Læknablaðið - 15.02.1994, Page 10
54
LÆKNABLAÐIÐ
hverjir hafa gagn af aðgerð þarf framsýna
samanburðarrannsókn.
Fimmti hver sjúklingur greindist fyrir tilviljun
á síðari helmingi rannsóknartímabilsins. Þetta
er mun lægra hlutfall en í sambærilegum
erlendum rannsóknum (tafla V). Auk þess
verður að taka tillit til þess að í okkar
rannsókn eru sjúklingar sem greinast
fyrir tilviljun í aðgerð eða við uppvinnslu
á smásærri blóðmigu og/eða háu sökki
(án einkenna) taldir með í hópi B. I
rannsóknunum, sem vísað er til í töflu V,
er tilviljanagreining yfirleitt bundin við þá
sem greinast með myndrannsóknum og
stundum aðgerð. Ef sú skilgreining er höfð
til hliðsjónar er hlutfall tilviljanagreindra
nýmafrumukrabbameina enn lægra hér
á landi (um 13%). Erlendis er aukning
tilviljanagreindra nýrnaæxla rakin til aukinnar
notkunar tölvusneiðmynda og ómunar
við rannsóknir á kviðarholi (12). I okkar
rannsókn greindust aðeins fimm sjúklingar
fyrir tilviljun við ómskoðun frá 1986-1990
og fjórir greindust með tölvusneiðmynd
frá 1984-1990. Langflest tilviljanagreind
æxli fundust við nýrnamynd bæði á fyrri
og síðari hluta rannsóknartímabilsins, oftast
í tengslum við rannsókn sjúkdóma í neðri
þvagfærum. Tilkoma tölvusneiðmynda upp
úr 1981 og ómunar þremur árum síðar (1984)
virðist ekki hafa breytt miklu þar um. Eflaust
er fleiri en ein skýring á þessu. A Islandi
hefur minna verið gert af ómskoðunum
og tölvusneiðmyndum við rannsóknir á
sjúklingum með kviðverki en víða erlendis,
ekki síst Bandaríkjunum (39). Samt sem
áður verður að telja að fimm æxli greind
við ómun á sex ára tímabili sé lágt hlutfall
þegar tekið er mið af fjölda ómskoðana
á þessu tímabili. Til samanburðar sýnir
japönsk rannsókn að þar greindust 68% af
tilviljanagreindum æxlum með ómun 1980-
1988 (40). Einnig er hugsanlegt að erlendis
hafi hlutfall tilviljangreindra æxla verið
ofmetið. Þær erlendu rannsóknir sem var
vitnað í ná til afmarkaðri hóps en okkar
rannsókn. Efniviðurinn er að einhverju leyti
valinn enda oftast um að ræða rannsóknir
frá stórum sjúkrahúsum sem fá sjúklinga
senda víða að. Við rannsökuðum öll greind
nýrnakrabbamein á löngu tímabili í stóru,
vel skilgreindu þýði (frá 1955 hafa öll
greind krabbamein á íslandi verið skráð í
Tafla V. Hlutfall sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein
sem greindir eru fyrir tilviljun. - Samanburður
rannsókna.
Rannsókn Tímabil Fjöldi sjúklinga Greindir fyrir tilviljun <%) ■
Riches og fél. (15) 1935-1950 63/1746 (4)
Skinner og fél. (2) 1935-1965 22/309 (7)
Thompson og fél. (1) 1956-1965 2/18 (11)
1966-1975 18/64 (28)
1976-1985 17/68 (25)
Konnak og fél. (9) 1961-1973 7/56 (13)
1980-1984 22/46 (48)
Golimbu og fél. (6) 1970-1982 56/326 (17)
Honkala og fél. (14) 1974-1979 16/52 (31)
1980-1985 50/112 (45)
Ueda og fél. (10) 1976-1980 2/16 (13)
1981-1985 13/37 (35)
Nakano og fél. (13) 1980-1989 44/144 (31)
Guðbjartsson og fél. 1971-1980 25/166 (15)
1981-1990 49/242 (20)
Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands).
Við teljum því hugsanlegt að okkar rannsókn
gefi raunhæfari hugmynd urn það hversu
margir greinist í raun fyrir tilviljun þegar
litið er á alla sjúklinga sem greinast með
nýrnafru mukrabbamein.
Enginn vafi leikur á því að tilviljanagreindu
æxlin eru á lægri stigum við greiningu. Þegar
tekið hefur verið tillit til stigunar hefur það
hins vegar ekki forspárgildi fyrir lífshorfur
hvort sjúklingur greinist fyrir tilviljun eða
ekki. Betri horfur tilviljanagreindra sjúklinga
skýrast því fyrst og fremst af lægri stigun.
Greiningarár hafðl ekki forspárgildi fyrir
lífshorfur. Þetta þýðir með öðrum orðum
að þeir sjúklingar sem greindust upp úr
1970 höfðu svipaðar lífshorfur og hinir
sem greindust tveimur áratugum síðar.
Meðferð hefur lítið breyst á þessu tímabili.
Þetta á sérstaklega við um sjúklinga með
staðbundinn sjúkdóm þar sem brottnám á
nýra hefur verið eina meðferðin. Þrátt fyrir
fullkomnari tækjabúnað hefur aðgerðin í
sjálfu sér lítið breyst. Áður kom fram að
óverulegar breytingar urðu á skurðdauða á
rannsóknartímabilinu. Einhverjar breytingar
hafa hins vegar orðið á lyfjameðferð sjúklinga
með meinvörp en engar stórvægilegar.
Interferóni hefur verið beitt í vaxandi mæli