Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1989; 75: 399-403 399 Guöni Arinbjarnar FJÖGUR SULLATILVIK Á FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSINU ÁAKUREYR11984-1988 ÚTDRÁTTUR Hér er sagt frá fjórum sjúklingum með sullaveiki sem voru til meðferðar á Handlæknisdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri árin 1984-1988. Á tveimur sjúklinganna hafði áður verið gerð skurðaðgerð vegna sullaveiki, og hjá tveimur var sullurinn örugglega lifandi. Sá yngsti, 37 ára kona, hefur smitast á sjötta áratug aldarinnar. Árið 1970 fundust 10 ígulsullveikar kindur í sama sláturhúsi, enn er stunduð heimaslátrun í landinu og e.t.v. er hundahreinsun ekki gerð jafn ítarlega og áður. Því er ástæða til að minna hér á sullaveikina, sem Islendingar hafa smitast af langt fram á 20. öldina. INNGANGUR Islendingar eru þekktir fyrir og víða vitnað til þeirra í tengslum við baráttuna gegn sullaveiki í erlendum læknisfræðibókum og tímaritum þannig segir í leiðara í Lancet 1987, að ekki hafi sést sullur á Islandi í aldarfjórðung (1) og er þjóðin notuð sem skólabókardæmi um góðan árangur í baráttunni gegn þessum alheimssjúkdómi. Síðast var skrifað um sullaveiki í Læknablaðinu árið 1979 og segir Gísli Olafsson þar frá síðasta tilfelli sulls á íslandi, sem var vitað um. Fannst það við krufningu árið 1969 og getur hann þess að eftir síðustu aldamót hafi fimm manns tekið sullaveiki svo vitað sé, samkvæmt krufningaskýrslum (2). Næst þar á undan (1962) hafði dr. med. Bjami Jónsson lýst í Læknablaðinu (3) skurðaðgerð vegna sulls í mjaðmarbeini. í ljósi þess, að á árunum 1984-1988 voru fjórir einstaklingar til meðferðar á F.S.A. vegna sullaveiki er rétt að vekja athygli á Frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Barst 15/06/1989. Samþykkt 04/09/1989 þessum aldagamla fjanda, sem er að falla í gleymsku. Rétt er að byrja á að rifja upp helstu atriði um orsakavaldinn; ígulsull, Echinococcus granulosus og gera grein fyrir helstu atriðum einkenna, greiningar og meðferðar. Á íslandi er »sullaveiki« notað yfir sjúkdóm sem orsakast af bandormstegundinni Echinococcus granulosus. Til eru fleiri tegundir bandorma, en þær em ekki þekktar sem sjúkdómsvaldur í mönnum hér á landi (4). Aðalhýslar fyrir E.G. eru hundar, úlfar, refir og önnur skógardýr/kjötætur. Þessi dýr smitast af fullorðnum bandormi við að éta sullblöðrur úr innmat eða þegar hræætur éta sláturdýr. Þessi bandormur sem venjulega er 4-6 mm langur lifir fastur á smágimistotum og hin smitandi egg skiljast út í hægðum. Eggin em ónæm gegn flestum umhverfisþáttum (nema hita og þurrki) og smitun getur orðið með menguðu vatni eða grænmeti (5). Bandormurinn í innyflum hunda vinnur upp smæð sína með því að vera í geysilegum fjölda (oft 50 þúsund ormar í hundi) (6). Eggin eru í kítínhylki en það leysist upp í magasýrum þegar millihýsill (maður, kind, nautgripur) hefur gleypt þau og lirfa þess borar sig gegnum slímhúð gamanna og berst þannig í lifrarblóðrás. Flestar lirfur stöðvast í lifur (70%), hluti fer með háræðablóðrás til lungna (20%) en 10% setjast að annars staðar í líkamanum og getur það verið nánast hvar sem er (heili, ným, bein, augu, milta) (5- 7). Oháð staðsetningu stækkar lirfan í litla blöðru sem hefur þriggja laga byggingu. Virki hluti blöðrunnar er kímlagið en það myndar þykkt hýði og að lokum myndast frá því krókamir. I holrúm blöðrunnar safnast vökvi sem er afar »ónæmisertandi«, einnig finnast oft dótturblöðrur á floti í vökvanum en-þær geta skipt hundruðum í einni blöðru (5).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.