Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 25

Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ 397 Þegar við Jón hófum störf í heilbrigðisráðuneytinu þurfti að byggja nýtt ráðuneyti upp frá grunni og hvorugur okkar hafði starfað í ráðuneyti. Við byggðum því ráðuneytið upp eins og okkur fannst hentugast og skynsamlegast og þannig höfum við unnið saman að þessum málum alla tíð síðan og að sjálfsögðu ávallt í góðu samstarfi og undir yfirstjóm þeirra ráðherra, sem með málaflokkinn hafa farið hverju sinni. Vissulega hefur ráðherra yfirstjóm allra mála í ráðuneyti, en fastir starfsmenn verða að reyna að móta hin daglegu störf og afgreiðslur, þannig að málin séu afgreidd og reynt sé að ljúka verkefnum. A þessu tímabili höfum við starfað með 7 ráðherrum. Frá byrjun hefur skrifstofustjórinn í ráðuneytinu séð um starfsmannamál og framkvæmd vinnu á skrifstofu og fyrstu árin annaðist hann einnig öll lögfræðistörf, en fljótlega þurfti að ráða fleiri menn til þeirra starfa. Á sínum langa starfstíma í ráðuneytinu voru Jóni falin ótal nefnda- og trúnaðarstörf, og vil ég hér minnast á nokkur þeirra. Hann var skipaður í bygginganefnd Lanspítalans 1971 og síðar ritari í yfirstjóm mannvirkjagerðar á Landspítalalóð til ársins 1984. í stjómamefnd Ríkisspítalanna frá 1972 og var varaformaður frá 1974 til 1984. Árið 1977 var Jón skipaður í 21 manns fulltrúaráð sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, Landakoti og sat í yfirstjóm þeirra stofnunar, þar til á síðasta ári, að hann baðst lausnar. Það hafði lengi verið hefð, að ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytisins væri formaður stjómar Atvinnuleysistryggingasjóðs. Árið 1979 varð það að samkomulagi að Jón tæki það verkefni að sér, og var hann kosinn af Alþingi 1979 í stjóm Atvinnuleysistryggingasjóðs og skipaður formaður sjóðsins þá og aftur 1980 til 1984. Svo sem fyrr segir tók Jón frá byrjun mikinn þátt í og stjómaði löngum lagasmíð á vegum ráðuneytisins og í sambandi við það sat hann í ótal nefndum, svo sem endurskoðunamefndum um almannatryggingakerfið, nefnd til að samræma iðgjaldafiokka bátaábyrgðarfélaga, nefnd til að semja frumvarp til tannlæknalaga, nefnd til að semja og síðar endurskoða lög um heilbrigðisþjónustu, nefnd til að semja frumvarp til laga um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir, svo að eitthvað sé upp talið af þeim verkefnum, sem afgreidd voru frá ráðuneytinu á þessum tíma. Auk þess vann hann með öðrum lögfræðingum ráðuneytisins að fjöldamörgum öðmm verkefnum og lagasmíð. 1984 var Jón skipaður formaður stjómar þjónustu- og endurhæfingarstöðvar sjónskertra og gegndi þeirri formennsku þar til á síðasta ári. Frá upphafi skiptum við Jón á milli okkar umsjón með erlendu samstarfi og hafði Jón frá byrjun umsjón með samvinnu ráðuneytisins við Evrópuráðið í Strasbourg á sviði félags- og heilbrigðismála. Hann sat í stjómamefnd félagsmála frá 1971 og í stjómamefnd um félagsmálasáttmála Evrópu frá 1976 og samdi sem slíkur allar fjórar skýrslur Islands um framkvæmd sáttmálans, sem gerðar hafa verið. Hann sat í heilbrigðisnefnd stofnunarinnar 1970-77 og sérfræðinganefnd um lagaleg málefni á læknisfræðilegu sviði frá 1975. Auk þessa starfs erlendis sat Jón í öllum samninganefndum af Islands hálfu við erlend ríki um gagnkvæm almannatryggingaréttindi. Þannig tók hann þátt í gerð samninga við Stóra-Bretland og Kanada, sem búið er að undirrita, og undirbjó væntanlegan samning við Luxembourg sem stendur til að undirrita í haust og var rétt nýkominn frá samningafundi í Quibeck, er hann lést. Allt það starf, sem síðast var rakið hefur verið unnið í nánu samstarfi við utanríkisráðuneytið. Þegar norrænt almannatryggingamót var í fyrsta sinn haldið á íslandi 1960, vann Jón í Tryggingastofnuninni sem fyrr segir, og var þá annar af framkvæmdastjórum mótsins, en síðan hefur hann verið í undirbúningsnefnd norrænna almannatryggingamóta og sótt flesta þá fundi og annast bæði erindaflutning og fundarstjóm. Hér hefur að sjálfsögðu verið stiklað á stóm í sambandi við störf Jóns í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, en ekkert minnst á ýmis verkefni, sem drjúgan tíma taka, svo sem gerð fjárlagatillagna og eftirlit með fjárreiðum alls konar, en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.