Fréttatíminn - 12.11.2010, Side 39

Fréttatíminn - 12.11.2010, Side 39
Þriðjudags- morguninn 5. febrúar 1980 kasta ritstjórar Morgunblaðsins stríðshansk- anum. Forystu- grein blaðsins nær yfir heila síðu og heitið er sláandi: „Rúblan“. H ér er gripið niður í frásögn af hinni umdeildu stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsen snemma árs 1980. Áform hans um samstarf Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og nokkurra þingmanna Sjálfstæðis- flokksins undir eigin forsæti hafa komist í hámæli. „Skein yfir landi sól á sumarvegi“. Þriðjudagsmorguninn 5. febrúar 1980 kasta ritstjórar Morgunblaðsins stríðs- hanskanum. Forystugrein blaðsins nær yfir heila síðu og heitið er sláandi: „Rúblan“. Lagt er út af þeirri staðreynd að Gunnar Thoroddsen hafi stundað sitt leynimakk í húsi Máls og menningar sem blaðið kallaði oft „Rúbluna“ út af „Rússagullinu“ sem það var að hluta byggt fyrir. Í hinni nýju stjórn munu „kommúnistar“ öllu ráða, „Rúblan“ skal hún því líka heita. Viðurnefnið festist aldrei við stjórnina og Gunnar er í sama baráttuhug og þeir Morgunblaðsmenn. Orð Ólafs G. Ein- arssonar um brottrekstur úr þingflokki segir hann „fásinnu“; til þess sé engin heimild í lögum Sjálfstæðisflokksins og var það í sjálfu sér rétt. Hins vegar höfðu lögspekingar flokksins tæpast séð fyrir sér þá stöðu sem nú er upp komin, allt er orðið með eindæmum í íslenskum stjórnmálum. En allt er líka Gunnari í hag. Um morguninn er hiki í huga Friðjóns Þórðarsonar eytt. Líklega er það þennan morgun að Friðjón kemur einu sinni sem oftar að máli við þá Jón Guðmundsson og Sverri Kristinsson sem reka fasteignasölu í Vonarstræti 12, hinu gamla stórhýsi Skúla Thorodd- sens. Þar hafa á annan tug þingmanna einnig aðstöðu, þeirra á meðal Friðjón. „Nú er hann í öngum sínum,“ segir Jón Guðmundsson síðar; honum bjóðist ráðherrastaða en geti flokkurinn ekki klofnað? Jón þykist vita hvar hugur Frið- jóns liggur og slær á óttann: „Auðvitað áttu að ganga að þessu, þetta er þitt eina tækifæri til að verða ráðherra, það býðst aldrei aftur.“ Miklu mun líka hafa ráðið að Kristín Sigurðardóttir, eiginkona Friðjóns Þórðarsonar, og móðir hans, Steinunn Þorgilsdóttir, hvöttu hann ætíð til dáða. Klukkan tvö eftir hádegi kemur Gunnar Thoroddsen á Bessastaði, í fall- egri froststillu. Hann tekur við umboði forseta Íslands til myndunar ríkisstjórn- ar. Áður hefur hann sannfært forseta um að frá Friðjóni og Pálma muni hann fá „einhvern stuðning“. Það hlýtur að duga Kristjáni Eldjárn úr því sem komið er, um það reynast allir hans ráðgjafar sammála. Haft er á orði við þetta tilefni að Gunnar sé „mjög glaðlegur og hressi- legur“. Öðru máli gegnir hins vegar um Geir Hallgrímsson. Hann er „ofboðslega þreyttur“, segir einn stuðningsmanna hans, svo lúinn að hann leggst til hvílu heima fyrir og missir af upphafi þing- flokksfundar Sjálfstæðisflokksins klukk- an þrjú. „Það má mikið vera ef hann á að ná sér upp úr þessu, ef hann gerir það þá,“ segir Geirsmaðurinn jafnframt. Á fundi þingflokksins gefa Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson sterklega í skyn að þeir muni styðja Gunnar Thor- oddsen. Harðorð ályktun miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins þetta eftirmiðdegi breytir engu um það og klukkan sex að kvöldi situr Pálmi Jónsson viðræðufundi um gerð stjórnarsáttmála í fyrsta sinn. Friðjón Þórðarson á ekki heimangengt, hann fagnar afmæli sínu. Flokkshollir sjálfstæðismenn hugsa aftur á móti með sér hvort forseta Ís- lands hafi borið skylda til að veita Gunnari Thoroddsen umboð til mynd- unar ríkisstjórnar; vilyrði um stuðning við hann séu veik og forseti hafi með þessum hætti afdrifarík áhrif á stjórn- mál í landinu. Þetta kvöld eða ein- hvern tímann seinna í vikunni er Davíð Oddsson gestur í veislu á Bessastöðum og segir á útleið eitthvað á þessa leið við Kristján Eldjárn: „Ég vissi ekki til þess að það eigi að vera í verkahring forseta að kljúfa stærsta stjórnmálaflokk þjóðarinnar.“ Þeir þekktust vel; Davíð og Þórarinn, sonur forseta, voru trúnaðar- Stjórnarmyndun 1980 og Sjálf- stæðisflokkur á barmi klofnings Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is HÁTÍÐAMATSEÐILL JÓLAANDINN Á GEYSI 4 gerðir af grafl axi með mangódill- sósu, kryddbrauði og klettasalati. Seljurótarsmakk með truffl uolíu. Appelsínu önd með eplasósu, sæt- kartöfumauki, döðlum og eplum. Heitur súkkulaðibrunnur með ris a’la mande. Verð kr. 5.900 Föstudaga til sunnudaga eftir kl. 18.00 4 rétta Ævisaga Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing er meðal athyglisverðustu bóka vetrarins. Guðni fékk frjálsan aðgang að mjög opinskáum og persónulegum dag- bókum Gunnars við ritun bókarinnar. vinir. Í því ljósi verður að skilja sneið- ina og sömuleiðis viðbrögð Kristjáns sem svarar að bragði: „Þú ferð ekki út úr þessu húsi, strákur, með þessi orð á vörum.“ Ræða þeir svo í þaula stöðu Gunnars Thoroddsens, Sjálfstæðis- flokksins og Alþingis. Þeir skilja sáttir, en ekki sammála. *** „Nú er annaðhvort að hrökkva eða stökkva.“ Þetta segir Friðjón Þórðar- son þegar Atli Rúnar Halldórsson, blaðamaður Dagblaðsins, nær tali af honum í morgunsárið, miðvikudag- inn 6. febrúar 1980. Og ennfremur: „Við [Pálmi Jónsson] ætlum að líta á þennan margumtalaða málefnasamn- ing upp úr hádeginu eða síðdegis í dag. Annað er ekki að segja um málið í bili.“ Áður hafa þingmennirnir tveir heyrt um megindrætti og lagt sitthvað til málanna. Eftir hádegi sitja þeir á fundi með Gunnari Thoroddsen, Eggert Haukdal og fulltrúum Framsóknar- flokks og Alþýðubandalags; Jóni Helgasyni, Tómasi Árnasyni og Stein- grími Hermannssyni, Hjörleifi Gutt- ormssyni, Ólafi Ragnari Grímssyni og Svavari Gestssyni. Auk Ragnars Arnalds og Guðmundar G. Þórarins- sonar eru þetta mennirnir sem mest hafa komið við sögu undanfarna daga – og ráðherraefni væntanlegrar ríkis- stjórnar er jafnframt að finna í þessum hópi. Upp eru komnar hugmyndir um skiptingu ráðuneyta en fyrst er þó stefnt að því að ljúka gerð málefna- samnings. Jafnframt verða til drög að trúnaðarsamkomulagi um verklag, neitunarvald og þingrofsrétt í hinni nýju ríkisstjórn. Eru þau rituð af Ragn- ari Arnalds en hafa verið lesin yfir af Steingrími Hermannssyni og Gunnari Thoroddsen, ef ekki fleirum. Drögin kveða á um „að engin tilraun verði gerð til að knýja fram ákvörðun í ríkis- stjórn sem ágreiningur er um, þannig að hver aðili hafi í raun neitunarvald ef hann vill beita því“, og síðan „að þing verði ekki rofið án samþykkis þeirra þriggja aðila sem að stjórninni standa“. Víkur þá sögunni annað. Um sama leyti og ríkisstjórn er í bígerð við Laugaveginn vilja áhrifamenn í Sjálf- stæðisflokknum reyna til þrautar að snúa Friðjóni Þórðarsyni og Pálma Jónssyni. Til er upptaka af símtali þingmanns í stuðningsliði Geirs Hall- grímssonar þennan dag við innan- búðarmann í flokknum sem er frekar á bandi Gunnars Thoroddsens. Þing- maðurinn telur stjórnarmyndunina feigðarflan en viðmælandinn er á öðru máli: Innanbúðarmaður: „Fólki finnst þetta vera það sem þurfti að koma. Geir hefur ekki einn einasta stuðningsmann hérna. Og það trúði honum og treysti enginn til þess að geta gert það sem Gunnar er að gera. Og þess vegna segir fólk bara: Þetta var akkúrat nákvæmlega það sem þurfti að koma.“ Þingmaður: „Já, já. En svo segir sko Geir að árangur hafi enginn getað orðið hjá sér vegna þess að Gunnar hafi alltaf ...“ Innanbúðarmaður: „... já, þetta eru bara eins og krakkar sem segja: Það er verið að hrekkja mig. Þannig kemur það [út] ...“ Þingmaður: „... já, já, það virkar þannig á fólk. Ég er alveg klár á því að Gunnar hefur verið yfir í þessu áróðurs- stríði sem þeir hafa háð.“ Á Alþingi 1980 Loft lævi blandið. Frá vinstri: Pálmi Jónsson, Gunnar Thoroddsen, Friðjón Þórðarson og Geir Hallgrímsson. bækur 39 Helgin 12.-14. október 2010

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.