Læknablaðið - 15.09.1991, Síða 7
LÆKNABLAÐIÐ
251
góðan bata af aðgerðinni voru 69 alveg
óþægindalausir, 17 af þeim 38 sem urðu góðir
og fjórir af þeim 16 er urðu aðeins þokkalegir.
Af þeim 56 er höfðu einhver óþægindi eftir
aðgerðina, var meirihlutinn eða 44 með verki í
fæti.
Að eigin mati voru 69% karlmanna
verkjalausir eftir aðgerðina en helmingur
kvennanna var með verki, þar af meirihlutinn
með verki í fæti (tafla III).
Nokkur munur virðist einnig vera milli kynja
þegar litið er á hversu margir hafa skipt um
starf eftir aðgerðina, en það voru samtals 27
manns, þar af 13 karlar (15%) en 14 konur
(23%) (tafla IV).
Ekki var spurt um breytingar í starfi fyrir
aðgerð.
Sex sjúklingar þurftu að gangast undir aðra
aðgerð vegna brjóskloss í baki eftir fyrri
aðgerðina. Fjórir voru skomir á sama liðbili
og sömu megin. Að þeirra eigin áliti fengu
tveir góðan bata eftir seinni aðgerðina, tveir
töldu sig þokkalega og tveir voru án bata.
Við spumingu 8 fengust ekki ótvíræð svör,
þannig að ekki er ljóst hvort verkimir höfðu
staðið allt frá aðgerðartíma eða voru tilkomnir
síðar. Við 9. spumingu komu heldur ekki fram
svör sem hægt er að fjalla um tölfræðilega,
nema ef vera skyldi spumingin um það
hvort það að beygja bakið aftur (að fetta sig)
gæfi verki, því að langflestir sem svöruðu
hér höfðu ekki gert slíka hreyfingu eftir
aðgerðina!
Engir fylgikvillar við aðgerðina voru skráðir
í sjúkraskrámar og enginn sjúklingur lét slíks
getið í svari sínu.
UMRÆÐA
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan
Mixter og Barr leiddu menn í allan sannleika
um það árið 1934 hvað brjósklos er í raun og
veru (4).
Greiningin var mest klínísk, því heppileg
litarefni til myndatöku á mænugangi höfðu
þá ekki fundist. Aðgerðimar voru tiltölulega
umfangsmiklar og oft var farið í fleiri en
eitt liðbil. Liðbogaþynnur voru fjarlægðar
beggja vegna og síðan farið í gegnum
mænusekkinn. Fljótlega var þó farið að
Tafla I. Yfirlit yfir árangur eftir því hvort jákvœð eða
neikvœð mœnumynd lá fyrir áður en lagt var í aðgerðina.
Árangur Jákvæö N <%) Neikvæö N (%) Alls N
Verri _ - -
Enginn 3 (2) 1 (8) 4
Þokkalegur 13 (10) 3 (25) 16
Góöur 35 (26) 3 (25) 38
Mjög góöur 83 (62) 5 (42) 88
Samtals 134 (100) 12 (100) 146
Tafla II. Yfirlit yfir verki og staðsetningu þeirra eftir aðgerðina.
Árangur Engir overkir Bak- verkir Verkir í fæti Alls
Verri _ _ _ _
Enginn - - 4 4
Þokkalegur 4 1 11 16
Góöur 17 4 17 38
Mjög góöur 69 7 12 88
Samtals 90 12 44 146
Tafla III. Arangur af aðgerð að mati sjúklings.
Konur Karlar Alls
Árangur N (%) N (%) N (%)
Verkjalaus 31 (52) 59 (69) 90 (62)
Bakverkir 4 (6) 8 (9) 12 (8)
Verkir í fæti 25 (42) 19 (22) 44 (30)
Samtals 60 (100) 86 (100) 146 (100)
Tafla IV. Skipt um vinnu vegna hakvanda ?
Konur Karlar Alls
N (%) N (%) N (%)
Sama vinna46 (77) 73 (85) 119 (81.5)
Ný vinna 14 (23)13 (15) 27 (18.5)
Samtals 60 (100)86 (100)146 (100)
taka aðeins liðbogaþynnuna öðru megin og
svo aðeins hluta af henni, þeim megin sem
brjósklosið sat (5). Strax árið 1939 er talað
um að hægt muni vera að fjarlægja brjósklos
án þess jafnvel að taka nokkurt bein (6).
Árið 1942 kom fram litarefnið Panthopaque
sem gerði mænumyndatöku mögulega. Það var
notað áratugum saman uns nýrri efni komu á
markaðinn fyrir nokkrum árum. Með tilkomu
tölvusneiðmyndatækja varð síðan bylting í
röntgengreiningu, þar á meðal á sjúkdómum