Læknablaðið - 15.09.1983, Síða 28
206
LÆKNABLADIÐ
ólíkar vinnuaðferðir, er valda svo mismunandi
geislaskömmtum við sömu rannsókn. (Air
contrast enema). Mælingar, sem fram hafa
farið nýlega, benda til þess, að skyggnitími við
þessar rannsóknir sé nú að meðaltali mun
lægri, en hann reyndist vera sumarið 1980.
Marktækur munur er á íslensku niðurstöð-
unum og þeim sænsku, hvað snertir geisla-
skammta á brjóst við ristilrannsóknir (merkt
ristill2), þar er munurinn þrítugfaldur. Við
nánari athugun á mæligildum kom í ljós, að
þetta stafaði af nokkrum mjög háum geisla-
skömmtum, sem gefur til kynna, að brjóstið,
þ.e. TLD-mælirinn sem settur var á brjóstið,
hafi í þeim tilvikum verið í frumgeislanum.
Geislareiturinn hefur þannig verið of stór,
og það hefur valdið margfalt meiri geislun á
brjóst sjúklingsins, en þörf var á. Sökum þess,
hve fáar mælingar voru framkvæmdar, þá eru
önnur frávik ekki marktæk.
í töflu 5 eru niðurstöður forrannsóknar
bornar við niðurstöður umfangsmikilla rann-
sókna frá Bandaríkjunum, japan og Svíþjóð.
Það skal enn tekið fram, að þær niðurstöður,
sem þær íslensku eru bornar saman við, eru
meðaltöl þúsunda mælinga. Þess vegna eru
önnur frávik en brjóstaskammtur við ristil-
rannsóknir (ristill2) ekki marktæk sökum þess,
hve fáar íslensku mælingarnar eru, í þessari
forrannsókn.
HEIMILDIR
1. Unscear: »Sources and Effects of Ionizing Radia-
tion«. United Nations Publications, 1977.
2. International Commission on Radiological Pro-
tection: Recommendations of the ICRP, Publica-
tion 26, Pergamon Press, 1977.
3. Brekkan Á. Röntgenrannsóknir á íslandi á átt-
unda áratugnum, Læknablaðið 1982; 2: 32.
4. Laws PW, Rosenstein MA. A somatic dose index
for Diagnostic Radiology: Health Physics 1978;
35: 629.
5. Hashizume T. Estimation of Stochastic Risk from
medical X-ray diagnosis. Nippon Acta Radiologi-
ca 1979; 39: 170.
Tafla V. Líffæraskammtur vid röntgenrarmsóknir í
ýmsum löndum.
Rannsókn Svíþjóð 1974 Japan 1979 USA 1976 ísland 1980
Beinm ergsskamm tur (mGy)
Magi 4.20 2.28 1.16 6.94
Ristill 9.40 3.24 2.98 10.5*
Urografia 2.40 1.56 1.16 0.72
Lumbalhryggur .. 4.10 1.34 1.26 1.67 .
Brjóstaskamm tur (mGy)
Magi 1.00 2.68 0.53 2.08
Ristill 0.27 0.06 <0.01 12.6*
Urografia 5.40 4.29 2.20
Lumbalhryggur .. 1.20 1.96 <0.01 0.56
Skjaldkirtils- skammtur (mGy)
Magi 0.29 2.68 0.07 0.86
Ristill 0.10 0.06 0.002
Urografia 0.38 0.03 <0.01 0.30
Lumbalhryggur .. 0.16 0.06 0.005
Eistaskamm tur (mGy)
Magi 0.16 0.004 0.35
Ristill 5.30 0.58 3.95*
Urografia Lumbalhryggur .. 3.30 1.80 0.49 0.07 0.95
Eggjastokka- skammtur (mGy)
Magi 0.56 0.45 1.45
Ristill 7.00 7.87 10.8*
Urografia 8.80 6.36 5.36
Lumbalhryggur .. 6.20 4.05 11.34
*) 1 pessum samanburði er »Ristilli« sleppt.
6. Bengtsson C, Blomgren P-G, Bergman K, Áberg
L. Patient Exposures and Radiation Risks in
Swedish diagnostic Radiology. Acta Radiologica,
Oncology 1978; vol. 17:81.
7. McKinly A. Thermoluminescence Dosimetry,
Monography, London Adam Hilger, 1981.
8. Carlsson C, Determination of Integral absorbed
dose from exposure measurements. Acta Radio-
logica 1963; Vol. 1:433.