Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1991, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 15.12.1991, Blaðsíða 21
R, E TÖFLUR; B 04 A A 25 Hver tafla inniheldur: Pravastatinum INN, natriumsalt, 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar HMG-CoA redúktasa og dregur þannig úr myndun kólesteróls. Lyfið lækkar LDL-kólesteról og þríglýseríða í blóði. Þriðjungur lyfsins frásogast. U.þ.b. helmingur er próteinbundinn í blóði. Helmingunartími í plasma er 2 klst. Lyfið útskilst í galli og þvagi. Ábendingar: Veruleg hækkun kólesteróls í blóði, þegar sérstakt matar- æði hefur ekki borið tilætlaðan árangur. Frábendingar: Skert lifrarstarfsemi. Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfið ætti ekki að gefa konum á barneignaraldri nema þær noti örugga getnaðarvörn. Athugið: Vanda þarf sérstaklega notkun lyfsins og val á sjúklingum vegna hugsanlegra aukaverkana. Mælt er með því, að lifrarenzým séu mæld fyrir meðferð og á 4—6 vikna fresti fyrstu 12 mánuði meðferðar, en síðan reglulega (sjá um frábendingar og aukaverkanir lyfsins). Einnig er mælt með því, að sjúklingar fari í augnskoðun fyrir meðferð og síðan með reglulegu millibili meðan á meðferð stendur (sjá um auka- verkanir lyfsins). Aukin tíðni æxla (illkynja og góðkynja) í lifur hefur sést við gjöf mjög hárra skammta hjá rottum, en ekki hjá músum. Aukaverkanir: Hækkun lifrarenzýma í blóði. Hækkun CK-vöðva- enzýms í blóði. Höfuðverkur. Útþot. Óþægindi frá meltingarfærum. Skyld lyf geta valdið dreri á auga. Milliverkanir: Ekki þekktar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegir skammtar eru 10—40 mg einu sinni á dag síðdegis. Algengasti skammturinn er 20 mg á dag. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 28 stk. LIP /TAT ranpæra»hi.-M.iniiii Fljótvirk leið til lækkunar á óæskilegu kólesteróli. Bristol-Myers Squibb Pharmaceuticals Ltd.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.