Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1994, Síða 41

Læknablaðið - 15.02.1994, Síða 41
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 81-90 81 Ólafur Jensson 1953-1993: BLÓÐBANKINN 40 ÁRA ABO- BLÓÐFLOKKAKERFIÐ Tuttugasta öldin hefur verið kölluð ýmsum nöfnum eins og atómöld, geimferðaöld og öld erfðafræðinnar vegna mikilla viðburða í þeirri grein á seinustu árum. Erfðafræðin hefur veitt mikilvæga leiðsögn í læknisfræðinni frá síðustu aldamótum. Austumski læknirinn Karl Landsteiner gerði grein fyrir ABO blóðflokkakerfinu um aldamótin 1900 og áratugi síðar, árið 1910, var sýnt fram á að þetta blóðflokkakerfi hagaði sér samkvæmt erfðalögmáli Mendels. Þessi þekking gerði sig gildandi með tvennum hætti í fyrra heimsstríði. I fyrsta lagi var hægt að bjarga mannslífum með blóðgjöf, sem var valin samkvæmt réttum ABO blóðflokki. I öðru lagi var greindur mismunur í blóðflokkatíðni eftir þjóðerni. Stofnerfðafræðin varð til, þegar Lúðvík og Hanka, kona hans, Hirschfeld greindu mismunandi tíðni ABO blóðflokka hjá hermönnum af ólíku þjóðemi á Makedóníuvígstöðvunum 1917 og birtu sígilda grein um niðurstöðurnar í Lancet 1919. Frá þessum tíma hafa blóðflokkarnir skipað tignarsess í mannerfðafræði og læknisfræði. Fyrsti íslenski læknirinn sem greindi blóðflokka hérlendis var Stefán Jónsson meinafræðingur. Hann rannsakaði um 800 íslendinga árið 1921 og komst að þeirri niðurstöðu að O blóðflokkurinn væri tiltölulega algengur hjá Islendingum í samanburði við það sem fannst hjá Dönum. Prófessor Níels Dungal hafði alla tíð mikinn áhuga á blóðflokkafræðum og skrifaði hann grein um þau þegar 1928 og notaði blóðflokkun við lausn mála í réttarlæknisfræði. Árið 1935 hófu Roverskátar hérlendis skipulagt blóðgjafastarf undir leiðsögn Guðmundar Thoroddsen prófessors á handlækningadeild Landspítalans. Þeir sóttu Frá Blóðbankanum, v/Barónsstíg, 101 Reykjavík. fyrirmynd að stofnun blóðgjafasveitar til danskra skáta sem höfðu verið brautryðjendur á þessu sviði í Danmörku. Blóðgjafasveit skáta var öðrum fyrirmynd þar til Blóðbankinn var stofnaður og reyndar lengi eftir það. STOFNUN BLÓÐBANKANS Stofnað var til blóðbankastarfsemi á Landspítalanum í sérstakri byggingu í nóvember 1953. Skurðlækningar og stoðgreinar þeirra svæfingar og blóðbankastarfsemi höfðu þróast ört á árum seinni heimsstyrjaldar. Þekkingin um blóðflokka manna efldist mjög og margskonar tækni var þróuð til að gera vinnslu blóðhluta og blóðvatnsþátta mögulega og handhæga við lækningar. Meðal þýðingarmestu framfara voru plastpokar sem umbúðir til varðveislu blóðs. Þeir voru fyrst búnir til í Bandaríkjunum um 1950 og farið að nota í stórum stíl á sjöunda áratugnum. Á Islandi leystu slíkir plastpokar glerflöskur af hólmi 1968. Megin viðfangsefni blóðbankastarfseminnar er að fullnægja þörfum sjúkrahúsanna fyrir blóð og blóðhluta. Nútíma skurðlækningar eru óframkvæmanlegar nema þær eigi að bakhjarli blóðbankaþjónustu til að bæta sjúklingi upp hættulegan blóðmissi, sem hann kann að verða fyrir við skurðaðgerðina. Skýrust dæmi um þetta eru meiriháttar skurðaðgerðir, eins og til dæmis við nútíma hjartaskurðlækningar. Þær hófust á Landspítalanum 1986 og á árinu 1993 höfðu verið framkvæmdar yfir 1000 slíkar aðgerðir. Þessi starfsemi hefur gert auknar kröfur til blóðgjafanna og blóðbankastarfseminnar. Vel hefur gengið að fullnægja þörfinni fyrir blóð vegna þessara lækninga og það er auðvitað fyrst og fremst blóðgjöfunum að þakka. Samvinna við hjartaskurðlækna og svæfingar- og gjörgæslulækna hefur

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.