Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.1991, Qupperneq 19

Læknablaðið - 15.09.1991, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 261-5. 261 Jón Hjaltalín Ólafsson, Rannveig Pálsdóttir, Guörún Guömundsdóttir VIÐHORF SJÚKLINGA TIL HÚÐ- OG KYNSJÚKDÓMADEILDAR ÚTDRÁTTUR Viðhorf sjúklinga sem sækja húð- og kynsjúkdómadeild Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur voru könnuð. Spurningalistar voru afhentir 1500 sjúklingum, en 1266 svör bárust. Um 20% sjúklinga komu að beiðni deildarinnar og önnur 29% komu vegna ráðlegginga vina. Um 11% var vísað á deildina af læknum. Um helmingur þeirra sem komu höfðu ekkert heyrt um deildina áður en þeir komu, en um 35% höfðu heyrt að móttökur á deildinni væru góðar. Um 80% voru ánægðir með móttökumar en 1.7% voru óánægðir eftir heimsóknina. Langri bið þótti hvað mest ábótavant. Um 81% aðspurðra fannst ekkert athugavert við nafn deildarinnar og þegar spurt var um nafn völdu 59.0% húð-og kynsjúkdómadeild, 15.8% smitsjúkdómadeild, en 7.8% kynsjúkdómadeild. INNGANGUR Löngum hefur þótt fremur niðrandi að fá kynsjúkdóm. Að sjálfsögðu eru margar skýringar á þessu, en sumar þeirra má rekja langt aftur í aldir þegar frjálsræði var minna og umgengnisreglur milli kynja strangari en nú (1). Ekki síst er skýringa að leita í alvöru þess að fá kynsjúkdóm áður fyrr þegar meðferðarmöguleikar voru litlir sem engir. Viðhorf lækna hafa breyst verulega síðastliðin 40 ár með uppgötvun sýklalyfja og bættri greiningu. Með tilkomu eyðni virtumst við engu að síður færast mörg ár aftur í tímann sökum þess hve alvarlegur sjúkdómurinn er og enga lækningu að finna. Frá húö og kynsjúkdómadeild Heilsuverndarstöövar Reykjavíkur. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Jón Hjaltalín Ólafsson. Að sumra áliti hefur nafnið kynsjúkdómur það slæman orðstír að ástæða sé til að breyta um nafn og fela þessa sjúkdóma á meðal annarra sjúkdóma sem enginn þarf að fara í felur með. Sumir sjúkdómar eru þess eðlis að sjúklingar mynda samtök og ganga í hús með ýmsan vaming til sölu, og rennur þá ágóðinn til styrktar vísindarannsóknum á viðkomandi »sjúkdómsgrein«. Tæpast er hægt að búast við að sjúklingar með kynsjúkdóma opinberi sig á slíkan hátt. En myndu almenn viðhorf til kynsjúkdóma breytast ef þeir hétu t.d. smitsjúkdómar eða samræðissjúkdómar? Húð- og kynsjúkdómadeild Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur er eina sérhæfða kynsjúkdómadeildin á landinu. Á deildina koma einnig sjúklingar með húðsjúkdóma en oftast grunar þá að um kynsjúkdóm sé að ræða. í slíkum tilvikum er húðsjúkdómurinn oft staðsettur á eða við kynfærin. Okkur lék forvitni á að vita hver viðhorf sjúklinganna væru til deildarinnar, þjónustu hennar og nafngiftar. Með þetta f huga var þessi könnun framkvæmd. EFNIVIÐUR Rannsóknin var framkvæmd frá 15.nóvember 1989 til 15. júní 1990. Var hún gerð með spumingalista (sjá viðbæti) sem afhentur var 1500 einstaklingum sem leituðu til deildarinnar á umræddu tímabili. Spurningalistinn var saminn með það fyrir augum, að auðvelt væri að svara, og var því valið það form að kross í rúðu fyrir framan spurningu nægði sem svar. Ekki var talið mögulegt að hafa fleiri spumingar en sem kæmust fyrir á A4 blaði með tilliti til þess tíma, sem það tæki að lesa spumingamar og svara þeim. Eftir að sjúklingur er skráður hjá

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.