Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1994, Page 4

Læknablaðið - 15.11.1994, Page 4
„Ef þetta hjálpar ekki getur þú komið aftur og fengið eitthvað annað" „Gæti ég ekki alveg eins fengið þetta annað núna?" Afhverju ekki að byrja strax á bestu og ódýrustu meðferðinni? Með því að nota Losec' við bakflæði fæst styttri meðferðartími og sjúklingnum líður betur (QoL) en á meðferð með H2 blokkum. Jafnframt er Losec®ódýrari fyrir þjóðfélagið Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+, H+ - ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldar- framleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásog- ast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur ná sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding f blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins ( blóöi er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er taliö, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfiö umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur ( skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar grein- ingar séu staðfestar með speglun. Langtímanotkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eöa við síendurteknum sárum f maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en (3 ár. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Aukaverkanir eru almennt fátfðar. Húð: Útbrot koma fyrir svo og bráðaofnæmi og kláði. Stoðkerfi: Liðverkir og vöðvaþreyta. Eymsli ( vöðvum. Taugakerfi: Höfuðverkur. Sjaldan svimi. Paraestesíur. Syfja og svefnleysi hefur einnig sést. Tfmabundið rugl, oflæti, þunglyndi og ofskynjanir hafa einnig verið tengd gjöf lyfsins ( einstaka tilvik- um, einkum hjá mjög veikum sjúklingum. Meltingarvegur: Breytingar á hægðum (niðurgang- ur, hægðatregða). Kviöverkir, ógleði, uppköst og aukinn vindgangur. Lifur: Lifrarenzým hafa hækkað með eða án bilirúbinhækkun. Innkirtlar: Brjósta- stækkun hefur sést. Blóð: Einstaka tilvikum um fækkun hvítra blóðkorna og blóðflagna hefur veriö lýst. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrots- hraða díazepams, warfaríns og fenýtófns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtófn og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir f mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meöferö eru því ekki þekktar. Athugið: Ekki er ráðlagt að gefa lyfið á meðgöngu- tfma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylk- in á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna f t.d. skeið og taka það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi. Sýruhjúphylki: Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sáriö ekki gróið, má halda meðferð áfram f 2 vikur f viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróiö, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meöferð áfram f 4 vikur til viöbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem hafa ekki svarað annarri meðferö, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum ( tvær lyfjagjafir. Langtfmameðferð vegna bakflæðis f vélinda eða vegna síendurtekins sársjúkdóms f maga eöa skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn í 40 mg einu sinni á dag. Skammastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Framleiðandi: Astra. Einkaumboð á íslandi: Pharmaco hf„ Hörgatúni 2, Garðabæ.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.