Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 21
Ólafssonar háttað, eruð þið saman í
viðskiptum?
Við Ólafur erum gamlir skóla-
bræður og höfum verið vinir í lang-
an tíma. Við erum saman í viðskipt-
um á einum stað. Við eigum saman
graðhestinn Þey frá Akranesi.
Er hvorki gjaldþrota né
milljarðamæringur
Hver er þín fjárhagslega staða í dag?
Ég hef alla tíð búið við miklar
kjaftasögur um mína persónulegu
fjárhagsstöðu. Ýmist hef ég verið
sagður gjaldþrota eða milljarða-
mæringur. Ég hef aldrei verið sagð-
ur neitt þarna á milli. Það er hins
vegar erfitt að búa við svona kjaft-
hátt. Ég minnist oft orða ágæts vin-
ar míns úr atvinnulífinu sem sagði
við mig, þegar ég var nýbyrjaður
sem ráðherra, að það væri erfitt að
vera þátttakandi í íslensku atvinnu-
lífi því ef maður tapaði peningum
þá væri maður aumingi. Ef maður
græðir peninga þá er maður þjófur.
Þetta finnst mér lýsa þeirri stöðu
sem ég er í. Það eru stöðugt fluttar
fréttir af því að ég hafi verið að tapa
miklum peningum eða grætt mik-
ið og er miskunnarlaust flokkaður
sem aumingi eða þjófur. Staðan er
hins vegar sú að ég er hvorki að
verða gjaldþrota né milljarðamær-
ingur. Ég hef, eins og allir, tapað
miklum peningum í hruninu. Ég
kemst þokkalega af og mun kom-
ast í gegnum þetta án þess að verða
gjaldþrota. Staða minna félaga er
mjög misjöfn. Sum hafa góða stöðu,
önnur ekki.
Hvernig stendur Frumherji?
Frumherji er með mjög góðan
rekstur. Fyrst og fremst ber að
þakka það frábæru starfsfólki sem
stendur þétt við bakið á félaginu.
Því sárnar auðvita fyrir hönd félags-
ins þegar það heyrir rangfærslurnar
og ósannindin sem farið er með um
félagið. Félagið greiðir afborganir
og vexti af öllum sínum lánum og er
með öll sín lán í skilum. Verði ekki
verulegar breytingar á rekstrarum-
hverfi félagsins mun það geta staðið
við allar sínar skuldbindingar. Fé-
lagið er auðvitað mjög skuldsett eft-
ir þær efnahagslegu hamfarir sem
við höfum gengið í gegnum. Núver-
andi eigendur þess hafa aldrei tekið
arð út úr félaginu og ekki stendur
til að það verði gert, heldur verði
afkoman nýtt til að styrkja félagið.
Óumdeildur stjórnmálamaður
er einskis nýtur
Staða Framsóknarflokksins í dag?
Ég veit ekkert um hana fyrir utan
það sem ég les og sé í fjölmiðlum.
Það er áratugur frá því ég mætti síð-
ast á fund hjá flokknum og þá var
ég að skila af mér umboði varafor-
manns. Ég tók þá ákvörðun að hafa
ekki afskipti af pólitík. Ég hafði
sjálfur gagnrýnt menn sem voru
hættir fyrir að vera að lýsa skoðun-
um á einstökum málum sem voru
uppi. Ákvað að standa ekki í slíku.
Ég hef engin samskipti við forystu-
menn flokksins og þar er ég að vísa
til alls þingflokksins, meðal annars.
Langflesta þekki ég ekki neitt og er
ekki einu sinni málkunnugur þeim.
Það er hins vegar umhugsunar-
efni að menn sem fara í pólitík og
hætta sjálfviljugir skuli ekki geta
gengið þaðan út og verið látnir í
friði. Ég tala nú ekki um ef verið er
að velta mönnum upp úr því í heilan
áratug, hafi þeir verið þátttakendur
á þessum vettvangi. Ég hef oft velt
því fyrir mér hvað liggur þarna að
baki. Bara þetta eitt og sér gerir það
ekki áhugavert fyrir ungt fólk að
hasla sér völl á þessum vettvangi.“
Og hvað veldur? Af hverju ert þú
til dæmis svona umdeildur?
Ég hef reyndar alltaf verið þeirrar
skoðunar að stjórnmálamaður sem
ekki er umdeildur sé einskis nýt-
ur. Óumdeildur stjórnmálamaður
hefur ekki skoðanir og ekkert til að
berjast fyrir. Því flokkar hafa mis-
munandi stefnur og skoðanir og
þar af leiðandi hljóta menn að verða
umdeildir, séu þeir að berjast fyrir
stefnumálum sinna flokka. Ég sótti
þau mál fast sem ég barðist fyrir.
Það kann vel að vera að ég hafi ekki
sést fyrir í þeirri baráttu. Ég náði
hins vegar árangri og kom málum í
framkvæmd. Sum þeirra mála voru
umdeild en ég velti því aldrei fyrir
mér hvort það leiddi til vinsælda eða
ekki. Stjórnmálamenn sem tala allt-
af eins og þeir halda að almenning-
ur vilji heyra eru ekki raunverulegir
stjórnmálamenn. Það eru lýðskrum-
arar sem hafa enga sannfæringu til
að fylgja.“
Hvernig er samband þitt við Hall-
dór Ásgrímsson?
„Við erum vinir og höfum verið
það til margra ára. Hann er í Dan-
mörku en ég hér og við hittumst
þegar við getum en tækifærum hef-
ur fækkað vegna fjarlægðarinnar.“
Hvað fannst þér um áframhald-
andi ráðningu hans hjá Norður-
landaráði?
„Halldór var beðinn að fram-
lengja ráðningu sína, og það af
flestum forsætisráðherrum Norð-
urlandanna, af þeirri ástæðu að
hann stóð sig vel. Mér finnst dap-
urt hvernig íslenskir stjórnmála-
menn hafa komið fram við hann í
því máli.“
Hver er þín afstaða til Evrópusam-
bandsins?
„Ég hef sveiflast í afstöðunni til
inngöngu í ESB. Ég er þeirrar skoð-
unar núna að þangað sé ekki mikið
að sækja. Ég tel að við eigum að
klára aðildarviðræðurnar sem nú
eru í gangi en hef ekki trú á að út
úr því komi hagfelldur samningur.”
Hvað með íslensku krónuna?
„Krónan hefur þrátt fyrir allt
bjargað okkur. Ég held hins vegar,
þegar við horfum til lengri tíma,
að við þurfum að taka upp stærri
og sterkari gjaldmiðil ef við ætlum
að bjóða fólki og fyrirtækjum upp
á sambærileg kjör og aðstæður og
fólk og fyrirtæki á stærri mynt-
svæðum býr við. Mér finnst ekki
sjálfgefið að við tökum upp evru.
Ég held að við eigum alveg eins að
horfa til dollars.”
Þessi vetur í íslensku samfélagi?
„Hann ræðst mjög af því til hvaða
aðgerða ríkisstjórnin mun grípa. Ég
held að við séum í þeirri stöðu að
geta í vetur og næsta ár komist út úr
þessum erfiðleikum. Það er búið að
skapa ákveðnar aðstæður til þess.
Ég vona að ríkisstjórnin fylgi því
bara eftir. Þá Þarf að grípa til nokk-
urra ráða. Það verður að koma til
móts við skuldir heimilanna í land-
inu. Finna leið til að bjarga þeim út
úr skuldakreppunni. Við þurfum
að fara í markvissa uppbyggingu
á atvinnulífi í landinu og nýta þá
fjárfestingarkosti sem fyrir hendi
eru. Og í þriðja lagi þarf að fara í
fjárhagslega endurskipulagningu
á fyrirtækjum í landinu. Ef ríkis-
stjórnin gerir þetta, hef ég þá trú að
það sé tiltölulega bjart fram undan
hjá okkur.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
viðtal 21 Helgin 12.-14. nóvember 2010