Læknablaðið - 15.09.1993, Side 41
LÆKNABLAÐIÐ
291
Diagnosis
Cardiovasc. dis.
Eye dis.
Gastroent. dis.
Urolog. dis.
Dermatolog. dis.
Psychiatr. dis.
Muscular. dis.
Symptoms
Accidents
Otoiaryng. dis.
Respirat. dis.
Infections
□ Female
■ Male
Fig. 5. 'I'he number (percentage) of cliagnosis according
Problem solutions
Counseling
Drug prescriptions
Others
Hospital referral
Surgical treatment
Laborotory test
Psychotherapy
Certificate
X-ray
10 20 30 40 50 60
Percentage of contacts
Fig. 6. Percentage of problem
solutions according to the number
of contacts.
aldursdreifing, landfræðilegir þættir og
mismunandi skipulag vaktlæknisþjónustu.
Könnun þessi sýnir að stærsti
neytendahópurinn eru börn á aldrinum eins
til fjögurra ára (28%). Þau hafa nær tvöfalt
fleiri samskipti en hópurinn sem næstur
kemur, en það eru börn fimm til fjórtán
ára. Þessar niðurstöður eru í samræmi við
niðurstöður erlendis frá (3,4). Rannsókn á
læknisvitjunum lækna, sem störfuðu við
vaktlæknisþjónustu í Linköping í Svíþjóð,
sýndi að um 20% einstaklinga sem fengu
lækni heim voru sex ára eða yngri (5).
Könnun á vaktlæknisþjónustu heimilislækna
við Heilsugæslustöðina Habo í Svíþjóð
sýndi að um 40% þeirra sem nýttu sér
vaktþjónustuna voru yngri en 14 ára (6).
Athugun sem gerð var á vaktlæknisþjónustu
í Hovingham í Englandi sýndi þó að tæplega
helmingur sjúklinganna voru 65 ára og eldri
(7). Þetta skýrist meðal annars af mismunandi
aldursdreifingu og sjúkdómsmynstri. Stór
hluti íbúanna var gamalt fólk og læknirinn
sinnti meira aðhlynningu deyjandi sjúklinga
í heimahúsum en vaktlæknar á okkar
rannsóknarsvæði gera.
Sjúkdómsmynstur vaktlæknisþjónustunnar
á HGB-svæðinu eru mjög áþekk því
sem kemur fram í sænskum rannsóknum
(5,8,9). Sýkingar, öndunarfærasjúkdómar
og HNE-sjúkdómar (aðallega eyrnabólgur)
eru langalgengustu sjúkdómsflokkarnir.
Slysfarir eru um 11% greininganna í okkar
rannsókn, langoftast smá slys sem gert er að á
bráðamóttökunni.
Almennar ráðleggingar og lyfjaávísanir eru
algengustu úrlausnir sem sjúklingarnir fá. í
áðurnefndri rannsókn á vaktlæknisþjónustu
í Linköping í Svíþjóð fengu um 80%
sjúklinganna úrlausn, sem að hluta til að