Læknablaðið - 15.11.1994, Side 4
„Ef þetta hjálpar ekki getur þú komið aftur og fengið eitthvað annað"
„Gæti ég ekki alveg eins fengið þetta annað núna?"
Afhverju ekki að byrja
strax á bestu og ódýrustu
meðferðinni?
Með því að nota Losec' við bakflæði fæst styttri meðferðartími
og sjúklingnum líður betur (QoL) en á meðferð með H2 blokkum.
Jafnframt er Losec®ódýrari fyrir þjóðfélagið
Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+, H+
- ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur
þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldar-
framleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásog-
ast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt
35% eftir einstakan skammt, en eykst í 60% við
stöðuga notkun. Hvorki matur ná sýrubindandi lyf
hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding f blóði
er um 95%. Helmingunartími lyfsins ( blóöi er
u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun
lengur en því samsvarar og er taliö, að verkunin
hverfi á 3-4 dögum. Lyfiö umbrotnar algerlega.
Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin
að mestu út með þvagi.
Ábendingar: Sársjúkdómur ( skeifugörn og maga.
Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison
heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar grein-
ingar séu staðfestar með speglun. Langtímanotkun
við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eöa við
síendurteknum sárum f maga eða skeifugörn: Ekki
er mælt með notkun lyfsins lengur en (3 ár.
Frábendingar: Engar þekktar.
Aukaverkanir: Aukaverkanir eru almennt fátfðar.
Húð: Útbrot koma fyrir svo og bráðaofnæmi og
kláði. Stoðkerfi: Liðverkir og vöðvaþreyta. Eymsli (
vöðvum. Taugakerfi: Höfuðverkur. Sjaldan svimi.
Paraestesíur. Syfja og svefnleysi hefur einnig sést.
Tfmabundið rugl, oflæti, þunglyndi og ofskynjanir
hafa einnig verið tengd gjöf lyfsins ( einstaka tilvik-
um, einkum hjá mjög veikum sjúklingum.
Meltingarvegur: Breytingar á hægðum (niðurgang-
ur, hægðatregða). Kviöverkir, ógleði, uppköst og
aukinn vindgangur. Lifur: Lifrarenzým hafa hækkað
með eða án bilirúbinhækkun. Innkirtlar: Brjósta-
stækkun hefur sést. Blóð: Einstaka tilvikum um
fækkun hvítra blóðkorna og blóðflagna hefur veriö
lýst.
Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrots-
hraða díazepams, warfaríns og fenýtófns í lifur.
Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða
fenýtófn og getur verið nauðsynlegt að minnka
skammta.
Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um
eiturverkanir f mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar
um meöferö eru því ekki þekktar.
Athugið: Ekki er ráðlagt að gefa lyfið á meðgöngu-
tfma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylk-
in á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni.
Tæma má innihald hylkjanna f t.d. skeið og taka
það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal
þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi.
Sýruhjúphylki: Skeifugarnarsár: Venjulegur
skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sáriö ekki
gróið, má halda meðferð áfram f 2 vikur f viðbót.
Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri
meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin
og sárið gróiö, oftast innan 4 vikna. Magasár:
Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur.
Hafi sárið ekki gróið, má halda meöferð áfram f 4
vikur til viöbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki
svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á
dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna.
Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur
skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan
ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til
viðbótar. Hjá sjúklingum sem hafa ekki svarað
annarri meðferö, hafa 40 mg einu sinni á dag verið
gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna.
Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur
skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf
hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið
á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir
80 mg þarf að skipta honum ( tvær lyfjagjafir.
Langtfmameðferð vegna bakflæðis f vélinda eða
vegna síendurtekins sársjúkdóms f maga eöa
skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu
sinni á dag. Ef einkenni versna má auka
skammtinn í 40 mg einu sinni á dag.
Skammastærðir handa börnum: Engin reynsla er
af notkun lyfsins hjá börnum.
Framleiðandi: Astra.
Einkaumboð á íslandi: Pharmaco hf„ Hörgatúni 2,
Garðabæ.