Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1991, Síða 26

Læknablaðið - 15.09.1991, Síða 26
266 LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 266-72. Jóhann Ag. Sigurösson", Hjalti Kristjánssonl), Guöjón Magnússon", Leif Berggren21 SKOÐANIR LÆKNA Á STARFSSVIÐUM SÉRGREINA V. Aukið starfssvið, virðing heimilislækninga og áætlanir um verkaskiptingu ÁGRIP í þessari rannsókn eru athugaðar skoðanir lækna á útþenslu og stöðu (status) heimilislækninga og áætlanagerða um verkaskiptingu sérgreina. Fram kemur að aðrir en heimilislæknar telja að aukin umsvif heimilislækninga séu á kostnað annarra sérgreina. Heimilislækningar virðast njóta sömu virðingar og aðrar sérgreinar innan stéttarinnar eða þjóðfélagsins, en heimilislæknamir sjálfir eru efins um að svo sé. Ágreiningur er á milli heimilislækna og sérfræðinga um nánari samvinnu á heilsugæslustöðvum. Flestir eru sammála um gagnsemi áætlanagerða um verkaskiptingu. Þessi grein er sú síðasta af fimm í ritröðinni um skoðanir lækna á starfssviðum sérgreina (1-4). í fyrri greinum kom fram að faghópar hafa almennt tilhneigingu til þess að hasla sér eins stóran völl á sínu sviði og mögulegt er (conceptual eða non-physical territorial behaviour). Þessi hneigð skiptir miklu máli varðandi ágreining sem skapast getur þegar nýjar sérgreinar fara yfir á svið þeirra sem fyrir eru. INNGANGUR Staða fagfélags og virðing sú er það nýtur í þjóðfélaginu skiptir miklu máli varðandi vald og verksvið þess (5). Á næstu áratugunum eftir heimsstyrjöldina síðari varð mikil sérhæfing í læknisfræðinni og uppbygging sjúkrahúsa hröð. Á sama tíma fækkaði heimilislæknum. Nefnd sem skipuð var á vegum Reykjavíkurborgar árið 1963, taldi að skýringin á þessari fækkun væri sú að heimilislæknisstarfið nyti ekki þeirrar Frá '^læknadeild Háskóla íslands/heimilis- og félagslæknisfræöi, 2)Nordiska Hálsovárdshögskolan, Gautaborg. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Jóhann Ág. Sigurðsson. virðingar meðal lækna og almennings sem því bæri (6). I áliti nefndarinnar segir ennfremur að til þess að tryggja stöðu heimilislækninga verði að gera fagið að sérgrein og koma á fót kennarastólum við læknadeild Háskóla Islands. Heilbrigðisyfirvöld, Læknafélag Islands og læknadeild studdu síðan tillögur um að efla greinina aftur. Heimilislækningar voru gerðar að sérgrein árið 1970 (7) og fyrsti sérmenntaði heimilislæknirinn lauk því námi 1972. Ný lög um uppbyggingu heilsugæslunnar voru sett árið 1973 og skipaðir voru tveir lektorar í heimilislækningum við læknadeild á árunum 1976 og 1977 (8). Þróunin síðustu tvo áratugina hefur því frá upphafi verið samkvæmt ákveðinni áætlun, enda þótt hún hafi verið hægari en ætlað var í fyrstu. Á síðustu 10 árum hefur læknum einnig fjölgað umtalsvert (um 200%) í öðrum sérgreinum hér á landi (9), enda þótt ekki hafi verið til sambærilegar áætlanir um þá fjölgun. Engu að síður benda fyrri rannsóknir til þess að mörgum hafi fundist efling heimilislækninga vera of hröð og oft á kostnað annarra sérgreina (2-5). Tilgangurinn með þessari grein var því að athuga skoðanir lækna á umsvifum heimilislækna og þá virðingu eða stöðu sem þeir njóta innan stéttarinnar eða þjóðfélagsins. Víða eru gerðar faglegar ráðleggingar um það, hvernig staðið skuli að ákveðnum verkum t.d. ungbama- og mæðravemd (10) eða eftirliti með háum blóðþrýstingi (11). I sumum tilvikum er einnig tekið fram, hvaða sérgreinar eigi að sinna ákveðnum verkþáttum og hvenær ástæða sé til að vísa til annarra sérfræðinga (11). Tilgangurinn er fyrst og fremst að bæta þjónustuna og einnig að skilgreina verksvið vissra sérgreina. Lítið hefur verið um slíkar tillögur hér á landi og því hefur ekki verið athugað hvort læknar telji ákveðnari verkaskiptingu geta komið í veg

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.