Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1991, Síða 38

Læknablaðið - 15.09.1991, Síða 38
276 LÆKNABLAÐIÐ leiðbeiningar um ungbamaeftirlit (10) og staðal fyrir heimilislækningar (11). Staðall fyrir heimilislækningar var saminn af rekstramefnd Félags íslenskra heimilislækna 1986. Markmiðið var að setja félaginu og félagsmönnum lágmarksstaðal um hvað teldust góðar heimilislækningar. í staðlinum er meðal annars fjallað um: 1. Starfshætti heimilislækna. 2. Starfsfólk á heilsugæslustöð/heimilislæknastöð. 3. Húsnæði fyrir heilsugæslu. 4. Búnað á heilsugæslustöð/heimilislæknastöð. í staðlinum er lögð áhersla á að: Heimilislæknir sinni vandamálum afmarkaðs hóps. Heimilislæknir veiti þessum hópi alhliða þjónustu. Heimilislæknir leggi stund á heilsuvemd. Ákvæði um aðgengileika sjúklinga að þjónustunni séu skýr. Sjúkraskrár skuli vélritaðar, notaðar vandaliðaðar sjúkraskrár, fjölskyldusjúkrarskrár og tölvuúrvinnslu verði beitt sé þess kostur. Teymisvinna sé æskileg. Heimilislæknir stundi viðhaldsmenntun / símenntun. Hér á íslandi hafa því miður ekki verið stundaðar miklar rannsóknir á þessu sviði í heilsugæslunni og úr því þyrfti að bæta. Nauðsynlegt er að kanna hver sé árangur af vinnu lækna og þeirri þjónustu, sem sjúklingum er veitt. Gallinn við flestar rannsóknir varðandi gæðaeftirlit er að þær geta lítt metið, hvemig læknirinn reynist sjúklingum sínum, þ.e. læknislistina sjálfa. Erfitt er að meta þann metnað, sem sérhver læknir leggur í að sinna sjúklingum sínum og þann áhuga, sem hann sýnir vandamálum einstakra sjúklinga á erfiðum tímum í lífi þeirra. Hér reynir þó mest á í læknislistinni og ef til vill ættu menn að beina sjónum sínum að þessu sviði, þegar gæði læknisþjónustu eru metin. Rétt er að hafa í huga að markmið okkar er ekki einungis að lækna sjúkdóma heldur að hugga og styrkja sjúklinginn í raunum hans og veikindum. Slíkt verður þó ætíð erfitt að mæla. HEIMILDIR 1. Lohr KN, Brook RH. Summary. In: Lohr KN, ed. Quality Assurance in Medicine. Experience in the Public Sector. Santa Monica, Califomia: The Rand Corporation, 1984. 2. Donabedian A. The Quality of Medical Care. A concept in Search of a Dcliniton. J Fam Pract 1979; 9: 277-84. 3. Schroeder SA. Medical Technology and Academic Medicine: The Doctor-Producers’ Dilemma. J Med Educ 1981; 56: 634-9. 4. Haffner AN, Jonas S, Pollack B. Regulating the Quality of Patient Care. In: Jesus J, Pena JJ, et al, eds. Hospital Quality Assurance, risk management and program evaluation. Rockville, Maryland: Aspen publications, 1983. 5. Royal College of General Practitioners. What Sort of Doctor? Assessing Quality of Care in General Practice. Report from General Practice 23. London: The Royal College of General Practioners, 1985. 6. Royal College of General Practitioners. Quality in General Practice. Policy Statement 3. London: The Royal College of General Practitioners, 1985. 7. The College of Family Physicians of Canada. Maintainance of Certification. Willowdale, Canada: The College of Family Physicians of Canada, 1987- 1988. 8. Protocol for FPS Quality Assurance. Ljósritaðar leiðbeiningar frá Jackson Memorial Hospital. University of Miami, Department of Family Medicine, 1984. 9. Guðmundur Sigurðsson, Guðjón Magnússon, Helgi Sigvaldason, Hrafn Tulinius, Ingimar Einarsson, Olafur Olafsson. Egilsstaðarannsóknin. Sjúkraskrár fyrir heilsugæslustöðvar og tölvufærsla upplýsinga. Heilbrigðisskýrslur. Fylgirit 1980, nr. 1. Reykjavík: Landlæknisembættið, 1980. 10. Handbók fyrir heilsugæslustöðvar. Reykjavík: Landlæknisembættið. 1983. 11. Bjami Jónasson, Gunnar Baarregaard, Katrín Fjeldsted, Leifur N. Dungal. Starfsemi og starfsaðstaða. Staðall. Reykjavík: Félag íslenskra heimilislækna, 1986.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.