Læknablaðið - 15.09.1993, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ
267
fjölþáttagreiningu Cox varð munurinn ekki
lengur marktækur. Ekki var marktækur munu'r
á dánartíðni úr heilablóðfalli eða öðrum
sjúkdómum milli fyrrnefndra hópa, hvorki
með einþátta- eða fjölþáttagreiningu. Sama
máli gegnir um heildardánartíðni.
EFNISSKIL
Rannsókn Hjartaverndar gefur tilefni
til ítarlegs mats á þýðingu ýmissa
afbrigða á hjartarafriti vegna þess hvernig
þátttakendahópurinn var valinn, hversu stór
hann er og hversu lengi honum hefur verið
fylgt eftir. Þegar hafa verið birtar niðurstöður
rannsókna til dæmis á vinstra greinrofi og
gáttaflökti (13,20).
Algengi hægra greinrofs er hæst 4,1 %
meðal karla og minnst 1,6% meðal kvenna
í aldurshópnum 75-79 ára. Enginn í
aldurshópnum 30-39 ára er með hægra
greinrof.
Algengið eykst með auknum aldri.
Sambærilegar niðurstöður í Tecumseh
rannsókninni eru 0,15% meðal karla 30-39
ára og 0% meðal kvenna í sama aldurshópi.
Meðal karla 70-79 ára var algengið 12% og
2,5% meðal kvenna í þeim aldurshópi (9).
Þessar niðurstöður eru ekki vel sambærilegar
við okkar niðurstöður að því leyti að fjöldi
allra þátttakenda með hægra greinrof er aðeins
12 meðal karla og sex meðal kvenna og
því eru óvissumörk mjög víð. Aðeins tvær
rannsóknir eru byggðar upp á svipaðan hátt og
rannsókn Hjartaverndar. Sú fyrri er Tecuinseh
rannsóknin sem gerð var 1959-60 á 8.641
fbúa í bænum Tecumseh, Michigan (9). Hún
beinist að hjartarafritsafbrigðum almennt.
Hægra greinrof reyndist helmingi algengara
í körlum en konunt og var algengara í eldri
aldurshópum. Ekki fundust marktæk tengsl
við háþrýsting, hátt kólesteról, háan blóðsykur
eða offitu. Athuguð voru tengsl mjög fárra
breyta við hverja breytingu á hjartariti auk
algengis þeirra og kynjahlutfalls. í greininni
er ekki skýrt frá því hvernig gæðaeftirliti á
úrlestri hjartarafrita er háttað þó að þau séu
flokkuð eftir Minnesota lykli. I samanburði
á rannsókn Hjartaverndar og Tecumseh
rannsókninni hvað varðar gáttaflökt kemur
í ljós að kynjahlutfallið karlar/konur er
2,73 í rannsókn Hjartaverndar en 0,57 í
þeirri síðari. Hvorugt kynjahlutfallanna er
aldursstaðlað. Þetta leiðir líkum að því að
þýðið sem myndar þátttakendahópa þessara
rannsókna sé ekki að fullu sambærilegt
og gæti það skýrt hvers vegna algengi
hægra greinrofs í þessum rannsóknum er
svo mismunandi. I rannsókn okkar fundust
tengsl hægra greinrofs við háþrýsting. Slík
tengsl fundust ekki í Tecumseh rannsókninni.
Meinafræðilegar athuganir á hjörtum fólks
með hægra greinrof sýna að þau voru oft með
bandvef í stað vöðvafrumna í leiðslukerfinu
(21,22). Þetta styður okkar niðurstöðu því
sýnt hefur verið fram á samband háþrýstings
og bandvefsmyndunar í hjarta (23). Síðari
rannsóknin er á lengdu QRS bili í þýði fólks
úr bænum Framingham, Massachusetts (8).
Sú rannsókn hófst 1948 þegar valdir voru
til þátttöku 5.127 manns. Arin 1970-73 var
bætt við afkomendum fyrri hópsins alls 5.135
þátttakendum. Rannsóknin á lengdu QRS
bili tekur til eftirlifenda úr fyrri hópnum auk
síðari hópsins, í heildina 8.396 þátttakendur.
Háþrýstingur reyndist marktækt algengari
(p<0,01) í hópi þátttakenda með lengt QRS
bil en annarra án þess. Þetta er í samræmi við
okkar niðurstöður. Innanslegilsleiðslutruflunum
í hægri hluta hjarta fækkaði hlutfallslega með
auknum aldri og hægra greinrof reyndist
58% af slíkum truflunum. Þýði Framingham
rannsóknarinnar er ekki eingöngu valið af
handahófi úr almennu þýði, 11 % þátttakenda
í upphafi var heilbrigðisstarfsfólk sem var
valið sérstaklega (24-26). Rannsóknin beinist
eingöngu að fylgni lengingar á QRS bili
við hinar ýmsu breytur. Því birtast engar
niðurstöður um fylgni þeirra við hægra
greinrof sérstaklega. I báðum fyrrnefndum
rannsóknum er fjöldi þátttakenda innan við
helmingur þátttakendafjöldans í rannsókn
Hjartaverndar og niðurstöður þeirra ná því
til töluvert færri mannára (8,9,11,12).
Algengi hægra greinrofs er 0,07-0,20% í
ýmsum rannsóknum á flugáhafnarmeðlimum
og umsækjendum um slíkt starf (27-30).
I þýði fólks sem hætt var störfum og
var eldra en 52 ára var það hins vegar
1,28% (31). Skýringin á þessu mismunandi
algengi kann að vera sú að þýðið í öðrum
rannsóknum er oftast sérstaklega valið, til
dæmis ellilífeyrisþegar og aðrir sem hættir eru
störfum og umsækjendur um flugþjálfun eða
flugmenn. Aðrar rannsóknir á hægra greinrofi
voru oft unnar úr skýrsluin sjúkrahúsa eða
lækna á stofum (32-35). Menn í herþjónustu