Fréttatíminn - 12.11.2010, Qupperneq 52

Fréttatíminn - 12.11.2010, Qupperneq 52
52 heimili Helgin 12.-14. nóvember 2010 Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Háls- og herðanudd • Shiatsu nudd með hita • Dregur úr vöðvaspennu • Vönduð vara Opið virka daga kl. 9 -18 og laugardaga kl. 11 - 16 Nuddsæti • Shiatsu herða- og baknudd • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd • Djúpslökun - infrarauður hiti Shiatsu iljanudd • Endurnærandi fótanudd • Þriggja punkta nudd • Djúpnudd með hita Withings vogin • Þyngd og fituhlutfall skráð • Þráðlaus samskipti við tölvu • Tengist iPhone og iPod touch • Skynjar hver notandinn er • Allt að 8 notendur Framúrskarandi tækni og útlitshönnun Rakatæki frá AIR-O-SWISS • Auka gæði loftsins • Hljóðlát og sparneytin • Viðurkennd hönnun • Auðveld í notkun H eimalagað engiferöl í glasi, gamaldags Kitchen Aid-hrærivél í bláu eldhúsi, línóle-umdúkur á gólfinu og úti er nýfallinn snjór á trjánum sem sum hver eru þung af reyniberjum og eitt verður bleikt þegar falleg vetrarsólin skín á það. Sama fallega birtan streymir inn í notalegu íbúðina í Vestubænum þar sem Margrét Sigrún Sigurðardótt- ir, kennari við Háskóla Íslands, býr og situr í mjúkum leðursófa og sýpur á engiferöli um leið og hún segir frá ótal munum sem prýða íbúðina. Flestir eiga þeir sína sögu og sumir hverjir koma frá afa hennar og ömmu. „Afi smíðaði lampann þarna í horninu og gamla handknúna saumavélin er frá ömmu sem fékk hana þegar frúin, sem hún var í vist hjá, fékk fótknúna vél.“ Í anddyrinu stendur gamalt borð sem Margrét Sigrún hafði í fórum sínum þegar hún kom heim úr doktorsnámi í viðskiptafræði í Kaupmannahöfn. „Ég bjó í litlu húsnæði og þurfti að nýta þetta sem skrif- borð. Borðið fann ég í antíkverslun í Kaupmannahöfn en komst að því seinna að það væri frá Svíþjóð. Sem sagt sænsk hönnun fyrir tíma IKEA,“ segir Margrét Sigrún og brosir. Fleira hafði hún í fórum sínum frá Kaupmannahöfn, meðal annars loftljós sem hanga í stofunni. „Ég starði oft inn um búðargluggann á þessi ljós þegar ég hljólaði þar fram hjá nánast dag- lega, en námsmannstekjur mínar komu í veg fyrir að ég gæti eignast þau. Systir mín ákvað þá að gefa mér ljósin í afmælisgjöf og ég var svo heppin að fá þau á útsölu og fékk tvö fyrir eitt.“ Á veggjunum eru málverk, sum hver eftir Mar- gréti Sigrúnu sjálfa. „Ég var í myndlistarskóla sem barn, og svo aftur í kringum stúdentspróf þar sem ég stefndi á nám í hönnun. En þegar ég svo byrjaði í heimspeki í háskól- anum fórst hönnunarnámið einhvern veginn fyrir, og þar með myndlistarnámskeið. Þörfin fyrir að skapa vaknaði svo aftur þegar ég var að vinna sem tengill á auglýsingastofu og ég ákvað að skrá mig á námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík og er, held ég, langt komin með að taka öll olíumálunarnámskeiðin sem boðið er upp á þar.“ Listræns handbragðs hennar gætir víða; í hillum, á veggjum og í gluggum. „Í leiguhúsnæði í Kaupa- mannahöfn er krafa um að allir veggir séu beinhvítir svo að það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim og eignaðist þessa íbúð var að mála veggina í litum. Ég get varla hugsað mér hvíta veggi, ég verð að mála þá.“  Í Vesturbænum Þetta borð fann Margrét Sigrún í antíkbúð í Kaup- mannahöfn þegar hún leitaði að nógu smáu skrifborði til að koma fyrir í litlu rými. Borðið er antík frá Svíþjóð. Ljósmyndir/Hari Listrænt og notalegt heimili Gamalt og nýtt í bland Fortíðarhyggja og einstök húsgögn með sál einkenna notalega íbúð Mar- grétar Sigrúnar Sigurðardóttur sem býr í Vesturbænum í næsta húsi við vinnustað sinn, Háskóla Íslands. Rokkinn erfði Margrét Sigrún eftir ömmu sína. Upprunalegur línóleumdúkur er á gólfunum. „Hann leit ansi illa út þegar ég fékk íbúðina en pabbi réðst á hann og náði að gera hann mjög fallegan með mikilli vinnu og við teljum að hann hafi þurft að skúra gólfið hundrað sinnum meðan á framkvæmdinni stóð.“ Gamaldags útlit Kitchen Aid-hrærivélarinnar fellur vel að stíl Margrétar Sigrúnar, auk þess sem hún er í stíl við eld- húsinnréttinguna sem er í bláu. Afi Margrétar límdi oft glansmyndir á viðarplötur, skar þær út og lakkaði svo yfir myndina þannig að úr varð fallegt hilluskraut. „Ég keypti þennan sófa af því að leðrið í honum leit út fyrir að vera notað og eldist vel, auk þess sem útlit hans er tímalaust,“ segir Margrét Sigrún.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.