hvorki ég, né
félög í minni
eigu, eignuð-
ust eina ein-
ustu krónu í
Búnaðarbank-
anum þegar
hann var
einkavæddur.
Ég undirritaði
hins vegar
samninginn
fyrir hönd VÍS
um kaupin á
um 3% hlut
í bankanum
enda þá for-
stjóri félagsins.
Því hefur verið
haldið á lofti
að ég hafi í
skjóli einhverra
pólitískra
tengsla eignast
það fyrirtæki
og eignast alla
orkumæla Orku-
veitunnar. Hið
rétta í þessu er
að ég er minni-
hlutaeigandi í
Frumherja. Við
eignuðumst
okkar hlut í
félaginu í júní
2007. Sex árum
áður bauð
Orkuveitan út
orkumælana
í Reykjavík.
Frumherji bauð
í þá ásamt
fjölmörgum
öðrum og var
með lægsta
verðið og fékk
því verkið.
Finnur Ing-
ólfsson segir
það vera
lýjandi að
vera líkt við
Voldemort.
Ljósmyndir/Hari
18 viðtal Helgin 12.-14. október 2010