Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 425 Þegar jeg nú hugsa um hvort þetta hafi verið rjett aðferð eða ekki, þá svara jeg hiklaust nei. Eina afsökunin, sem jeg hef er sú, að jeg hafði ekki um marga staði að velja til þess að senda sjúkl. mína til. Guðm. Magnúss. var eini maðurinn hjer á landi, sem um var að tala, en jeg efaðist þá aptur um, að munurinn á okkur væri svo stór, að það borgaði sig að flækja sjúkl. suður í Rvk. Til útlanda treystust aptur fáir að fara.« Guðmundur taldi rétt ».., að byrja á því einfalda smáa, en sýna því sóma og vanda sig á því sem verða má, færa sig síðan smám saman upp á skaptið, eptir því sem æfingin vex og traustið á sjálfum sjer »..« -Auðvitað brýtur nauðsyn lög, ef eitthvert skaðræði ber að höndum, sem læknir er neyddur til að ráðast í, eða láta sjúklinginn. deyja. Þá má ekkert hik eiga sér stað. Reyna verður hann operationina.« (11) Með útgáfu læknablaðs síns 1901-1904 reisti Guðmundur Hannesson sér óbrotgjaman minnisvarða, sem Þóroddur Jónasson hefur gert góð skil í Læknablaðinu 1987. Aðaltilgangur hans með útgáfunni var að rjúfa einangrun þeirra 17 lækna á Norður- og Austurlandi, sem störfuðu einsamlir og dreifðir við erfiðar aðstæður og afleitt vegasamband. Upphafsorð Guðmundar eru þessi: »Stjettarbræður mínir! Ykkur, sem búið í einveru og einstæðingshætti eins og jeg, sem hittið sjaldan kollega og síst nema í svip, verðið einir að ráða fram úr öllu og einir að bera áhyggjumar, - ykkur sendi jeg þennan blaðsnepil, sem nokkurs konar fyrirrennara íslenzks læknablaðs, sem betur sje úr garði gjört. Jeg gjöri þetta af því mjer leiðist þessi einstæðingsháttur og þykist vita að svo muni fleirum finnast, en hygg að blaðið geti, ef til vill , bætt lítið eitt úr honum, þó ófullkomið sje.-« (12) Hann ætlaðist til að læknar skiptust á um að leggja til efni í blaðið, en raunin varð sú, að hann skrifaði það nánast einsamall. Hann reyndi að fá menn til að senda fréttir úr hémðum sínum og var sjálfur duglegastur við það. Blaðið er fágæt heimild um viðfangsefni hans og frásagnarmáta. Það inniheldur fjölmargar lærdómsríkar sjúkrasögur, og dró hann ekki sízt fram í dagsljósið mistök sín öðrum til lærdóms. Segir það mikið um manninn og þörf hans að miðla öðmm. Hann leitar álits starfsbræðranna á flóknum tilfellum úr eigin sjúklingahópi. Hann sagði: »í stað interessuleysis, fátæktar og einstæðingsháttar, þurfum vjer að fá lifandi áhuga, glöggva þekking, velmegun, bróðurhug og samvinnu milli vor, ísl. lækna.« (13) í blaðinu rak hann áróður fyrir auknum samskiptum lækna og reyndi að koma á læknafundi, en þar mættu aðeins tveir starfsbræður hans. Hann stofnaði lestrarfélag lækna, sem í samvinnu við amtsbókasöfnin keypti fræðibækur í læknisfræði, en boðsendingar gengu ekki sem skyldi svo félagið lognaðist út af. Þó var blaðinu og tillögum hans öllum tekið fagnandi en meira í orði en á borði. Annað aðalstef Læknablaðs GH var að auka þekkingu og efla fœrni lœkna. Guðmundur reyndi ávallt að leita sannleikans í hverju ntáli og ryðja úr vegi kreddum og hégiljum. Uppskar hann ekki alltaf verðskuldaðar vinsældir fyrir. Hvert tölublað innihélt oftast einhverja yfirlitsgrein um læknisfræðilegt efni, þar sem kennarahæfileikar hans komu vel í ljós. Framsetning var skipuleg og kristallstær og ávallt var frásögn hans krydduð dæmum úr eigin reynslu með það að leiðarljósi að koma lesanda að sem mestum notum í erli dagsins. Hann fjallaði meðal annars um augnsjúkdóma, gamastíflu, barkakýlisbólgu, bamaveiki, undirmigu, iðrasótt, njálg, reform, sullskurði, berklaveikivamir og bamsfararsótt og auk þess skrifar Steingrímur Matthíasson grein um bamadauða á íslandi með tilheyrandi línu- og stöplaritum. Hann hvatti menn til að gera grein fyrir farsóttum og sameinast um skýrslugerð og heimildasöfnun, sem varpað gæti ljósi yfir það sem óljóst var. Hann reyndi að kenna mönnum að beita vísindalegum hugsunarhætti við lausn daglegra vandamála og lagði þunga áherzlu á skýrslugerð og sjúkraskrár. Hann rak áróður fyrir bættum vinnubrögðum lækna, fræddi þá um sóttvamir og smitgát og lýsti fyrir þeim, hvemig standa ætti að ýmsum aðgerðum, sem hann hvatti þá til að gera. I miðjum bamaveikifaraldri 1901 ritar hann svo: »Það er óttalegt hve margir ísl. læknar veigra sjer við að gjöra tr.(acheotomi) við croup! Jeg er viss um að það er jafnsjálfsagt, þegar illa horfist á, eins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.