Læknablaðið - 15.09.1983, Síða 22
202
LÆKNABLADID 69,202-206,1983
Sigurður M. Magnússon1), Ásmundur Brekkan2)
GEISLASKAMMTAR TIL SJÚKLINGA VIÐ
RÖNTGENRANNSÓKNIR A ÍSLANDI
- FORRANNSÓKNIR
INNGANGUR
Frá fyrstu tíð hefur maðurinn orðið fyrir
jónandi geislum, bæði frá umhverfi sínu á
jörðinni og himingeimnum. Geislunin frá um-
hverfi mannsins á jörðinni nefnist bakgrunns-
geislun og geislunin frá himingeimnum geim-
geislun. Eftir uppgötvun geislavirkni og rönt-
gengeislunar í lok síðustu aldar og hagnýtingu
innan læknisfræði sem á öðrum sviðum, hefur
geislaálag á mannkyn aukist verulega. Vaxandi
notkun jónandi geislunar í læknisfræði til
sjúkdómsgreininga og lækninga hefur aukið
mjög vægi pessa þáttar geislaálagsins. í dag er
svo komið, að í mörgum löndum er geislaálag
á almenning vegna notkunar jónandi geislunar
í læknisfræði allt að því eins mikið eða jafnvel
meira en vegna bakgrunnsgeislunar (1).
Mikil áhersla er lögð á að halda þessari
geislun sem annarri eins lágri og hægt er. Má í
því sambandi benda á tilmæli Alþjóðageisla-
varnaráðsins (ICRP) frá 1977 (2). Sá þáttur
læknisfræðilegu geislunarinnar, sem vegur
þyngst í þessu sambandi, eru röntgenrann-
sóknir, bæði vegna þess, að geislaskammtar eru
fremur háir við þær sumar svo og vegna þess,
hve mikill fjöldi röntgenrannsókna er fram-
kvæmdur. Hér á landi eru árlega gerðar yfir
100 þúsund röntgenrannsóknir (3). Rannsóknir
á geislaskömmtum sjúklinga eru mikilvægar
með tilliti til geislavarna, því vitneskja um
stærð þeirra geislaskammta, sem um er að
ræða, er undirstaða þess, að hægt sé að beita
markvissum aðferðum til þess að minnka
geislaálagið, án þess að læknisfræðilegt gildi
röntgenrannsóknanna rýrni. Þær rannsóknir,
sem hér um ræðir, eru hluti stærra verkefnis,
sem unnið er að á vegum geislavarna Hollust-
verndar ríkisins, en það er heildarmat á
geislaálagi íslensku þjóðarinnar vegna notku-
1) Hollustuvernd rlkisins, 2) Röntgendeild Borgarspítalans.
Barst 22/04/1983. Samþykkt til birtingar og sent í prent-
smiðju 26/04/83.
nar jónandi geislunar í læknisfræði. Auk rönt-
genrannsókna er um að ræða notkun geisla-
virkra efna, bæði til sjúkdómsgreininga og
lækninga, auk geislalækninga.
Vegna þess, að röntgenrannsóknir vegna
þyngst í þessu sambandi þykir rétt að leggja
sérstaka áherslu á þann þátt geislaálagsins.
Til- þess þarf nákvæmar upplýsingar um
hinar ýmsu röntgenrannsóknir, hvað varðar
tegundir, aldurs- og kyndreifingu sjúklinga,
geislaskammta til hinna ýmsu líffæra við
mismunandi röntgenrannsóknir og fleira. Það
er því eðlilegt, að rannsókn þessari sé skipt í
þrjá þætti:
1. Söfnun upplýsinga
2. Mælingar
3. Útreikningar- úrvinnsla
Söfnun upplýsinga beinist einkum að aldurs-
og kyndreifingu sjúklinga við mismunandi
röntgenrannsóknir, svo og heildarfjölda rann-
sókna. Geislun á nokkur mikilvæg líffæri við
»geislaþungar« röntgenrannsóknir er mæld,
svo og flatarmálsgeislun. Vegna þess, hve
geislun á eitt og sama líffæri við sömu
rannsókn er breytileg, þarf að framkvæma
mælingar á miklum fjölda sjúklinga.
Niðurstöður úr fyrsta og öðrum þætti eru
undirstaða útreikninga og frekari úrvinnslu.
Mjög umfangsmiklar rannsóknir á geisla-
skömmtum til sjúklinga hafa farið fram í
ýmsum löndum, svo sem Bandaríkjunum (4),
Japan (5) og Svíþjóð (6). Hafa þær leitt í ljós
mjög mismunandi mikla geislun við sömu
röntgenrannsókn frá einu sjúkrahúsi til annars.
Einnig að hægt er á grundvelli slíkra rann-
sókna að minnka geislaálagið verulega án þess
að rýra læknisfræðilegt gildi röntgenrann-
sóknanna. Á íslandi hafa slíkar rannsóknir
ekki verið gerðar skipulega, og því er ekki vit-
að, hvert geislaálag er á íslensku þjóðina
vegna röntgenrannsókna. Þær niðurstöður,
sem hér verður greint frá, eru því af forrann-