Fréttatíminn - 12.11.2010, Qupperneq 72
Silfurtunglið end-
urvakið í Austurbæ
Stefnt er að því að opna
veitingastað í anda veitinga-
staðarins Ruby Tuesday, en
þó í sparifötunum, í Austurbæ
við Snorrabraut í Reykjavík.
Eyjamaðurinn Þóroddur Stef-
ánsson, eigandi Austurbæjar
og Ruby Tuesday, segir stefnt
á að opna staðinn um áramót.
„Við vildum svo gjarna geta
boðið leikhúsgestum að njóta
veitinga eftir sýningar. Það
vantar einfaldlega leikhúsbar
hér á landi.“
Nafn veitingastaðarins hefur
ekki verið endanlega ákveðið:
„En ég hallast helst að því að
kalla hann Silfurtunglið í anda
skemmtistaðarins sem var hér
á árum áður,“ segir Þóroddur
sem slær hvergi af í undirbún-
ingnum og ver öllum deginum
í Austurbæ. Er þetta vertíð? „Já,
nema þessari lýkur ekki. Mað-
ur þarf alltaf að vera til taks og
sinna rekstrinum af sérstakri
alúð á svona tímum.“ gag
Fullorðinsstaður í
Austurstræti
Eftir rétta viku verður opnaður
nýr veitingastaður við Austur-
stræti í húsakynnunum þar
sem Apótekið var áður. Staður-
inn, sem hefur
ekki enn
fengið nafn, er
ætlaður þrosk-
uðum nátt-
hröfnum sem
eru orðnir
að minnsta
kosti 25 ára.
Að sögn
Draupnis Draupnissonar,
eins af bakhjörlum staðarins,
er hugmyndin að fylgja aldurs-
takmörkunum stíft eftir. „Fólk
mun ekki rekast á gelgjutöff-
ara og stífmálaðar ungskinkur
hér.“ Draupnir segir að staður-
inn verði „elegant og kósí“,
með góðu dansgólfi en líka
þægilegri spjallaðstöðu. Vinna
við umfangsmiklar breytingar
stendur nú yfir, en umsjón
með þeim hefur hönnuðurinn
Hanna Stína.
HELGARBLAÐ Hrósið…
... Íslenski barinn sem býður
upp á þjóðlega rétti á borð
við plokkfisk og lambaskanka
á aðeins þúsund krónur í
hádeginu.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Guðrún Ögmundsdóttir á
að baki dramatíska ævi en
um leið er saga hennar
saga kynslóðarinnar sem
óx úr grasi eftir síðari
heimsstyrjöld – og
baráttusaga íslenskra
kvenna á ofanverðri 20.
öld. Á síðum bókarinnar lifna við eftirminnileg böll á Borginni,
litrík ár í Kaupmannahöfn, sviptingar í kvennabaráttunni, sigrar
og ósigrar í pólitík – og ljúfsár bernskan. Halla Gunnarsdóttir
skrifar sögu Guðrúnar; heillandi ævisaga, fyndin, sorgleg og
bitastæð.
HEILLANDI,
FYNDIN OG
BITASTÆÐ
Jólabók
konunnar
Það er stundum ekkert grín að vera stelpa þótt það geti líka
verið algjört grín. Kraumandi viskubrunnur um fjölmargt sem
fylgir því að vera stelpa. Hér er að finna svör við ótal
spurningum sem vakna um ólíkustu mál – allt frá förðun til
fjárhaglegs heilbrigðis og frá mataræði til misgóðra foreldra.
„Bók sem unglings-
stúlkur mega ekki
láta framhjá sér fara“
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona
„Fræðandi
og flott bók sem
allar ungar stúlkur
ættu að eiga.“
Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir,
fjölmiðlakona
2. sæ
ti
Eym
undsson 3.11-9.11.2010
barna- og unglingabæ
kur
Fullt verð: 6.490
Tilboðsverð: 4.490
Gildir til 15.11.2010
Fullt verð: 4.990
Tilboðsverð: 3.490
Gildir til 15.11.2010